Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1959, Blaðsíða 33

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1959, Blaðsíða 33
aldarminning þorsteins erlingssonar 15 fram í janúar 1903, en þá hætti hann ritstjórn með öllu. Blaðamennskan var Þorsteini lítt að skapi, enda þótti mönnum ekki kveða eins mikið að honum á því sviði eins og þeir höfðu vænzt eftir, °g má þó ýmislegt gott segja um blöð þau, er hann stýrði. Einnig er ekki nema sanngjarnt að taka með í reikninginn aðstæður hans við blaðamennskuna. Bendir Jón Jóns- Son_ fyrrv. alþingismaður frá Sleð- örjót réttilega á það í athyglisverðri ^inningargrein, sem hann skrifaði Um Þorstein í tímaritið Skuggsjá (febr. 1917). Bregður sá kafli grein- annnar, er hér um ræðir, einnig upp afakanlegri mynd af heilsufari Þor- steins, en þannig falla Jóni orð: »Jafnan tók Þorsteinn því vel, ef eitthvað var fundið að ritstörfum nans. Mörgum er þekktu Þ. Erl. urðu Pað vonbrigði, að blaðamennska nans varð ekki áhrifameiri en hún ya_r- Þorsteinn var allra manna róðastur um landsmál og landshagi, víðsýnn og vel menntaður, og það bæði gagn og gaman að ræða við ann um stjórnmál og mannfélags- ^álj skáldskap og margt annað. Út Ur þessum umræðum barst einu Slnni í tal, bæði í gamni og alvöru, okkar um blaðamennsku hans. j e§ sagði þá við hann eitthvað á þá . > að þegar hann væri að tala við og aðra um landsmál, væri hann 0 fróður og víðsýnn, að unun væri • En þegar hann færi að skrifa um Sama efni í blaðið, væri það oft svo ýigalítið. Ég sagði þetta svo góð- ^ ega sem ég kunni, því mér ar Elýtt til Þorsteins og unni hon- nm þ " sæmdar og gengis i hvívetna. orsteinn brosti, en var eins og hálf- Ungt um svar. „Þetta eru nú skammir, Jón,“ sagði hann. „En því er nú ver, að þær eru að miklu sann- ar, og alltaf finnur maður nú þegar skammirnar eru af góðum hug sagð- ar. En gáðu nú að ástæðunum. Þú veizt hvernig heilsan mín er, hefir heyrt hóstann og séð blóðuppgang- inn, sem þreytir mig á morgnana. Og þegar ég kem á fætur er ég lengi að jafna mig. Og svo koma blessaðir gestirnir allan daginn. Þið komið margir kærir kunningjar og þar ut- an ýmsir í ýmsum erindum, sumir að biðja einhverrar smábónar og sumir bara til að „rövla“ um ein- hverja vitleysu. En ég verð að gæta gestrisnis-skyldunnar, og allra bón langar mig til að gera, ef þeir eiga bágt. Svona líður dagurinn, og kvöldið kemur og oft hefur ekkert orðið úr verki. Þá verð ég að fara að skrifa í blaðið andlega og líkam- lega þreyttur, og því verða ritgerð- irnar eins og kvæðin, þegar skáld- gyðjan er tekin nauðungartaki.“ Eftir að Þorsteinn fluttist til Reykjavíkur, þar sem hann átti heima til dauðadags, 28. sept. 1914, vann hann að miklu leyti fyrir sér og sínum með tímakennslu, og vita allir, sem við hana hafa fengizt, hve þreytandi hún er, og lítt til þess fallin að blása skáldi byr undir vængi til frjósamrar andlegrar iðju. Frá árinu 1895 að telja naut Þor- steinn að sönnu nokkurra skálda- launa úr landssjóði, en þau náðu skammt til þess að gera honum kleift að sjá sér og sínum farborða. Voru skáldalaun þessi bæði skorin við nögl og umdeild á Alþingi, skáld- inu mjög til ama og gremju. Rétt er að geta þess hér, að vinir og vel- unnarar Þorsteins í hópi landa hans vestan hafsins sendu honum eitt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.