Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1959, Síða 38

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1959, Síða 38
20 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA „Hans jafnaðarmennska var aldrei neitt nálægt því „þitt er mitt', en „mitt er þitt“ gat hann sagt hvenær sem var, enda sagði hann: Ég hef aldrei skilið aðra jafnaðarmennsku en þá, sem Kristur kenndi: „Sá yðar, sem á tvo kirtla, gefi hinum annan, sem engan á.“ Og eins sagði hann, að hægt væri að gerbreyta öllum heiminum, ef menn vildu hlýða þessu eina boði Krists: „Það, sem þér viljið að mennirnir geri yður, það skulið þér og þeim gera.“ Þor- steinn las oft í Biblíunni, einkum guðspöllunum, og kunni langa kafla úr þeim utanbókar. Svo mikið kunni hann úr þeim, að sr. Haraldur Níels- son undraðist stórum. Oft sagði hann, að sér fyndist hann geta alveg séð hvaða setningar í guðspjöllunum væru eftir Meistarann sjálfan, því svo bæru þær af öðru. Sr. Haraldur Níelsson og Þor- steinn voru góðir vinir, og voru mjög samrýmdir á mörgum sviðum. Mat Þorsteinn mikils hita sr. Har- alds, einlægni, hreinskilni og á- huga. Sr. Haraldur var líka alveg óvenjulega ljóðelskur maður og smekkvís. Á síðari árum hafa ýmsir viljað halda því fram, að Þorsteinn hafi verið andvígur kristindómi. Ég get ekki hugsað mér meiri fjarstæðu." Þá er um ræðir trúarskoðanir Þorsteins, má einnig minna á eftir- farandi ummæli Jóns frá Sleðbrjót í grein hans um skáldið: „En þó Þorsteinn væri andvígur kirkju og kristindómi kirkjunnar og væri stundum sárbeittur við klerka, kom það aldrei fram þannig, að hann legði presta í einelti eða reyndi að finna þeim allt til foráttu. Hann virti þá marga mjög mikils, og var vinur margra þeirra, er því gátu tekið, og tók oft svari þeirra, er þeir voru ekki við. Það lá í eðli hans djúp fyrirlitning á aðferð þeirra, sem reyna við öll tækifæri að hnekkja áliti og mannorði andstæðinga sinna. Hann hataði málefni og stefnur en ekki mennina. Ég held ég hafi aldrei kynnzt manni, sem eins hafi verið laus við að hata nokkurn einstakling eins og Þorsteinn var.“ — Fleiri hafa tekið í sama streng í ummælum sín- um um afstöðu hans til málefna og einstaklinga. Meðal merkustu og athyglisverð- ustu kvæða Þorsteins í fyrsta ljóða- safni hans (og raunar í öllum skáld- skap hans) er sögukvæðið „Jörund- ur“, en þar nýtur þjóðfélagsádeila hans sín ágætlega, og skyldleikinn við Byron leynir sér ekki, sérstak- lega hið fræga skáldverk hans Don Juan. Áhrif Byrons á Þorsteins, einkum að því er snertir skáldskap- arstílinn, eru þó mest áberandi i kvæðaflokkinum Eiðnum, en gætir einnig í kvæðinu „Eden“. Innan spjalda fyrstu útgáfu Þyr*13 var óneitanlega að finna mörg st snjöllustu, vinsælustu og áhrifa- mestu kvæðum skáldsins, en eigi ma lesandanum þó sjást yfir það, að i seinni útgáfunum eru mörg ný kvæði og ágæt, svo sem „Við foss- inn“, „Jól“ og „Aldaslagur“, aU^ anarra náttúrulýsinga, ættjarðar- ljóða og tækifæriskvæða, er svip' merkjast af þeim sterka ljóðraena streng, sem sérkenndi skáldið Þ dánardægurs. Þjóðfélagsádeilur Þorsteins fra síðari árum eru með mildari blse en hinar eldri, eða öllu heldur í léttarl tón, að sumu leyti vegna þess, a skáldið hafði lært af Byron að bei a
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.