Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1959, Side 39

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1959, Side 39
aldarminning þorsteins erlingssonar 21 fimlega vopnum meinfyndinnar kaldhæðni, og einnig sökum þess, að þjóðfélagsástandið á íslandi, þó að margt þyrfti þar umbóta, var ekki eins eggjandi til hvassyrtra árása eins og ástandið í Danmörku hafði verið á fyrri árum skáldsins. Dr. S. Nordal hefir gert þessari hlið- inni á ævi og skáldskap Þorsteins ágæt skil í ritgerð sinni um hann, og fer, meðal annars, um það mál, þessum eftirtektarverðu orðum: „Skoðanir hans voru alveg ó- breyttar, en sá heimur, þar sem ranglætið var nógu þrútið til þess að magna hann til árása, sá flokkur manna, sem von var um, að eggjun til uppreisnar biti á, voru honum of fjarlægir til þess að verða að yrkis- efni. Þegar hann var beðinn að yrkja kvæði til Friðriks konungs áttunda sumarið 1907, gat hann staðið eitt- hvað svipað að vígi sem í höfn: Fylkir vor! í öllum okkar sögum er þeim kóngum fegurst merki reist, sem hin sterka sveigðu fyrir lögum, sem hinn smæsti gat að fullu treyst. Tónninn er mjúkur og fyllstu háttvísi gætt, enda var þessi kon- Ungur gestur íslendinga og ekki verndari neinnar Estrups-stjórnar. Mér er nær að halda, að Friðrik átt- Unda hefði þótt þetta bezta kvæðið, Sem honum var flutt á íslandi, ef aðrir hefðu ekki verið of vandlátir ^ Þess að lofa honum að heyra það °g sjá. — Og ef Þorsteinn Erlings- son hefði lifað 10—20 ár lengur, horft yaxandi misrétti og stærri átök í Þjóðfélaginu, er enginn vafi á því, kann hefði alltaf staðið í flokki ^eð hinum róttækustu umbóta- mÖnnum.“ Nei, Þorsteinn Erlingsson hélt fullri tryggð við æskuhugsjónir sín- ar. Social-Demokraien, málgagn danskra jafnaðarmanna, var honum hugþekkur lestur til hins síðasta; hann studdi ákveðið og drengilega verkalýðshreyfinguna á íslandi; og að sama skapi sjálfstæðiskröfur ís- lendinga, enda var það í samræmi við djúpa þjóðernistilfinningu hans. Kvæðið „Landvarnarmaðurinn", ort tæpu ári áður en hann lézt, ber því vitni, að baráttuhugurinn var óbil- aður og trúnaðurinn við þjóðfélags- legar umbótahugsjónir óbreyttur. Meginstraumarnir í skáldskap Þorsteins lýsa sér ljóst í Eiðnum, en það er flokkur kvæða um ásta- sorgir, og fléttast þar saman ljóðræn fegurð og þjóðfélagsádeila. Hina skáldlegu fegurð er einkum að finna í ástakvæðunum, sem þrungin eru heitri tilfinningu og klædd í snilld- arlegt ljóðform. í ádeilunum gætir ósjaldan byronskra áhrifa bæði í stíl og blæ kvæðanna, í duttlungakennd- um samruna glettni og alvöru, gulls og sora. Þorsteinn Erlingsson taldi sig vera, og að mörgu leyti réttilega, fylgjanda Georgs Brandesar og raunsæisstefnu hans; en í áhuga Þorsteins á málum alþýðunnar og jafnaðarmennsku skildi á með hon- um og meistaranum, er aldrei að- hylltist þær skoðanir og hneigðist meira að segja, á síðari árum, að ofurmennadýrkun. Auk þess mat Þorsteinn jafnan mikils og dáði hin eldri íslenzku samtíðarskáld sín, er öll ortu í anda rómantísku stefnunn- ar. Hann var alla daga mikill aðdá- andi fortíðarinnar, og sambærileg var ást hans á íslenzkum fornbók- menntum og menningu. Þannig var
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.