Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1959, Page 60
42
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
að Játvarður hafi verið góður mað-
ur og guðhræddur og kallar hann
hinn sannheilaga konung (sanclissi-
mus rex). Er þetta ritað löngu fyrr
en Játvarður var kanóniséraður.
Saxo Grammaticus segir þar á móti,
að Játvarð hafi einkennt gáfna- og
aðgerðarleysi (siolidiias ei desidia),
og er þetta einsdæmi. íslenzkir
sagnaritarar eru á öðru máli og er
Snorri Sturluson gott dæmi um það.
í Heimskringlu segir hann, að Ját-
varður hafi verið kallaður „hinn
góði“, og bætir við „hann var svo“.
Enn fremur segir hann, að enskir
menn telji hann helgan. Til er og
enn, sem fyrr getur, saga Játvarð-
ar góða á íslenzku, en hvenær hún
er samin, veit ég ekki.
Dálæti á Játvarði á fyrri öldum
var ekki einskorðað við sagna- og
helgisagnaritara. Á miðöldum voru
hann og Tómas helgi erkibiskup í
Kantaraborg aðaldýrlingar Eng-
lands. Helgi hins fyrrnefnda þótti
koma upp snemma, ef til vill í lif-
anda lífi, og eftir andlát hans var
fljótt hafizt handa um að taka hann
í dýrlinga tölu. Stóðu framarlega
eða fremst að þessu enskir konung-
ar. Virtist og þetta ætla að takast
1139, en innbyrðis óeirðir komu í
veg fyrir, að svo yrði. Þó dróst þetta
ekki lengi. Árið 1161 tók Alexander
II páfi Játvarð formlega 1 dýrlinga
tölu, og 13. október nokkrum árum
seinna lét Tómas erkibiskup taka
upp dóm hans í viðurvist Hinriks II
Englandskonungs. Óx nú mjög til-
trú á Játvarði og náði ef til vill há-
marki sínu á ríkisárum Hinriks III
(1216—1272). Hann fékk því til leið-
ar komið árið 1237, að messudagur
Játvarðar var tekinn upp á dýrlinga-
skrá almennrar kirkju. Á messudag
dýrlingsins gekk Hinrik í prócessíu
berfættur og berandi sem offur til
hans kristalkrús, en í henni var hið
dýrmæta blóð Drottins vors. Ekki lét
hann heldur þar við sitja. Árið 1241
lét hann hefja smíð á nýju skríni
undir jarðneskar leifar Játvarðar.
Var það gert úr gulli og gimsteinum,
og er sagt, að það hafi kostað um
£66,000, áður smíði var lokið. Var
helgur dómur Játvarðar fluttur i
það 1268. Þá má og geta þess, að
Hinrik gaf elzta syni sínum nafn
dýrlingsins og hafa sjö aðrir kóngar
Englands borið það síðan. Nokkru
eftir andlát Hinriks, lét sonur hans,
Játvarður I, færa lík föður síns á
veglegri stað (excelsiore loco) í ná-
grenni við skrín Játvarðar góða, en
eins og vitað er, stóð það í klaustur-
kirkju St. Péturs í Westminster, sem
að vísu var nú miklu veglegri bygg'
ing en sú, sem Játvarður lét reisa,
og þar hlaut hann legstað 6. janúar
1066.
En það var ekki aðeins fyrir hinar
kristilegu dyggðir, sem Játvarður
var dáður, heldur, eins og fyrr getur,
fyrir þann frið og þau góðu lög, sem
einkenndu ríkisstjórn hans. Að visu
er ekki kunnugt, að Játvarður setti
lög sjálfur á ríkisstjórnarárum sin-
um, þó vel megi það vera, en nokkr-
um árum eftir dauða hans birtust
lagasöfn, sem kennd eru við hann,
og varð það siður, að konungar sóru
þess krýningareið að varðveita log
Játvarðar góða. Er þetta vottur þess,
hve ríkisár hans voru álitin hafu
verið friðsöm og réttvísi mikil a
hans dögum.
Auðséð er því, að á miðöldunum
og lengur var Játvarður góði hylh
ur fyrir guðrækni, jarteiknir, °&
listhneigð, og þar að auki fyrir