Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1959, Side 64

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1959, Side 64
46 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA á fund frænda síns, Vilhjálms bast- arðs, og tilkynnti honum, að hann ætti að taka við ríki á Englandi eftir sinn dag. Er og sagt, að Vilhjálmur hafi þá um veturinn heimsótt Ját- varð, sem tók á móti honum með mestu blíðu. Það er skoðun mín, og hefi ég reynt að leiða rök að henni í öðru ritsmíði,1 að Guðina hafi ekki tekizt að ná sættum við konung og fá land- gönguleyfi, fyrr en hann sór þess eið, að þessi ráðstöfun Játvarðar um ríkiserfðir skyldi metin góð og gild og gaf sem gísla Vilhjálmi til hand- ar son sinn og sonar son. Þannig voru þá fyrstu ríkisstjórn- arár þessa athafnalausa heilaga hálf- vita, sem enn sat á ríkisstóli. Guðini dó 1053 og tók þá sonur hans, Har- aldur, við völdum hans og varð æðsti ráðgjafi konungs. Tókst honum að hefja yngri bræður sína til jarls- tignar og landa, þá Tósta, Gyrð og Lífvin, en Sveinn hafði látizt 1052 á heimleið frá Jerúsalem í píla- grímsferð. Það var um eitt skeið álit mitt, að frá því 1052 hefði Játvarður góði setzt í helgan stein og látið Harald fara með völd, en við frek- ari lestur heimilda er ég horfinn frá þeirri skoðun, og skal nú greina aðeins eina ástæðu fyrir þessum skoðanamun. Haraldur mun snemma eftir and- lát föður síns hafa farið að renna girndaraugum til konungstignar, eða að minnsta kosti allra valda í land- inu, eftir daga Játvarðar. Þetta gat þó ekki tekizt, ef að ráðstöfun sú, er konungur hafði gert við Vilhjálm bastarð um ríkiserfðir, stæði óhögg- uð, en lítil von var, að Játvarður gengi bak orða sinna. Nú var kon- ungur eini maður hinnar engil- saxnesku konungsættar uppistand- andi á Englandi. En ættin var ekki útdauð alls staðar. Börn Játmundar járnsíðu höfðu eftir dauða föður síns flúið til Ungverjalands og fund- ið þar griðastað. Þar var enn á lífi elzti sonur Játmundar, nafni Ját- varðar góða, en auðkenndur með titlinum eðlingur. Allt, sem nú skal greina, er mjög á huldu, og verður að láta getsakir nægja, en um 1054 hugkvæmdist einhverjum, og varla er um annan að ræða en Harald, að senda eftir Játvarði eðlingi og gera hann að ríkisarfa. Kom hann og son- ur hans, smádrengur að nafni Ját- geirr, til Englands 1057, en svo illa fór með þessa ráðagerð, að eðlingur- inn dó, áður en hann næði tali af föðurbróður sínum. Er það ætlun mín, að konungur hafi þrjózkazt við að rjúfa loforð sitt við Vilhjálm jarl og Játvarður eðlingur svo dáið, áður en hægt var að koma ráðstöfun Har- alds í kring. Enda sýnist konungur hafa setið við sinn keip. Nokkrum árum seinna sendi hann Harald sjálfan til Vilhjálms að tryggí3 samninga þeirra. Hér sór Haraldur jarli trúnaðareið, með þeim afleið' ingum, sem allir muna, árið 1066. Víst mætti lengi halda áfram og ræða vandamál seinni ríkisstjórnar- ára Játvarðar2 — innanlandsóeirðm vegna valdastreitu milli Haralds og Elfgeirs jarls, ósamlyndi þeirra bræðra, Haralds og Tósta, styrjai ir við nágrannalönd að norðan og vestan, o. s. frv. — en hér skal sta ar numið. Seinustu ár ævi sinnar var Játvarði mest áhugamál ing hinnar veglegu klausturkir 3 St. Péturs í Westminster, en Þ verki lauk í árslok 1065. Var kirkja^ vígð 28. desember, en ekki átti 3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.