Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1959, Qupperneq 67

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1959, Qupperneq 67
GÍSLI JÓNSSON: Bækur Richard Beck: VIÐ LJÓÐALINDIR Þetta eru aS mestu lýrisk ljóð, náttúrusöngvar, eða minnsta kosti náðu þau mestum tökum á mér. Þá eru þessu næst nokkur kvæði um mannfélagið, ýmislegs efnis, og svo minni, eins og gengur. Ekkert ís- lenzkt skáld sleppur við þau alger- lega — samkomur, gestaboð, silfur- °g gullbrúðkaup, erfiljóð o. s. frv. Hér er að vísu ekkert nýtt: Vor- sól og döggvar, blóm og tré, nótt og dagur, haust og vetur og snjór, vötn °g dalir og fjöll, snortið af hinni innri vitund um tilveruna í heild. Og myndirnar eru yfirleitt skýrt dregnar og söngtónninn hreinn. En þær eru nærri alltaf íslenzkar. Mað- Ur mætti þó ætla, að maður, sem búið hefir meira en helming þrosk- aðrar ævi í stærra landi, við stærri vótn, fjarðabreiðar elfur, rishærri °g víðáttumeiri fjöll, fjölbreyttari groður og skóga, sýndi þess einhver veruleg merki. En svona er íslend- iugseðlið. Þessi sýnilega mynd ljóðagjörðar, svo mætti að orði kveða, er ekk- ert einsdæmi. Flest íslenzk ljóðskáld eru sama markinu brennd. Ég hefi 0sjaldan rekizt á það hjá okkar svo- Uefndu stórskáldum, að hugsunin er ekki eins ný og þeir mundu óska að lesendurnir héldu. En hún kann að Vera framsett á annan eða óvenju- egri hátt en við áttum að venjast — úningurinn skrúðmeiri eða eftir nýrra sniði. Nú, auðvitað auka skrúðklæði á kvenlega fegurð, svo dæmi sé tekið, en jafnvel í hvers- dagsklæðum eða auk heldur í tötr- um dylst sönn fegurð aldrei. Sagt er, að sumir stjórnmálamenn og aðrir önnum kafnir athafnamenn lesi spæjarasögur og morðsögur til þess að dreifa huganum og létta af sér oki dagsins. íslendingar yrkja oft í sama tilgangi. Dr. Beck er einn þeirra, að ég held. Hann yrkir ekki ýkjamikið, a. m. k. ekki á seinni tíð; en hann vandar formið. Og vafalítið er þetta hans aðferð til að gleyma erlinum og lífsstritinu, og er það eins og það á að vera. Ljóðagerð er ekki eða ætti ekki að vera atvinnu- grein. Hún er ekki í eðli sínu íþrótt, þótt forfeður vorir teldu hana svo. Hálaunaðir íþróttamenn hætta að hafa unað af íþróttinni sjálfri — festa aðeins auga á arðinum — svo kann að fara með bókmenntirnar. Ég hallast enn að skoðun alþýðu- skáldsins, sem orti sér til hugar- hægðar, en hvorki sér til lofs né frægðar. AUSTURLAND, 5. bindi. í orðsins vanalega skilningi er „Austurland“ víst ekki tímarit; en samt eru nú komin út af því fimm bindi og það sjötta í aðsigi. Á titil- blaðinu er það kallað „Safn aust- firzkra fræða“, og er það sannnefni. Ýmsir góðir Austfirðingar hafa stað- ið að útgáfunni og skrifað í ritið. En
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.