Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1959, Blaðsíða 91
þingtíðindi
73
þaS samkvæmt beiðni hlutaðeigenda.
Kvöldskóla fyrir yngra fólk, sem hug
hefir á að kynnast frumatriðum íslenzkr-
ar tungu, hefi ég nú haft um skeið á
heimili mínu. Sautján stúdentar innrit-
uðust í þetta námskeið. Aðsókn því
mjög góð. Miklu betri en ég hafði þorað
að vona.“
Ég vil bæta því við, að kennsla þessi
er algerlega ókeypis, og á Haraldur pró-
fessor miklar þakkir skilið fyrir þessa
ágætu kennslustarfsemi sína í íslenzku.
Þá hefir varaféhirðir félagsins, Mrs.
Hólmfríður Daníelsson, kennt nokkrum
ungum stúlkum íslenzku í heimahúsum,
og telur það hafa borið góðan árangur.
Ber henni þökk fyrir þá viðleitni sína.
Deildin „Esjan“ í Árborg hefir einnig
í ár leitazt við að halda uppi æfingum
í söng og upplestri fyrir börn og ungl-
inga, þó að ýmsar ástæður hafi orðið þar
nokkur þröskuldur í vegi; eigi að síður
tóku nokkur börn og unglingar þátt í
tveim samkomum í byggðinni með upp-
lestri og söng á íslenzku. Mörgum mun
okkur einnig í fersku minni hinn ágæti
upplestur barna þeirra Gunnars Sæ-
mundssonar hjónanna í Árborg á kvæð-
um Guttorms skálds Guttormssonar á
samkomunni hér í borg honum til heið-
urs, er síðar mun getið.
Af hálfu deildarinnar á Gimli hafa þær
Mrs. Laurence Stevens og Mrs. Sylvia
Kárdal haldið uppi kennslu íslenzkra
söngva og lesturs, en undirleik fyrir ís-
lenzka söngflokkinn annast ung stúlka,
Carolyn Martin. „Hún talar vel íslenzku
og er þó aðeins 14 eða 15 ára gömul,“
bætir Mrs. Kristín Thorsteinsson, for-
seti deildarinnar á Gimli, við í bréfi til
uun. Deildin hafði alíslenzka samkomu
22. ágúst í sumar, og þegar er ákveðið,
ap unglingarnir taki þátt með íslenzkum
song og upplestri í Sumarmálasamkomu
24. apríl næstkomandi. Vil ég í félagsins
uafni þakka ofannefndum deildum ágæta
ýiðleitni þeirra að íslenzkukennslu og
songfræðslu, og þá um leið öðrum deild-
um félagsins, sem ef til vill halda uppi
slikri fræðslu, þó að mér hafi eigi borizt
megnir um það, en augljóst mál er það,
hv®rt grundvallaratriði er hér um að
Ej*®a í þjóðræknisstarfi voru. f mjög
mygljsverðu bréfi til mín víkur Mrs.
bterdís Eiríksson í Árborg að þörfinni á
hentugum kennslubókum, og ber oss að
taka þá hlið málsins til alvarlegrar at-
hugunar, þegar fræðslumálin koma til
Umræðu hér á þinginu.
Samvinnumál við ísland
, Þau mál hafa aftur á liðnu ári verið
vrA a marSþætt, og þarf ekki að fjöl-
yröa um það, hver meginþáttur fram-
haldandi ættar- og menningartengsla
yfir hafið eru í starfsemi félags vors.
Margir íslendingar héðan vestan um
haf heimsóttu ættlandið á árinu, meðal
þeirra hinn gamli og góði félagsbróðir
vor og fyrrverandi forseti deildarinnar
„Frón“, Soffonías Þorkelsson, og var
frú hans einnig með í förunni. Ekki fór
hann erindisleysu til ættjarðarinnar að
þessu sinni fremur en áður. Eins og
skýrt hefir verið frá í blaðafregnum, til-
kynnti hann í heimferðinni, að hann
hefði ákveðið að gefa 100 þúsund krónur
til skógræktar í Dalvíkurhreppi, en áður
hafði hann gefið ríflega fjárhæð til skóg-
ræktar á fæðingarstað sínum, Hofsá. Þar
sem Þjóðræknisfélagið hefir um mörg ár
haft skógræktramálið á dagskrá sinni og
stutt það eftir mætti, þykir mér vel
sæma að geta hér sérstaklega stórgjafar
hins mæta félagsbróður vors til eflingar
því þjóðþrifamáli. Sé honum heiður og
þökk fyrir höfðingskapinn og ræktar-
semina til átthaganna!
En brú heimsóknanna yfir hafið hefir
á liðnu ári verið byggð frá báðum
ströndum, eins og vera ber. Vér höfum
átt að fagna mörgum ágætum gestum og
kærkomnum heiman um haf. Hinn víð-
kunni fræðimaður, dr. Einar ól. Sveins-
son, prófessor í íslenzkum bókmenntum
við Háskóla fslands, sem var í fyrirlestr-
arferð um Bandaríkin í boði utanríkis-
ráðuneytis þeirra, heimsótti oss einnig,
ásamt frú sinni, og flutti hér í borg á
vegum Þjóðræknisfélagsins fyrirlestur
um „Gildi íslenzkra fornsagna", sem
mikill rómur var gerður að. Hann flutti
einnig við jafnágætar undirtektir fyrir-
lestra um íslenzk efni bæði á Manitoba-
háskóla og Ríkisháskólanum í Norður-
Dakota. Mun komu þeirra hjóna á vorar
slóðir lengi minnzt með þakklæti af
hálfu fólks vors, en margir í þeirra hópi
kunna enn vel að meta heimsóknir slíkra
fræðimanna.
Á liðnu ári gerðust einnig þau tíðindi
í samvinnumálunum yfir hafið, að þá-
verandi forsætisráðherra fslands, herra
Hermann Jónasson, skipaði fimm manna
nefnd til þess að vinna að auknu sam-
starfi og kynningu milli íslendinga aust-
an hafs og vestan, á grundvelli tillagna,
sem Árni Bjarnarson, bókaútgefandi á
Akureyri, hefir samið að tilhlutun ríkis-
stjórnarinnar. Nefndarmenn eru: Árni
Bjarnarson, sem er formaður, Benjamín
Kristjánsson, prestur að Laugalandi í
Eyjafirði, Egill Bjarnason, auglýsinga-
stjóri, Reykjavík, Hallgrímur Fr. Hall-
grímsson, aðalræðismaður K a n a d a,
Reykjavík, og Steindór Steindórsson
yfirkennari, Akureyri.
Af hálfu stjórnarnefndar vorrar hefi
ég skipað ritara, próf. Harald Bessason,