Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1959, Blaðsíða 92
74
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
varaféhirði, Mrs. Hólmfríði Daníelsson,
og varafjármálaritara, Ólaf Hallsson, til
þess að athuga hinar ofannefndu og fjöl-
þættu tillögur Árna og leggja álit sitt á
þeim fyrir þingið til frekari ályktana.
Tillögur þessar birti Árni fyrst í sérstök-
um bæklingi, en síðan í ritinu Eddu,
ásamt með ritgerðum um samstarfið við
oss Vestur-íslendinga og kveðjuávörp-
um til vor frá fjölmörgum forystumönn-
um heima á ættjörðinni, með forseta ís-
lands, herra Ásgeir Ásgeirsson, í broddi
fylkingar. Hefi ég áður í blaðagrein vak-
ið athygli á riti þessu og hinum mikla
góðhug í garð vor fslendinga vestan
hafs, sem þar kemur fram, en nú vil ég
á þessum vettvangi þakka öllum, sem
þar eiga hlut að máli, hjartanlega í nafni
félags vors.
Eins og kunnugt er, komu þrír af fyrr-
nefndum nefndarmönnum, þeir Árni
Bjarnarson, Steindór Steindórsson og
séra Benjamín Kristjánsson, ásamt með
frú Gerði Bjarnarson og Gísla Ólafs-
syni, lögregluvarðstjóra á Akureyri,
hingað vestur um haf í sumar, með það
markmið sérstaklega fyrir augum að
safna efni í vestur-íslenzkar æviskrár,
og unnu þau að því verki fram í sept.
Varð þeim allvel ágengt, þegar á allt
er litið, en um það vísa ég að öðru
leyti til kveðju þeirra og greinargerðar
í hinum íslenzku blöðum vorum. En
betur má, ef duga skal, svo að þetta verk
nái fullum tilgangi sínum. Vil ég ein-
dregið hvetja fslendinga í landi hér til
þess að sinna sem greiðlegast beiðnum
þeirra félaga um æviskrár, og stuðla með
þeim hætti að útgáfu þessa merka rits,
sem hér er stofnað til, og getur haft víð-
tæka þýðingu, ekki sízt fyrir framtíðina.
Stjórnarnefnd félags vors átti fund
með þessum heimsækjendum, bæði er
þeir komu og eins áður en þeir hurfu
heim um haf, og greiddi götu þeirra eftir
mætti; hið sama gildir um fjöldamörg
önnur félagssystkini vor og aðra fslend-
inga víðs vegar um álfuna. Sem starfs-
mann við skráningu ævisagnanna réði
nefndin að heiman félagsbróður vorn,
Davíð Björnsson bóksala hér í borg, og
er hann framvegis umboðsmaður nefnd-
arinnar, ásamt með mörgum öðrum fs-
lendingum hér vestan hafs, sem taldir
eru upp í fyrrnefndri greinargerð nefnd-
arinnar í blöðum vorum. Aðalritstjóri
verksins á íslandi er séra Benjamín
Kristjánsson, og má einnig senda út-
fylltar æviskrár beint til hans. f sam-
bandi við komu Steindórs Steindórssonar
yfirkennara má geta þess, að hann var
ræðumaður á íslendingadeginum á Gimli
og flutti erindi á samkomum deilda fé-
lags vors bæði þar og í Árborg og Winni-
peg. Þökkum vér honum það þjóðrækn-
isstarf og þeim öllum, sem að heiman
komu í fyrrgreindum erindum, kærlega
heimsóknina, áhugann á samskiptunum
við oss og það nytjaverk, sem þeir hafa
með höndum með söfnun og samningu
æviskránna.
Kem ég þá að þeirri heimsókninni
heiman um haf á liðnu ári, sem víðtæk-
asta athygli vakti meðal íslendinga hér
í álfu, en það er koma og söngför hinn-
ar víðkunnu íslenzku söngkonu, ungfrú
Guðrúnar Á. Símonar, á vorar slóðir.
Þjóðræknisfélagið og Canada - Iceland
Foundation stóðu í sameiningu að heim-
sókn söngkonunnar og ferðum hennar.
Aðalsöngsamkomu sína hélt söngkonan
í Playhouse leikhúsinu hér í borg hinn
5. nóvember undir umsjón Celebrity
Concerts (Canada) Ltd. í samvinnu_ við
fyrrnefnd félög. Var samkoman prýðis-
vel sótt, um 800 manns, og vakti söng-
urinn mikla hrifningu áheyrenda, enda
hlaut söngkonan að verðugu ágæta
dóma hljómlistargagnrýnenda stórblað-
anna hér í borg. Söngkonan hélt einnig
samkomur á vegum þjóðræknisdeildanna
í Árborg, á Gimli og í Vancouver, og
undir umsjón Kvenfélagsins „Freyju“ i
Bellingham og Lestrarfélagsins „Vestra
í Seattle, nær alls staðar við mikla að-
sókn og hvarvetna við frábærar undir;
tektir áheyrenda. Hún söng einnig i
kanadíska útvarpið og sjónvarpið. For-
seti hafði, í samvinnu við séra Ólaf
Skúlason á Montain, gert ráðstafanir tu
þess, að ungfrú Símonar héldi söngsam-
komu þar, en það fórst fyrir vegna ih'
viðra og ófærra vega um þær mundir,
öllum suður þar til hinna mestu von-
brigða.
Nefndina, sem undirbjó samkomur og
ferðir söngkonunnar, skipuðu þau Walter
J. Lindal dómari, formaður, Mrs. Hólm-
fríður Daníelsson og Grettir L. Jóhanns-;
son ræðismaður. Forseti átti einnig saeti
í nefndinni í embættisnafni, en af ýmS'
um ástæðum féll nefndarstarfið aðalleg"
á herðar hinna í nefndinni. Þakka eg
þeim mikið og ágætt starf, og Tne
Canada-Iceland Foundation ánægjuleg“
samvinnu að þessu máli. Hér í Þ°r|
dvaldi söngkonan í gistivináttu Þ®irr_
dr. Kristjáns J. Backman og frúar hani>
og vil ég í félagsins nafni þakka þein
hjónum þann höfðingskap þeirra.
En ungfrú Guðrúnu Á. Símonar
um vér innilega komuna, góð kynm,, °
fagran söng, sem lengi mun lifa í ÞýKna
látum hugum allra þeirra, sem a ua
hlýddu. Vér óskum henni blessunar &
nýrra sigra á söngbrautinni í framti
inni. Með komu sinni jók hún á hr°o _
íslands og íslendinga, og með hei
sókn hennar er ofinn nýr þáttur
minnisstæður í menningarlegum sa
skiptum íslendinga yfir hafið.