Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1959, Síða 98
80
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
Ársskýrsla þj óðræknisdeildarinnar
„Báran", N. Dak.
Skýrsla Báru árið 1958. Ársfundur
Báru var haldinn í skólahúsinu að
Mountain N. D. 1. febrúar 1958. Fund-
inn setti varaforseti. Báru í fjarveru
forseta, S. A. Björnson, og þessir kosnir
í embætti fyrir árið 1958:
H. B. Grímson forseti, S. A. Björnson
varaforseti, V. A. Björnson skrifari, A.
M. Ásgrímsson varaskrifari, Joseph And-
erson féhirðir, H. J. Björnson varaféhirð-
ir, O. G. Johnson fjármálaritari, og Paul
B. Ólafson varafjármálaritari, H. J.
Hjaltalín skjalavörður.
Báran hefir haldið sjö fundi á árinu,
þrjá almenna félagsfundi og fjóra stjórn-
arfundi. Báran hefir nú 50 meðlimi.
Deildin stóð fyrir 17. júní-haldi í sum-
ar, og tókst samkoman ágætlega með
sæmilegri aðsókn. Svo stóð hún fyrir að
hjálpa þeim félögum Árna Bjarnarsyni
að safna í bók þeirra, sem þeir ætla að
gefa út á íslandi í nálægri tíð. Hér í
byggð var að vinna að þessu starfi Stein-
dór Steindórsson, yfirkennari á Akur-
eyri. Þeir, sem fóru í kring hér í byggð
úr Báru, voru S. A. Björnson, Paul B.
Ólafsson og H. B. Grímson með Stein-
dóri, og gekk starfið fremur vel.
Þá kom skeyti frá nefnd þeirri í Seat-
tle, Wash., sem stóð fyrir afmælissam-
sæti fyrir skáldkonuna Jakobínu John-
son, þess efnis, hvort Báran vildi taka
þátt í því samsæti, sem var haldið 19.
okt. 1958 í Seattle, og sendi Báran skeyti
til hennar.
Það síðasta á árinu fyrir Báru var að
undirbúa söngsamkomu fyrir Guðrúnu
Á. Símonar, sem halda átti 26. nóv. 1958,
sem fór allt út í veður og vind, og varð
ekkert af samkomunni. Svo óskar Báran,
að þingið verði fróðlegt og skemmtilegt.
Kær kveðja til alls þingheims ykkar.
Á árinu 1958 hafa þessir meðlimir
Báru dáið:
Ted Vatnsdal, Hensel, N. Dak.,
Oddur Sveinsson, Gardar, N. Dak.
H. B. Grímson
Sr. ólafur bar fram þá tillögu, að
skýrslan yrði viðtekin. Ólafur Haílson
studdi, og var skýrslan samþykkt.
Ritari las ársskýrslu þjóðræknisdeild-
arinnar „Aldan“ í Blaine, Washington.
Ársskýrsla þj óðræknisdeildarinnar
„Aldan"
Árið 1958 hafði þjóðræknisdeildin
„Aldan“ í Blaine tvo almenna fundi og
tvo stjórnarnefndarfundi. Tvær sam-
komur voru haldnar á árinu, sú fyrri
24. jan. til arðs fyrir elliheimilið Staf-
holt. Skemmtiskrá var fjölbreytt, en
ræðumaður var sr. Friðrik A. Friðriks-
son, prófastur frá Húsavík á íslandi.
Samkoman var ánægjuleg og gaf $65.00
í inntektir. Til minningar um fullveldi
íslands var 17. júní haldinn hátíðlegur
með ..almennri skemmtisamkomu. Var
hún vel rómuð og aðsókn góð. Skemmti-
krafta lögðu fram forseti deildarinnar og
byggðarfólk. Til elliheimilisins voru
gefnir $100.00 eins og undanfarin ár.
Ritara deildarinnar var gerð heimsókn
með þar að lútandi viðhöfn á 80 ára
afmæli hennar. Hátíðabrigði voru það,
að forseti Þjóðræknisfélagsins, dr. Rich-
ard Beck sat júlí fund okkar.
Séð var um kosningu þriggja manna
í íslendingadagsnefnd fyrir Blaine og
nærliggjandi umhverfi.
Aldan getur ekki látið ógert að lýsa
djúpri hryggð og votta dr. Beck og börn-
um hans innilega hluttekningu í þeirri
þungu sorg, sem þeim bar að höndum
við missi sinnar ágætu og mikilhæfu
eiginkonu og móður. Hún lézt 4. okt.
s. 1. Blessuð sé minning hennar.
Meðlimatala er hin sama og í lok árs-
ins 1957 eða 31. Þjóðræknisdeildin „Ald-
an“ í Blaine, Washington sendir hinu
fertugasta ársþingi Þjóðræknisfélags is-
lendinga í Vesturheimi alúðarkveðjur og
einlæga ósk um heppilega úrlausn allra
mála og sem ánægjulegast þing.
A. E. Kristjánsson forseti
Dagbjört Vopnfjörð ritari
Flutningsmaður gerði að tillögu sinni,
að skýrslan yrði viðtekin. ólafur Hall-
son studdi, og var skýrslan samþykkt.
Þá var tekið fyrir næsta mál á dag-
skrá, þ. e. a. s. skýrslur deilda.
Ritari, Haraldur Bessason, las árs-
skýrslu „Fróns“.
Ársskýrsla deildarinnar „Frón"
í Winnipeg
Deild vor hefir til margra ára vel'V
eini félagsskapurinn í Winnipeg-borg,
sem eingöngu hefir haft það að þiarK'
miði að halda uppi íslenzkum samkom-
um. Þörf á slíkum samkomum og u
leið aðsókn að þeim fer að_ V1SU
minnkandi ár frá ári, eftir því sem f°1K.
hverfur. Enn er samt á þessu sviði ve
að vinna, og stóð deildin fyrir átta sau
komum á árinu. Frónsmótið var ,ein?
að undanförnu veigamest og þótti taKa
ágætlega. Það var haldið 24. februar S. •>
og var prófessor Haraldur Bessason ao
ræðumaður. Aðsókn var um 240 man ■
Gestir frá íslandi á vegum okkar v .
þeir séra Robert Jack, Steindor Ste