Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1959, Qupperneq 107
þingtíðindi
89
Með þessu síðasta bréf frá Hákoni
Bjarnasyni fylgdi kvittun fyrir $54.00,
22 félaga og Esjunni í Árborg.
Marja Björnsson.
Einnig las frú Marja Björnsson skýrslu
millibinganefndar í minjasafnsmálinu.
Skýrsla um minjasafnið
, f þessu máli hefir nefndinni lítið orðið
agengt á síðastliðnu ári, en málinu hefir
þó verið haldið vakandi, og hef ég á
ferðalögum mínum minnzt á þetta við
fólk bæði hér í íslenzkum byggðarlög-
um og eins vestur við haf. Má segja, að
rnálefninu hafi verið vel tekið, þó að
sýnilegur árangur hafi lítill orðið að svo
stöddu. Nokkrir munir hafa þó komið
inn og hef ég birt lista yfir þá ásamt
gefendum í Lögbergi nýlega. Listinn er
ekki langur, og vil ég því leyfa mér að
lesa hann upp í heild sinni, svo hann
verði bókaður í þingtíðindum okkar. Og
um íeið og ég geri það vil ég láta í Ijós
kærar þakkir til þess fólks, sem hefir
Pannig sýnt vilja sinn í verkinu með því
að láta af hendi umrædda muni:
1. Pennastöng, gefin af Gísla Johanns-
son, Selkirk. Honum gaf Guðjón Frið-
riksson, sem eitt sinn var barnakennari
1 Reykjavík á íslandi, nú dáinn í hárri
elli á Betel. Penninn er sagður vera 150
ara gamall.
2. Eldspýtukassi, gefinn af Gesti Jo-
hannsson, Selkirk. Honum gaf Jón Árna-
son,_ Piney, Man. Kassinn sagður vera
100 ára, úr hálfri kindarklauf silfurbúnni,
Iheð loki á hjörum og á lokið eru staf-
irnir Þ. E. grafnir.
3. Bíldur, gefandi Daníel Pétursson,
■Betel, Gimli, Man.
4. Brauðkefli, smíðað af Trausta Vig-
fussyni 1898. Hafði hann flutt með sér
gamlan rennibekk frá fslandi og smíðaði
við hann ýmsa nytsama muni. Gefið af
ekkju Trausta, Rósu.
5. Kaffikvörn, gefandi Rósa Vigfússon,
Árborg, Man. Kvörnin var keypt á ísa-
firði 1896.
6- Tóbaksponta, tóbaksdósir og þrjár
gamlar bækur, gefandi Jón Johnson, for-
seti Fróns.
' \??ortól, gefandi Johannes Christie;
P^búi Jóns Jónssonar á Snæringsstöðum
1 tmnadal, Húnavatnssýslu.
Ég vil þá minna á það, að þó að vísu
Itlargt fólk hafi tekið vel í málið, hefir
arangurinn ekki orðið eins mikill og
mskilegt hefði verið. Hef ég áður bent á
Pað, að æskilegt væri að deildir Þjóð-
ræknisfélagsins tækju þetta mál að sér
og ynnu að munasöfnun hver í sinni
byggð, og með því eina móti mætti búast
við nokkrum verulegum árangri. Ég lít
svo á, að ef deildirnar vildu taka málið
að sér, þá yrði því bezt ágengt og mestar
líkur til þess að það nái tilgangi sínum.
Ég legg því til, að þingið fari þess á
leit við deildirnar að taka málið að sér
og vinna að því á hvern þann hátt, sem
þeim hugkvæmist, að muni bera beztan
árangur.
Að endingu vil ég geta þess, að nefnd-
in kom sér saman um að skrifa öllum
forsetum deildanna og fara fram á, að
deildirnar tækju þetta mál upp á fund-
um sínum í því augnamiði að sjá á
hvern hátt þær geta bezt orðið þessu
máli að liði, og kemur eflaust fram á
þinginu greinargerð um það, hvort nokk-
uð hefir frekar gerzt í því.
Marja Björnsson.
Tímóteus Böðvarsson lagði til, að
skýrslan yrði viðtekin með þökkum, og
var svo gert.
Frú Marja Björnsson skýrði enn frem-
ur frá því, að frú Rósa Jósephson, syst-
ir dr. Vilhjálms Stefánssonar landkönn-
uðar, hefði gefið minjasafninu myndir
af foreldrum þeirra systkina. Sýndi frú
Marja þinggestum, en þeir létu þakk-
læti sitt í ljós með lófataki.
Milliþinganefnd í minjasafnsmálinu
var að því búnu endurkjörin.
5. FUNDUR
hófst miðvikudagsmorguninn
25. febr., kl. 10
Séra ólafur Skúlason las álit þing-
nefndar í samvinnumálum við ísland.
Nefndarálif
í samvinnumálum við ísland
1. Þinginu er það ljóst, að tilvera Þjóð-
ræknisfélagsins byggist að miklu leyti á
sambandi og samvinnu við ísland, og
að framtíð félagsins er undir því komin,
að þessu sambandi verði haldið við.
2. Þingið fagnar því, að með vaxandi
tækni aukast samskipti vor Vestur-fs-
lendinga við stofnþjóðina, og að gagn-
kvæmur hlýhugur og samvinna eflast
með ári hverju.
3. Þingið þakkar Þjóðræknisfélagi ís-
lendinga á árinu alla fyrirgreiðslu og
frábæra gestrisni auðsýnda þeim Vestur-
íslendingum, sem heimsóttu ættjörðina
á síðastliðnu ári.
4. Þingið minntist með þakklæti heim-
sókna góðra gesta frá íslandi á árinu,
einkum þeirra próf. Einars Ól. Sveins-