Vísir - 24.12.1938, Blaðsíða 31

Vísir - 24.12.1938, Blaðsíða 31
VlSIR 29 ir 2 stólar liafi verið meðal þeirra þriggja, er Grundarkirkja átti 1613, og tekur liér af allan vafa bréf eitt, sem dtL. Jón Þor- kelsson þjóðskjalavörður hefir bent á í bréfabók Guðbrands Ijyslcups Þorlákssonar; er hún í arkarbroti og varðveitt í Þjóð- skjalasafninu í Reykjavík, en skjal það, sem hér er um að ræða, er á hls. 26J)—27a og er virðingargerð 11 tilgreindra manna, gerð á Grund árið 1551; eru þar tilgreindir meðal ýmsra gripa, er Þórunn Jónsdóttir liafði afln'iit Grundar-kirkjn, „stolar iij nyer skorner“. Þar sem stólar þessir eru þá nefndir nýir, munu þeir varla liafa verið meira en fárra ára í mesta lagi og verður eldvi nánar ákveðið en að þeir séu smíðaðir um eða litlu fyrir árið 1550. Eins og bent var á liér áður er sá stóll, sem áletrunin segir að liústrú Þórunn eigi, miklu lægri en liinn, og öll ástæða til að ætla, að stærri stóllinn sé ætlaður karlmanni. Af því að eg lít svo á, að smiðurinn liafi skorið A í miðkringluna á mið- fjölinni i framhlið stólsins, svo sem áður var getið, hefir mér komið til hugar að þar væri upphafsstafur eigandans, eða þess er stóllinn var ætlaður, og þá ekki Isleifs, bónda Þórunnar. En rúnamerkin á endunum lield eg séu þá nafn þess, er eiga skyldi stólinn: Ari. Er þar þá naumast um annan að ræða en Ara lögmann, bróður hústrú Þóruhnar. — Þetta er yitanlega óglögt og ósannanlegt og verð- ur því ekkert fullyrt um það. — Við þessa hugmynd koma konungs- og byskups-myndirn- ar á stólbakinu vel heim, en ein- hver ákveðin hugsun virðist vera á hak við það, að skera þær á stólinn einmitt þar sem mest har á þeim. — Þau syst- kynin Iiústrú Þórunn á Grund og Ari lögmaður voru nágrann- ar, þvi að Ari bjó helst i Möðru- felli; - kona hans var Halhlóra, dóttir Þorleifs ríka á Möðruvöll- um og mun Ari oft liafa verið þar. Ilann var lögmaður norð- an og vestan 1529—40, en 10 , siðustu ár æfi sinnar var hann ekki lögmaður, og á þcim síð- ustu þeirra mun stóllinn hafa verið smíðaður. Verður þá hvorttveggja eðlilegt, að þessi stóll sé smiðaður handa honum fyrir Þórunni systúr hans á Grund, og ems hitt, að stóllinn hafi aldrei frá Grund farið að Möðrufelli til Ara, þar eð svo stutt liefir verið á milli þess að stóllinn varð til og lífláts Ara 1550.— Ekki mun stóllinn gerð- Vtr handa bónda Þórunnar, þvi að hún var á milli manna ein- mitt á þessum árum. — Annað mál er það, að þessir tveir svip- líku stólar, sem liún gaf kirkj- unni eins og áður segir, 1551, þafa að líkindum verið stólar þeirra hjónanna, hennar og Þor- steins, síðasta manns hennar; minna má þó á það, að hún gaf 3 stóla kirkjunni, en óvist liversu þriðji stóllinn hefir ver- ið. — Stólar þessir eru meðal merk- ustu minjagripa íslenskra, sem enn eru til frá fyrri öldum, ekki að eins fyrir það live „góður er að þeim nauturinn“, heldur og af því, að þeir gefa svo góðar upplýsingar um íslenska skraut- list á tímabili, sem mjög fátt af slíkum gripum íslenskum er nú til frá, miðri 16. öld, og þeir eru svo snildarlega gerðir og svo á- gætlega útskornir, að þeir mega af því merkisgripir lieita. Út- skurðurinn er ríkulegur, upp- dættirnir margir og smekklegir, og frágangur prýðisfallegur. — Vitanlega er hér um íslenskan bænda-iðnað, heimilis-listiðnað, að ræða, og ekki listaverk há- lærðs tréskurðarmeistara; en því fóðlegri verða í rauninni þessi liandaverk, og að vissu leyti merkilegri fyrir menning- arsögu vora. Annar þessara stóla, stóll Þór- unnar, er nú hér á Þjóðminja- safninu. M. Þ. (úr Árb. Fornlf.) GLEÐILEG JÖL! Kjötverslunin Búrfetl, Laugavegi 48. GIÆÐILEG JÓL OG GOTT NÝÁR! Þakka viðskiftin. AMA TÖRVERSLUNIN Þ. ÞORLEJFSSON. “93? ¥1 Himinn er blúr og heilög kyrð á jörð, hafiö slétt. Ó hvílík töfrasýn! Máninn því bindur gulli skreytta gjörð, greypt er í flötinn mynd, er fagurt skín. Speglast í lygnu heilög ldminstjarna^ Hvílir ná ró í hjörtum jarðar-barna. Friður á jörðu, alt er undurldjótt. Á augnabliki er rofin lieilög kip-ö. Þrungin mætti er þessi helga nótt, þýtur í lofti, birtist konungshirð. Himneslc sveit með lofsöng laugar geiminn. Lýsir stjarna fögur dimman heiminn. / Betlehem varð bjart um þessa nótl. Þdð barst að ofan fregn. Ó, hvílík stund! Þann boðskap sungu englar blítt og rótt, en boðin fengu hjarðmenn úti’ á grund. Guði sé lof, nú frelsarinn er fæddur, hann fæddist eins og maður holdi klæddur. Sá boðskapur er nýr, hann eldist ei, og eilíf helgi Ijómar honum yfir. Ó, hvílík tign, er Idaut hin helga mey, í heiminn fæddi konung alls, sem lifir. 1 slcammdeginu skína heilög jólin, þau skína eins og fögur júnísólin. Það birtir svo, að hreysin verða hallir pg helgur friður býr í hjarta manns. Það birtir svo, að gleðjast allir, allir, sem eiga hlut í sælu himnaranns. Og hver vill elcki konungsarfi vera, lcrýnasl vegsemd, tignarnafnið bera. Hann fæddist snauður, ímynd auðmýktar, en englasveitir þyrptust kringum rúmið. Jatan litla konungshvíla var. Ó, hversu birti, flýði næturhúmið. Og stjarnan slcæra lýsir ennþá leiðir, leið iil himins öllum mönnum greiðir. H u g r ú n. CJ?ledíleg jól / HEILDVERSLUN GARÐARS GÍSLASONAR HVERFISGÖTU 4. jí«««»***>j«»«'*«»*»»,t»«t*fo«««'«»ViV|»***««ii»**»«»«****Mtt,*««««»,*««««»'t«»«^***^M***»« »««**«» *»*'«»« »»»*•»» ««***«««»«*•»»»***•»»«»»*•»»«»**♦»« »»«*•»«•>•*•••••' . ........................ 8 i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.