Vísir - 24.12.1938, Blaðsíða 32

Vísir - 24.12.1938, Blaðsíða 32
 30 VlSIR ð/óÍ777 og: ðörnÍ7t, JÓLASVEINNINN OG BÖRNIN. „Jólakarlinn kemur senn“ — þannig liugsa börnin fyrir jólin, í von — og vissu um, að jóla- sveinninn muni liafá eittlivað i pokahorninu handa þeim. — Og nú er hann kominn — og við skulum vona, að hann tiafi engum gieymt, — öll góð börn hafi eitlhvað fengið. —- Jólasveinninn, sem þið sjáið þarna á myndinni, er búinn að tæma sinn poka, og nú eru börnin að skoða með honum gjafirnar — ljómandi fallega myndabók meðal margs annars. Og börnin eru glöð og at- hugul á svipinn, þegar jólasveinninn skýrir fyrir þeim myndirnar. f. V •H’.a^.ajnúsóí OjQ, Aúscundsín. Þetta er sögukorn um tvær músatrítlur. Önnur var tiaga- mús, hin liúsamús. Það atvikað- ist svo, að þær kyntust, að liúsa- músin sat á sillu kjallaraglugga kvöld nokkurt og gægðist út, en þá bar liagamúsina að. Yfir húsamúsinni var stofugólfið, vfir hagamúsinni heiður liimin- inn. Og gegnum rúðuna horfði liúsamúsin á hagamúsina og hagamúsin á húsamúsina. „Af hverju kemurðu ekki út?“ spurði hagamúsin. „Af því að eg er húsamús,“ sagði hin svo sem til skýringar, „og mér þj'kir gott að búa í liúsi.“ En húsamúsin varð dálítið liugsi á svip og lagði litla trýnið alveg að rúðunni og klóraði sér svo bak við eyrað með annari litlu löppinni. „Eg gæti nú skroppið út sem snöggvast og skoðað mig um út í haganum.“ „Já, gerðu það, við skulum koma og horfa á tunglið,“ sagði tiagamúsin, „það er að koma upp.“ Og brátt, við birtu tunglsins hleika, sá hagamúsin húsamús- ina litlu koma tritlandi, en ekki vissi hún hvaða le-ið húp hafði fartö. Hagamúsin stóð upp á aftur- fótunum og veifaði til hennar. ,Hérna er eg. Komdu. Nú skulum við hlaupa.“ Og svo hlupu þær langa leið. „F.yrst af öllu ætla eg að sýna þér tré.“ Og hagamúsin benti á stórt birkitré, sem breiddi út lim sitt. „Ekkert jafnveglegt og fagurt og birkitré hefirðu séð innan fjögra veggja, það er eg viss um.“ „Þar er stór klukka, sem nær hér um bil frá gólfi til lofts. Og hún gengur allan sólarhringinn og segir tikk-takk, tikk-takk.“ „Ekki finst mér neitt til um það,“ sagði hagamúsin, „hvers virði er stofuklukka i saman- burði við tré i skógi ?“ „Hún gefur fólkinu til kynna hvað tímanum líður.“ En hagamúsinni fanst ekkert til um j>að og sagði: „Komdu, við skulum hlaupa yfir græna grundina. Ekkert er til svona srænt og miúkl og fallegt,“ sagði hagamúsm. „Ábreiðan i setustofunni'*. sagði húsmúsin, .Vitleysa," sagðt hagamúsin, „hel(Jurf5u, að gólf-úbreiðá standist nokkurn samanburð við græna grundina?“ „Hún er ekki vot,“ sagði húsamúsin. Hagamúsin leit á hana fyrir- litningaraugum. „Komdu með mér,“ sagði hún og svo liljóp liún að nokkurum ljómandi fallegum hagablóm- um, en af þeim var hin besta angan. „Andaðu að þér,“ sagði haga- músin, „hvílíkur ihnur! Hvað skyldi vera til i húsi, sem ilmar eins?“ „Vatn, sem kemur i flöskum og ef tappinn er tekinn úr þerst anganin um alla stofuna.“ „Heyr undur mikd,“ sagði hagamúsin, ,Já, og ef m,enn liella nokk- urum dropum i fötin sin ilmá þftU lapgá lengi,“ Hagamúsin var farin að reið- ast. Hún reis upp á afturfótun- um og benti á tunglið: „Littu á tunglið! Hvað lief- irðu í húsinu þínu svo fagurt i laginu og glæsilegt?“ „Ost,“ sagði húsamúsin. „Heyrðu nú,“ sagði hagamús- in spekingslega, „þú ætlar þó ekki að reyna að telja mér trú um, að ostur standist saman- burð við tunglið?“ „Hann er ætur,“ sagði haga- músin, „og meira til — hann er lostætur.“ Þá gafst hagamúsin upp. „Það er víst best, að hver uni við sitt. Eg í haganum nrinum —■ og þú i húskofanum þínum. Farðu heim, heillin, og haltu þar kyrru fyrir. Þar er þinn heimur.“ „Það geri eg og það þegar i stað,“ sagði húsmúsin, „og vertu sæl.“ / Og svo trítlaði hún af stað. Hagamúsin horfði á eftir lienni rétt sem snöggvast og hristi höfuðið. En að eins andartak, I haganum var svo margt fagurt á að horfa. Og þar ætlaði haga- músin að una alla sína daga, (Endursamið úr ensku). A. Th. k

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.