Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2008, Page 69
Lífeyrissjóður verkfræðinga var stofnaður haustið 1954. í samanburði við aðra lífeyris-
sjóði hefur sjóðurinn nokkra sérstöðu.
• Sjóðurinn hefur notað aldurstengt réttindakerfi frá upphafi og var lengst af eini
sjóðurinn sem notaði það. A síðustu misserum hafa nær allir lífeyrissjóðir tekið
það upp.
• Sjóðfélagar kjósa stjórn sjóðsins. Allir sjóðfélagar sem mæta á aðalfund hafa
atkvæðisrétt og allir sjóðfélagar eru kjörgengir. I flestum öðrum sjóðum tilnefna
vinnuveitendur helming stjórnarmanna en stéttarfélög kjósa eða tilnefna hinn
helminginn.
• Frá upphafi hefur sjóðurinn veitt sjóðfélögum hagstæð húsnæðislán. I rúm 20 ár
hefur sjóðurinn veitt sjóðfélögum veðlán með 3,5% raunvöxtum.
• Sjóðfélagahópur sjóðsins er ákjósanlega samsettur, sérstaklega hvað varðar
örorkulíkur, og ætti það að skila sér til lengdar í auknum hagnaði sem úthlutað er
til sjóðfélaga í formi aukinna réttinda.
• Sjóðfélagar eru háskólamenntaðir og vinna að mestu leyti störf sem reyna fremur
á huga en hönd, með mirmi slysahættu og mun minna líkamlegu sliti en almennt
gerist. Örorkulíkur eru með því lægsta sem gerist meðal lífeyrissjóða.
• Sjóðfélagar eru almennt vel launaðir og stunda eftirsóknarverð störf. Hvatinn er
því mikill að fara að nýju út á vinnumarkaðinn eftir að þeir hafa orðið fyrir
tímabundinni skerðingu á starfsgetu.
Séreignardeildir
Lífeyrissjóður verkfræðinga býður tvær leiðir í séreignarsparnaði.
Önnur fjárfestir eingöngu í innlendum skuldabréfum. Hin fjár-
festir bæði í innlendum og erlendum hlutabréfum og skulda-
bréfum. Báðar leiðirnar eru í stýringu hjá SPRON verðbréfum og
er einungis fjárfest í verðbréfasjóðum SPRON.
I janúar 2006 hóf sjóðurinn að ráðstafa þeim hluta samtryggingar-
iðgjalda sem er umfram 10% í séreignarsparnað sjóðfélaga. Þessi
aðgerð var kynnt sjóðfélögum ítarlega í fréttabréfi sjóðsins. Sjóð-
félögum var gefinn kostur á því að breyta þeirri stýringu til baka
í samtryggingardeild eða í séreignarleið 2. I janúar 2007 hækkaði
mótframlag atvinnurekenda almennt og þar með hækkaði
umframframlagið sem ráðstafað er í séreignarsparnað.
Sparnaðarleið 1: Fjárfest er í íslenskum skuldabréfum traustra fyrir-
tækja, fjármálastofnana, sveitarfélaga eða með ábyrgð ríkissjóðs,
einkum verðtryggðum, en hlutfall óverðtryggðra eigna ræðst af
vaxtastigi og verðbólguhorfum. I árslok 2007 var samsetning
sjóðsins þannig að 57% voru í stuttum skuldabréfasjóði, 25% í
löngum skuldabréfasjóði, 13% í ríkisskuldabréfum og 6% í
peningamarkaðssjóði.
Nafnávöxtun séreignarleiðar 1 var 8,9% á árinu 2007, en hrein
raunávöxtun var 2,8%. Lífeyrisgreiðslur námu 9,3 mkr. og hrein
eign til greiðslu lífeyris var 1.950 mkr. í árslok.
Séreignarleið 2: Fjárfest er í innlendum og erlendum hluta- og
skuldabréfum. Samkvæmt fjárfestingarstefnu er hlutfall hluta-
6.2%
2.8%
T$%
2003 2004 2005 2006 2007
■ Hrein raunávöxtun S1 i i hfrein raunávöxtun S2
-5 ára meöaltalSI
Hrein raunávöxtun
séreignaleiða.
2003 2004 2005 2006 2007
■ Hrein eign S1 □ Hrein eign S2
Hrein eign til greiðslu
lífeyris. í milljónum króna.
6 7
Félagsmál Vfí/TFÍ