Neytendablaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 8
Hátíð Ijóss og friðar?
Jólahaldið
komið úr böndunum
Séra Jón Dalbú Hróbjartsson, sóknarprestur í Laugarnes-
kirkju, er óhræddur við að fullyrða að jólahaldið sé komið úr
böndunum hjá þorra íslendinga. Hann er ómyrkur í máli og segir
að kirkjunnar menn hafi verulegar áhyggjur af því hvernig jóla-
hefur þroast. Að hans mati
vanlíðan en ánægju.
- Verslunin hefur það að markmiði númer
eitt að hafa meira umleikis í ár en í fyrra.
En hvar endar þetta? spyr Jón og heldur
áfram:
- Ég er mikið gefinn fyrir hátíðir eins og
flestir aðrir og finnst sjálfsagt að menn
geri sér glaðan dag á ýmsan hátt. Jólin eru
hátíðleg í mínum augum vegna innihalds
þeirra og þess sem þau hafa gefið mér frá
bamæsku. Við gleðjumst yfir jólaundrinu
vegna þess að Kristur er veruleiki og kom
til okkar sem lítið bam sem lagt var í jötu.
Þetta er upphafið að þessu öllu saman í
hugum kristinna manna. Kærleikurinn er
hugsunin að baki jólagjöfum, við gefum
þeim sem eru í kringum okkur til þess að
valdajolin nu mörgum meiri
gleðja þá.
- En þegar talað er um að gefa heilu
steríótækin eða eitthvað í þeim dúr er
þetta orðin yfirgengileg vitleysa og á
ekki að tengja við jólin í sjálfu sér. Að
mati okkar í kirkjunni er það ekki rétt að
tengja óhófið við jólahátíðina, segir séra
Jón Dalbú.
■ Vanskil og vandræði
Hann segir að jólahaldið sé farið úr
böndunum hjá mörgum og telur að þegar
svo margir eyða svo miklu í jólagjafir og
annað dragist enn fleiri inn í þessa
hringiðu þótt þeir hafi ekki efni á því.
- Þess vegna verða öll þessi vanskil,
vandræði og vanlíðan eftir jólin, hvað þá
þegar holskeflan kemur í febrúar. Það er
náttúrlega stjórnleysi og agaleysi að geta
ekki takmarkað þessa hluti. En það virðist
eins og fólk fyllist einhverju æði.
- Ég held að þetta hafi flotið gjörsam-
lega yfir þegar greiðslukortin urðu al-
menn. Það er svo freistandi að nota kortið
í stundarhrifningu og eftirvæntingu, en
fólk reiknar ekki dæmið til enda.
Greiðslukortafyrirtækin auglýsa hins
vegar þannig að þetta sé svo auðvelt. Það
er bara hægt að dreifa greiðslunum ef því
er að skipta. Jón telur að jólahaldið hafi
stjómast í ríkari mæli af náungakærleika
áður fyrr, en nú gleymist innihaldið vegna
umbúðanna.
- Margir spila svo rosalega í
jólatraffíkinni að þegar upp er staðið
valda jólin þeim meiri leiðindum en á-
nægju. Þegar allt kemur til alls er ekkert í
umbúðunum. Jólin eru orðin neysluhátíð
fremur en trúarhátíð og kirkjan hlýtur að
berjast gegn því með sinni boðun og sínu
► Kauphátíð út á krítarkort
■ Hátíð kaupmannanna
Það er hægt að fylgjast með neyslu
landsmanna eftir fleiri leiðum en að
skoða greiðslukortanolkun. Samkvæmt
tölum frá Þjóðhagsstofnun var heildar-
velta í smásöluverslun um 84 hund-
raðshlutum hærri í desember árið 1989
en í öðrum mánuðum sama árs. Hér er
miðað við árið 1989 þar sem söluskatti
var skilað mánaðarlega. Virðisauka-
skatti er skilað á tveggja mánaða fresti
og því er ekki hægt að sjá veltuna í des-
ember í fyrra einum og sér. Mun hærri
hlutfallstölur sjást þegar skoðaðir eru
einstakir flokkar innan smásölunnar.
8
Þannig jókst veltan í sölu vefnaðar- og
fatavöru um 150 prósent í desember í fyrra
miðað við meðaltal annarra mánaða.
Sala skófatnaðar jókst um nær 160 pró-
sent. Sala bóka og ritfanga jókst um rúm-
lega 260 af hundraði.
Sala búsáhalda, húsgagna og fleira þess
háttar jókst um nær 140 prósent. Svona
má halda áfram að telja:
Sala úra, ljósmyndavara og fleira jókst um
190 af hundraði.
Sala snyrti- og hreinlætisvöru jókst um
175 prósent.
Velta í ýmissi sérverslun (íþróttavörur og
fleira) jókst um rúmlega 180 prósent. Svo
má ekki gleyma því að Islendingar fara
þúsundum saman til útlanda í verslunar-
ferðir.
■ „Hroðin veisluborð“
I bókinni um Hermann er að finna þessar
vangaveltur og lýsingar:
„Af hverju í ósköpunum gátu menn
ekki slappað af vikumar fyrir jólin og
notið þess, t.d. að undirbúa þau í róleg-
heitum með bömunum eins og upphaflega
var víst ætlunin með jólahaldinu? Af
hverju rann æði á alla þjóðina í desember?
Hvemig gat þjóðin t.d. haft efni á því ár
eftir ár að láta renna á sig kaupæði? Nú var
NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1991