Neytendablaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 19
dum
nægja fyrir leigunni næstu átján mánuði
þar á eftir. Þannig greiddi hún í raun leig-
una út í hönd til tveggja ára. I leigusamn-
ingi segir að skuldabréfið skuli vera
vaxtalaust, en fylgja vísitölu október
1991. Fyrsta greiðsla verður 18. apríl á
næsta ári. Raunar segir einnig í leigu-
og skyldur
þriggja mánaða og minnst eins mánaðar
fyrirvara (skriflega og sannanlega) að
hann hyggist ekki framlengja leigusamn-
inginn. Sé þetta ekki gert, breytist hinn
tímabundni samningur í ótímabundinn
samning.
Lögin kveða skýrt á um það, að húsa-
leigu skuli greiða mánaðarlega, en þó er
heimilt að semja um annað. Um fyrir-
framgreiðslur gilda eftirfarandi takmark-
anir:
- I upphafi leigutímans er óheimilt að
krefjast fyrirframgreiðslu fyrir lengri tíma
en fjórðung hins umsamda leigutíma. -
Síðar á leigutímanum má aðeins krefjast
fyrirframgreiðslu til þriggja mánaða í
senn.
Eigi sér stað fyrirframgreiðsla húsa-
leigu til lengri tíma en þriggja mánaða, þá
á leigjandinn rétt á íbúðinni fjórfaldan
þann tíma er leiga er greidd fyrir.
samningi að leigan skuli fylgja húsleigu-
vísitölu október í ár, sem stangast á við allt
annað í samningnum.
Ekkjan skrifaði undir þama um helg-
ina, en gætti þess ekki að halda eftir afriti
af skuldabréfinu, en ábyrgðarmenn em
móðir hennar og dóttir.
■ Áfallið
Viku síðar flutti fjölskyldan inn í þessa
björtu íbúð, en þá varð allt svart. Raf-
magnið hafði verið tekið af vegna eldri
skuldar. Viðmælandi okkar tók ábyrgð á
skuldinni og hefur fengið frestun á lokun-
araðgerðum Rafveitu Hafnarfjarðar til
áramóta. Leigusalinn lofaði að borga
skuldina, en ekkert bólar enn á efndum.
Vont getur versnað. Fjölskyldan hafði
ekki búið lengi í íbúðinni þegar hún frétti
að vafi leikur á hver á íbúðina.
- Eg komst að þessu fyrir algjöra til-
viljun. Eg hitti nágranna minn og hann
upplýsti mig um að íbúðin ætti að fara á
þriðja og síðasta uppboð 18. desember.
Það hafði meðal annars ekki verið greitt í
hússjóð mánuðum saman. Eg fékk auð-
vitað sjokk og spurði hann nánar um þetta.
Þá sagði hann mér að leigusalinn minn
væri þriðji „eigandi“ íbúðarinnar frá því
henni var síðast þinglýst og að þinglýstur
eigandi myndi ekki afhenda afsal fyrr en
búið væri að gera upp við hann. Einhverjir
fyrri „eigendur" höfðu orðið gjaldþrota
eða misst ofan af sér, segir þessi óláns-
sami leigjandi við Neytendablaðið.
■ Óþekktur dvalarstaður
Það mnnu á hana tvær grímur við þessi
tíðindi. Hún reyndi að stöðva ávísuna, en
það tókst ekki. Leigusalinn greiddi skuld
með henni og dóttirin varð að borga brús-
ann. Viðtakandi ávísunarinnar sendi hana
í innheimtu hjá stjórnarmanni í Neyt-
endasamtökunum og þannig komst ekkjan
í samband við samtökin. Lögfræðingurinn
Ekkja með fjögur börn á á hœttu að tapa
nœr einni miljón króna vegna viðskipta
sinna við leigusala. Húsin á myndinni eru
þessu máli óviðkomandi.
lét innheimtuþóknun sína niður falla og
ráðlagði ekkjunni hvað hún ætti að gera.
Svo var afráðið að hún myndi segja Neyt-
endablaðinu sögu sína öðrum til vamað-
ar.
Skömmu síðar hringdi leigusalinn í
leiguliða sinn og lofaði að skila skulda-
bréfinu. Hann kvaðst þá ekki vera búinn
að selja bréfið. Hún hefur ekki heyrt í
honum síðan, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
til þess að ná í hann. Hann kom við sögu
í Lögbirtingablaðinu nýlega, þar sem
honum er stefnt vegna stórfelldra van-
skila. Þar segir að hann hafi lögheimili á
óþekktum stað í Bandaríkjunum, en
dveljist á óþekktum stað í Reykjavík.
■ Fullkomin óvissa
Ekki er enn vitað hvort núverandi
„eigandi“ hefur kaupsamning. Leigjand-
inn fór til RLR og leitaði ráða, en þar
kváðust menn ekki geta gert neitt án
sönnunargagna. Fasteignasalinn neitaði
að afhenda kaupsamning eða staðfesta
hvort hann er fyrir hendi. Nú hefur hún
hins vegar lagt inn kæru til RLR og þá
ættu kurlin að koma til grafar.
- Óvissan er það versta í þessu, segir
hún.
- Eg sé fram á að verða að standa skil
á greiðslum af þessari íbúð til tveggja ára
og get svo jafnvel lent í að missa íbúðina.
Þá verð ég að leigja aftur, en sé ekki fram
á hvemig ég á að standa undir tvöfaldri
leigu. Auk þess sé ég þá fram á að dóttir
mín þurfi að skipta um skóla í þriðja sinn
á stuttum tíma. Uppboðinu á íbúðinni
hefur verið frestað fram í febrúar, en
þangað til lifum við í fullkominni óvissu.
19
NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1991