Neytendablaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 32
Hjá flestum eru jólin mikil
matarhátíð og þá er kjöts
gjarna neytt í rúmum skömmt-
um með ýmiss konar sósusulli
og öðru þungmeti. Það reynir
virkilega á meltingarfærin
þessa daga og sá sem hér
skrifar strengir þess árlega heit
að passa sig á kjötinu um
næstu jól. Jurtaætur eins og
Ásthildur Guðjohnsen flugfreyja
þurfa ekki að hafa þessar
áhyggjur.
- Mér líður betur síðan ég hætti að
borða kjöt. Ég fæ síður höfuðverk og
kvefpestir og finnst ég almennt vera
Sveppapaté
léttari á mér. Kjötið er svo lengi að fara
í gegnum kerfið að maður lá oft
hreinlega afvelta eftir kjötát, segir
Ásthildur í samtali við Neytendablað-
ið. Hún féllst á að gefa lesendum
blaðsins uppskrift að sveppapaté með
sesamsósu sem hún hefur í matinn á
jóladag. Ásthildur hefur ekki borðað
kjöt í nokkur ár og neitar sér að mestu
um dýraafurðir. Hún er það sem kallað
er jurtaæta, en borðar að vísu fisk
svona einu sinni í viku. Uppistaðan í
fæðu Ásthildar og eiginmanns hennar
er kornmatur, meðal annars pasta, og
grænmeti.
- Mér finnst miklu rökréttara og
hagkvæmara að borða kommeti og
grænmeti. Við erum alltaf að rækta
grænmeti og kom fyrir dýrin svo við
getum borðað þau. Dýrin eru óþarfur
milliliður. Enda er ekkert í kjöti sem
við getum ekki verið án, nema helst
járn, en það má fá í annarri fæðu, segir
Ásthildur Hún segist ekki sakna kjöts-
ins hið minnsta, enda getur svo margt
annað góðgæti komið í staðinn. Þar á
meðal sveppapaté með sesamsósu.
Það sem þarfí réttinn er eftirfarandi:
3 stórir laukar
2-3 hvítlauksrif
2 msk. olía, t.d. ólívuolía
blóðberg (timian)
jurtakraftur
1/2 kfló af sveppum
Mérfinnst miklu rökréttara og hagh’œmara að borða kornmeti og
grœnmeti, segir Asthildur Guðjohnsen.
með sesamsósu á jóladag
1 msk. olía
50 gr. af hnetum
3 dl soðin hýðishrísgrjón
1 egg
salt og pipar
1/4 lítri sojamjólk (eða nýmjólk)
Saxið lauk og hvítlauk og látið
krauma í 2 msk. af olíu á pönnu.
Kryddið með blóðbergi. Skerið svepp-
ina frekar smátt. Steikið þá á annarri
pönnu í 1 msk. af olíu. Hakkið hnet-
umar eða saxið smátt. Hrærið lauk,
hvítlauk, sveppum, hnetum og soðnum
hrísgrjónum í skál ásamt sojamjólk-
inni, salti, pipar og jurtakrafti. Að-
skiljið hvítu og rauðu, bætið rauðunni
út í skálina, stífþeytið hvítuna og látið
hana loks í skálina. Þegar þessu hefur
verið hrært saman er deigið sett í vel
smurt, ofnfast mót og bakað við 180
gráður í eina klukkustund.
Sesamsósa:
4 msk. sesamsmjör (tahimi)
2 bollar grænmetissoð eða vatn
með dálitlum jurtakrafti
tamari eftir smekk (varlega)
1 msk. maisenamjöl
Setjið smjörið, soðið og tamari í pott
og hitið að suðu. Hrærið vel í allan
tímann. Jafnið með úthrærðu maisena-
mjöli.
Með réttinum ber Ásthildur fram
drjúgan skammt af léttsoðnu spergilkáli
og jafnvel hrásalat að auki. Notið gjama
sósu úr olíu og ediki á salatið.
c:
.5
*
c:
8
<43
Hvíldu
einkabílinn
af og til
Flestir íslendingar eiga bíl, nota hann
mikið og eru gjama einir á ferð. Þeir
sem vilja vera umhverfisvænir ættu
þó að hvíla bílinn af og til, en nota
almenningssamgöngur, ganga eða
hjóla þess í stað. Margir búa svo vel
að geta gengið til vinnu, í skóla eða
út í búð og ættu að nýta sér þau for-
réttindi. í útblæstri bíla eru ýrnis efni
sem menga andrúmsloftið og valda
okkur og öðrum verum náttúrunnar
skaða, enda hefur einkabíllinn verið
nefndur helsti óvinur uinhverfisins.
Sumir halda að íslenska rokið sé
mengunarvörn, en efnin hverfa auð-
vitað ekki þótt vindurinn feyki þeim
úr einum stað í annan. Strætó, rútur,
ferjur og önnur almenningsfarartæki
ganga sína leið og menga ekki meira
þótt þú fáir þér far með þeim. Það
krefst meira skipulags að nota al-
menningssamgöngur, en þeim fylgja
einnig ýmis þægindi.