Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.1991, Síða 12

Neytendablaðið - 01.12.1991, Síða 12
Kvörtunarþjónustan hár viðgerðakostnaður Svimandi Hvaö þætti ykkur um aö fara meö 10 ára gamla þvottavél í viðgerð og fá svo reikning upp á rúmlega 40 þúsund krónur? Aö því gefnu aö þiö hafið greitt 10 þúsund króna viðgerð nokkrum mánuðum áöur. Svo ekki sé minnst á ef við- gerðaraðilinn segir í upphafi að viðgerðin muni ekki kosta nema 10-15 þúsund. Þetta hljómar fáránlega, en er engu að síður frásögn fé- lagsmanns í Neytendasam- tökunum. Kvörtunarþjónusta Neytendasamtakanna fær oft fyrirspurnir frá fólki sem hefur farið með hluti í við- gerð og fengið svimandi háa reikninga í hausinn, jafnvel hærri en verð á nýj- um sambærilegum hlut. Þá hefur gjarna verið gefið upp hugsanlegt verð á viðgerð- inni, en ekkert verið skjal- fest. Starfsmenn kvörtunar- þjónustunnar ráðleggja fólki að fá alltaf kostnaðaráætl- un, helst skriflega, og í öllu falli að tryggja að viðgerðar- maðurinn láti vita ef kostn- aður virðist ætla að fara framúr upphaflegri viðmið- un. Ef ekkert dugar, ætti fólk að hafa samband við kvört- unarþjónustuna. Starfs- mönnum hennar tekst oft að komast að samkomulagi við viðgerðarmenn sem leggja fram óeðlilega reikninga. Við neytendur getum dreg- iö þann lærdóm af Fram- vísmálinu að við eigum helst ekki að greiða vöru fyrr en við afhendingu. Þótt flest fyrirtæki séu traust og heiöarleg eru dæmin um hitt svo mörg að þaö er ástæða til þess að ítreka þetta, segir Jó- hannes Gunnarsson, for- maöur Neytendasamtak- anna, í samtali við Neytendablaöið. Starfsmenn kvörtunarþjónustunnar lögðu gífurlega vinnu í að leysa úr Framvísmálinu. Borgað fyrir ekkert Fjölmargir neytendur lentu í þessu svonefnda Framvís- máli og er um tugi miljóna króna að ræða. Starfsmenn Neytendasamtakanna lögðu gríðarlega mikla vinnu í að leysa málið. Framvís er verslun í Reykjavík. Sölumenn á vegum fyrirtækisins fóru um landið á þessu ári og tóku pantanir á leðursófa- settum. Neytendurnir sáu settið aðeins á mynd, en greiddu margir talsverða upphæð út og skrifuðu síð- an undir raðgreiðslusamn- ing eða skuldabréf gegn af- hendingu á sófasetti. Fyrirtækið hafði fjóra mán- uði til þess að afhenda vör- una, enda hafði varan ekki verið pöntuð erlendis þegar kaupin voru gerð. Um 200 manns sáu aldrei sófasettin sín. Framvís seldi hins vegar bönkum og peningastofn- unum raðgreiðslusamninga og skuldabréf. Það varð þó neytendunum til happs að skuldabréf og raðgreiðslu- samningar voru skilyrt sem greiðsla á sófasetti. Þau féllu því úr gildi í þeim tilvik- um sem sófasett hafði ekki verið afhent, samkvæmt skilningi lögmanna Neyt- endasamtakanna. Beinar peningagreiðslurtil Fram- vís eru hins vegar að öllum líkindum glataðar. - Niðurstaðan er því sú að enginn á að þurfa að standa við fjárskuldbinding- ar ef hann hefur ekki fengið sófasettið. Hins vegar er Ijóst að nokkrar peninga- stofnanir verða fyrir tjóni vegna þessa máls, enda virðist mér að þær hafi keypt þessa pappíra gagn- rýnislaust. Getur verið að skýringin á dýrri þjónustu og miklum vaxtamun hjá bönkum hér á landi felist að nokkru leyti í svona vinnubrögðum? segir Jó- hannes Gunnarsson um þetta mál. STENDUR NEYSLANIÞER? Leiðbeininga- og kvörtunarþjónusta Neytendasamtakanna er opin virka daga kl. 9-4. Sími 62 50 00 ■ Lesið leiðbeiningar Það verður aldrei of vand- lega brýnt fyrir fólki að lesa vel leiðbeiningar og vörulýsingar. Maður nokk- ur varð fyrir verulegum óþægindum þar sem hon- um láðist að lesa leiðbeiningar sem fylgdu linsuvökva. Hann hafði skipt um linsuvökva, en beitti sömu aðferð og not- aði sama tíma og fyrrum. Hann hefði komist hjá verulegum óþægindum ef hann hefði gefið sér tíma til þess að lesa leiðbein- ingarnar. ■ Réttur til að vita Til þess að viðhalda ábyrgð á nýjum bílum verða eigendur þeirra að fara reglulega með þá í skoðun. Maður sem keypti nýjan Mitsubishi hjá Heklu fullyrðir að hann hafi ekki verið upplýstur um að hver skoðun hjá umboðinu kostar nú 14 þúsund krónur. Skylt er að fara með bílinn í skoð- un á 10 þúsund kílómetra fresti út ábyrgðartímann, sem er þrjú ár. Það felst því verulegur aukakostn- aður í þessum skoðunum og telur kaupandinn að fyrirtækið hefði átt að upp- lýsa hann um þetta. Enda hljóðar ein meginkrafa neytenda svo: Neytendur eiga rétt á upplýsingum! ■ Skilaréttur? Félagsmenn hafa oft sam- band við kvörtunarþjón- ustuna og spyrja um skila- rétt. Staðreyndin er sú að hér á landi eiga neytendur engan skilarétt nema þeg- ar um gallaða vöru er að ræða. Neytendur eru því upp á náð og miskunn kaupmanna komnir í þessum efnum. Kaup- mönnum er það í sjálfs- vald sett hvort þeir fallast á að taka við vöru aftur og þá með hvaða skilmálum. Hins vegar er reynslan sú að flestir kaupmenn taka neytendum vel þegar þeir vilja skila vöru. STARFSMENN: Helena Vignisdóttir Sesselja Asgeirsdóttir og Elfa Björk Benediktsdóttir 12 NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1991

x

Neytendablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.