Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.1991, Síða 18

Neytendablaðið - 01.12.1991, Síða 18
Leigumarkaðurinn Þaö hefur veriö hrikalega erfitt aö standa í þessu, ég hef varla getaö sofiö fyrir áhyggjum. Maöur reiknar alltaf með að allir séu heiöarlegir, þótt þaö sé auövitaö bara kæruleysi sem maður á ekki aö leyfa sér. En maður reynir aö vera heiöarlegur sjálfur og reiknar þá meö aö aðrir séu eins. Svínað á leigien Þrjátíuogníu ára gömul ekkja með fjögur böm í heimili hefur frásögn sína af við- skiptum við leigusala með þessum orðum. Hún hefur orðið fyrir barðinu á vafasöm- um mönnúm og á jafnvel á hættu að tapa nær einni miljón króna á viðskiptum sín- um við þá vegna hrekkleysis síns. Hún telur sig hafa rökstuddan grun um að þeir hafi leigt henni íbúð sem þeir eiga ekki og hefur kært málið til Rannsóknarlögreglu ríkisins vegna þessa gmns. Hætta er á að íbúðin verði seld á nauðungaruppboði í vor, en þangað til lifir viðmælandi okkar í algjörri óvissu. Sá sem leigði henni íbúðina virðist fara huldu höfði, en hann á yfir höfði sér á- kæmr vegna verulegra vanskila og jafnvel fjársvika. Hún lýsir honum sem ungum, hávöxnum, vel klæddum og myndarleg- um manni, sem kemur vel fyrir. Við höf- um kosið að nefna ekki nöfn málsaðila, þar sem málið er í rannsókn og engar sannanir liggja fyrir um misferli. Hún er sallaróleg á yfirborðinu þegar hún segir blaðamanni frá reynslu sinni. Það leynir sér þó ekki að það er stutt í ör- væntinguna. Enda dregur hún ekki dul á að hún hefur átt erfitt tímabil síðan hún leigði sér fjögurra herbergja íbúð í Hafn- arfirði í nóvember. ■ Tílboð sendist Hún var í húsnæðisekklu í haust sem leið og skoðaði smáauglýsingarnar í DV grannt dag frá degi. Þá var auglýst björt og góð fjögurra herbergja íbúð. Leigjist til 18 tveggja ára. Tilboð sendist DV. Hún var ekki sein á sér að senda tilboð og skömmu síðar var haft samband við hana. Maðurinn talaði við hana í umboði Geymsluþjónustunnar hf., sagðist verða að hafa hraðann á þar sem hann væri að fara til útlanda. Þau skrifuðu undir samn- ing um helgi og urðu ásátt um að leigan skyldi verða 45 þúsund krónur á mánuði, auk hússjóðs, hita og rafmagns. Viðmæl- andi okkar féllst á að greiða hálft árið fyr- irfram með ávísun, sem dóttir hennar gaf út. Þar að auki skrifaði hún undir skulda- bréf upp á 810 þúsund krónur, sem átti að Kynnið ykkur rétt ykkar Réttindi og skyldur leigjenda og leigusala eru fest í lögum um húsa- leigusamninga. Leigjendur eru hvattir til þess aö kynna sér rétt sinn, en hægt er aö fá aðgengilegt upplýsingarit um lögin í félags- málaráðuneytinu við Tryggvagötu. Sagan sem sögð er hér á opnunni geymir nokkur dæmi um hvernig réttur er brotinn á leigjendum. Það er ástæða til þess að minna á nokkur atriði úr lögunum og er byggt á áð- urnefndu upplýsingariti: Leigjanda og leigusala er skylt að gera skriflegan leigusamning og ber að nota eyðublað sem hlotið hefur staðfestingu félagsmálaráðuneytisins. Leigusamningur getur verið ótíma- bundinn eða tímabundinn. Þegar um ó- tímabundinn samning er að ræða er ekki tiltekið hvenær honum lýkur. Aðilum er hins vegar skylt að segja honum upp skriflega með lögskipuðum fresti. Upp- sagnarfrestur af hálfu leigjanda er ávailt þrír mánuðir, en af hálfu leigusala 3-12 mánuðir, allt eftir því hve lengi leigjandi hefur búið í íbúðinni. Uppsagnarfrestur einstakra herbergja er þó ávallt aðeins einn mánuður. Fardagar eru tveir, 1. júní og 1. októ- ber. Leigjendum með ótímabundinn samning er einungis skylt og heimilt að fara úr hinu leigða húsnæði þessa tvo daga á ári, hafi uppsögn farið fram í tæka tíð samkvæmt hinum lögskipaða fresti og hann sé liðinn. Rétt er að undirstrika að þetta á aðeins við um ótímabundna leigusamninga. Tímabundnum samningi lýkur án sér- stakrar uppsagnar. Þó er leigusala skylt að tilkynna leigjanda með í mesta lagi NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1991

x

Neytendablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.