Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.1991, Síða 21

Neytendablaðið - 01.12.1991, Síða 21
Útgjöldin aukast en ekki tekjurnar Við höldum nú áfram að fylgjast með fjárhag hjónanna Biddu og Bárðar. Þau höfðu hvort um sig 90.000 krónur í mánaðar- laun í janúar síðastliðnum og laun þeirra breytast sam- kvæmt launavísitölu. Úgjöldin breytast við breyt- ingar á framfærsuvísitölu. Einnig eru þau með verð- tryggt lán, upphaflega að verðmæti ein milljón króna, sem auðvitað hækk- ar ef lánskjaravísitalan hækkar. Frá september til nóvem- ber hafa þessar þrjár vísitöl- ur breyst þannig: Lánskjaravísitalan: 0.6% Framfærsluvísitalan: 1,2% Launavísitalan: 0% Samkvæmt því hafa tekj- ur og útgjöld þróast á eftir- farandi hátt: 1. september: Ráðstöfunartekjur kr. 154.752 Föst útgjöld kr. 123.622 Afborgun af láni kr. 28.737 Spamaður kr. 2.393 1. nóvember: Ráðstöfunartekjur kr. 154.752 Föst útgjöld kr. 125.105 Afborgun af láni kr. 28.909 Spamaður. kr. 738 Eins og sjá má fer fjár- hagurinn hjá Biddu og Bárði stöðugt versnandi. Það jákvæða er að þau hafa þrátt fyrir allt náð að vera réttu megin við strikið, aug- ljóst er þó að ekki má neitt útaf bregða til að allt fari á verri veg. Með áfram- haldandi þróun hækkunar á framfærsluvísitölu umfram launavísitölu munu Bidda og Bárður þurfa að grípa til örþrifaráða um áramótin. Engar rakettur þetta árið, takk. Rekstur heimilisins Sparnaður og lántökur Ef fært hefur verið heimilisbókhald í nokkurn tíma, er vænt- anlega komin reynsla á hvernig útgjöldin dreifast á hina ýmsu liði. Þetta er byrjunin. Þegar komið er í ljós hvemig útgjöldin dreifast, er að taka næsta skref. Það er að íhuga og ræða, hvort eitthvað megi betur fara. Hjá flestum er það nú þannig. Nauðsynlegt er að allir fjölskyldumeðlimir sem komnir eru til vits og ára taki þátt í umræðunni um heimil- isreksturinn. Tekjur heimilis- ins eru oftast takmarkaðar eða með öðrum vinsælum orðum: Kakan er af ákveð- inni stærð, henni þarf að skipta, helst á þann hátt að allir séu sáttir. Ef bömin eru ekki höfð með í ráðum um þessa skiptingu, skilja þau síður hvers vegna ekki er hægt að gera þá hluti sem þau vilja helst. Á slíkum fjölskyldufund- um er líka mjög gott að ræða hverju fjölskyldan stefnir að. Viljum við fara saman í frí næsta sumar, til dæmis til út- landa? Hvað mun slík ferð kosta og hvað þurfum við að leggja á okkur núna til þess að ná þessu takmarki? Ef þetta er eitthvað sem alla langar mikið til er auðveldara að taka höndum saman um að spara eða fresta öðrum út- gjöldum. Fjölskyldan hefur núna um sjö mánuði til að ná takmarki sínu. Ef takmarkið næst ekki á þessum tíma þarf að taka nýja ákvörðun þegar vorar. Förum við í ferðina og hvaða þýðingu hefur það þá fyrir fjárhag fjölskyldunnar? Við getum tekið dæmi. Fjöl- skyldan reiknar með að ferð- in kosti þrjú hundruð þúsund krónur. Á þessum sjö mánuð- um þarf því að leggja til hlið- ar um 42.000 krónur á mán- uði. Ovænt útgjöld koma síðan upp á og einungis hefur tekist að safna 200.000 krón- um á þessum tíma. Ef fjöl- skyldan ákveður að fara í ferðina, þarf að taka lán fyrir ferðinni að upphæð rúmlega 100.000 krónur. Neyslan mun síðan skerðast á afborg- unartímanum vegna þessa láns. Hvaða útgjaldaliði á að skera niður? Á hverjum í fjölskyldunni myndi þessi skerðing helst bitna? Engin af þessum ákvörðunum er á- takalaus og því nauðsynlegt að ræða þessi mál hreinskiln- islega innan fjölskyldunnar áður en ákvörðun er tekin. Gangi ykkur vel. Sólrún Halldórsdóttir rekstrarhagfræðingur ráðleggur neytendum Námskeið um hagsýni í heimilisrekstri Eg hef sko alltaf ætlað mér að byrja að færa heimilisbókhald. Já, einmitt. Engin undanbrögð lengur. Neytendasamtökin hyggjast bjóða upp á námskeið í hag- sýni í heimilisrekstri. Fjallað verður um það hvemig færa á heimilisbókhald, hvemig gera á áætlanir, einnig um spamaðarleiðir, hvemig bregðast megi við óvæntum útgjöldum og fleira. Nám- skeiðið er öllum opið, en fé- lagsmenn í Neytendasam- tökunum munu hafa forgang. Skráning fer fram á skrifstofu samtakanna í síma 625000. Leiðbeinandi verður Sólrún Halldórsdóttir rekstrarhagfræðingur. Nám- skeiðsgjald er ekkert, en þáttakendur greiða 500 krón- ur í efnisgjald. NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1991 21

x

Neytendablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.