Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.1991, Side 24

Neytendablaðið - 01.12.1991, Side 24
Neytendafélag Suðurnesja Virk í verð lagsefti rl iti Viö verðum vör viö mikinn áhuga fólks hér á félaginu og starfi þess. Mér finnst hins vegar eins og margir kaupmenn séu ragir viö þaö aðhald sem viö veitum þeim á ýmsan hátt, enda fara hagsmunir þeirra yfirleitt ekki saman viö hagsmuni neytenda, segir Drífa Sigfúsdóttir, formaöur Neytendafélags Suðurnesja, í samtali viö Neytendablaöiö. Neytendafélag Suðumesja var stofnað fyrir rúmlega tveimur árum og eru félags- menn nú um 1500 talsins. Félagið er með starfsmann í 30 prósent starfi og hefur á leigu húsnæði við Hafnargötu. Drífa tók þátt í undirbúningi að stofnun félagsins og hefur verið formaður þess frá upphafi. Hún er jafnframt forseti bæjar- stjómar í Keflavík og leysir bæjarstjóra af þegar þörf er á. Hún segir að starfsmaður félagsins hafi í nógu að snúast og telur að félagið þyrfti að hafa starfsmann í að minnsta kosti hálfu starfi. - Það er mikið hringt og alltaf nóg af verkefnum og það vitnar um áhuga fólks á félaginu og starfi þess að mínu mati. Þótt félagamir séu nú orðnir um 1500 eru þeir auðvitað aldrei nógu margir. Við vildum gjama hafa þá fleiri og teljum að svo hljóti að verða. Hin aukna samkeppni sem stefnt er að í þjóðfélaginu kallar á aukningu neytendastarfs, svo félagið þarf að eflast verulega. Við teljum að umfang þessa starfs sé orðið það mikið að við þyrftum að vera með starfsmann í hálfu starfi og ég geri mér vonir um að svo verði, segir Drífa. ■ Andstæðir hagsmunir Neytendafélag Suðumesja heldur 60 prósent félagsgjaldanna eftir, en 40 pró- sent renna til starfsemi Neytendasamtak- anna. Félagið hefur jafnframt notið stuðnings stærstu sveitarfélaganna á starfssvæði sínu. Auk þess segir Drífa að félagið muni leita eftir ákveðnara sam- starfi við stéttarfélögin á svæðinu, enda eigi neytendastarf og verkalýðsbarátta samleið. Drífa segir að gerðar hafi verið fast að 40 verðkannanir á vegum félagsins frá því það var stofnað. - Við höfum reynt að vera virk í verðlagseftirliti og teljum að við höfum náð árangri í því að þrýsta vömverði nið- ur. Við höfum líka reynt að gera verðkannanir á ýmsu öðru en matvöru. Könnun okkar á verði hársnyrtistofa vakti til dæmis mikla athygli, enda breyttist verð á þeirri þjónustu í kjölfarið. Það sýndi sig þegar við könnuðum verð á þessari þjónustu að nýju, segir Drífa. Sætta kaupmenn sig við það aðhald sem þið veitið þeim? - Ég held nú að kaupmenn eigi enga valkosti í þessu sambandi. Félagið er komið til að vera. Vissulega verður maður var við óánægju hjá sumum kaupmönn- um. Það er eins og þeim finnist það óþarfi að vera að gera verðkannanir og starfs- maður okkar fær ekki alls staðar nógu góðar viðtökur. Sumir kaupmenn eru eitt- hvað ragir við þetta. - Mér finnst líka eðlilegt að kaupmenn og þjónustuaðilar séu lítt hrifnir af félagi sem þessu. Það styrkir rétt neytenda og er þar með oftast andstætt hagsmunum kaupmanna, segir Drífa. ■ Öflugra aðhald Á hinn bóginn segir hún yfirleitt ganga vel að leysa úr þeim kvörtunarmálum sem koma til félagsins. - Það koma auðvitað upp vandkvæði, en yfirleitt gengur þetta vel. Starfsmaður okkar kynnir sér þessi mál og ræðir þau við báða aðila og hingað til hefur okkur tekist að leysa úr flestum kvörtunarmálum sem komið hafa upp. Þegar hún er spurð um helstu hags- munamál neytenda nefnir hún fyrst neyt- endastarfíð sjálft. - Þjóðfélagið er að opnast að mörgu leyti og það er verið að og á að fara að losa um ýmis höft, ekki síst með tilkomu EES. Ég held hins vegar að hér muni ekki skapast hinn rétti samkeppnisandi nema starf Neytendasamtakanna og neytend- afélaganna verði enn öflugra en það er nú. Það er því í sjálfu sér baráttu- og hags- munamál neytenda að efla neytenda- hreyfinguna sjálfa og það aðhald og eftir- lit sem við veitum, ekki síst verðlagseftirlit. Öflugra aðhald frá okkur er forsendan fyrir svo mörgu öðru, segir Drífa. ■ Neytendur og fjölmiðlar Hún nefnir einnig málaflokk sem Neytendasamtökin hafa ekki látið til sín taka að ráði hingað til; fjölmiðlana. Hún bendir á að fjölmiðlar eru vaxandi þáttur í lífi fólks og telur að þeir hafi gerst aðgangsharðari á undanförnum árum. Drífa Sigfúsdóttir Sumir kaupmenn virð- ast óttast aðhald. - Neytendasamtökin hafa barist fyrir sjö svonefndum lágmarkskröfum neyt- enda, sem fjalla um upplýsingar, öryggi, fræðslu og fleira. Ég vil taka fjölmiðlana inn í þessa umræðu. Það eru eðlilega uppi vaxandi kröfur um að fólk njóti lágmarksverndar gegn aðgangi fjölmiðla, einkum þegar sorg ber að dyrum. Þetta er hlutur sem við verðum að ræða. Fjöl- miðlar hafa hingað til fengið að fara sínu fram án mikilla afskipta utanaðkomandi aðila, en þeir þurfa aðhald ekki síður en aðrir, segir Drífa. - Ég tel að við eigum að leggja aukna áherslu á rétt fólks til manneskjulegra umhverfis. Taka verður aukið tillit til þessa þegar ný íbúðahverfi eru skip- ulögð. Fólk verður að geta farið í göngutúr í fallegu umhverfi ekki langt frá heimili sínu, án þess að vera með lífið í lúkunum vegna bflaumferðar, segir Drífa. - Ég tel einnig að bönkum og trygg- ingafélögum hafi ekki verið sýnt nægi- legt aðhald. Það er athygli vert hve vaxtamunur er hár og öll þjónusta bank- anna dýr og rétt að skoða glæsihallir þessara fyrirtækja í þessu ljósi. Þrátt fyrir þetta virðast neytendur ekki kvarta að ráði við bankana. Ég held þó að neytend- ur muni í vaxandi mæli setja þessa hluti í samhengi, segir Drífa Sigfúsdóttir. 24 NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1991

x

Neytendablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.