Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.1991, Síða 27

Neytendablaðið - 01.12.1991, Síða 27
Oddvitar ríkisstjórnarinnar hafa boðað aukna áherslu á hagsmuni neytenda. Samrýmist niðurskurður áframlagi til Neytendasamtakanna þessu markmiði? Alþingi á eftir að taka afstöðu til málsins, en Neytendasamtökin hafa ritað þing- mönnum bréfþar sem lýst eryfir undrun og áhyggjum vegna áforma ríkis- stjórnarinnar. þjónusta við neytendur séu óumflýjanlegir þættir í samfélagi sem að miklu leyti byggir á markaðshagkerfi. „Æ fleirum yerður nú ljóst að sjálfsagt er og nauð- synlegt að tryggja hagsmuni neytenda gagnvart framleiðendum og þjónustuaðil- um. Þessi skilningur kemur til að mynda glögglega fram í stefnuyfirlýsingu ríkis- stjómarinnar, þar sem stefnt er að því jöfnum höndum að efla markaðskerfið og tryggja hagsmuni neytenda“, segir í bréf- inu til þingmanna. Þama er meðal annars vitnað til fréttar á hagsmuni neytenda? Ifrumvarpi til fjárlaga er gert ráö fyrir aö styrkur ríkisins viö Neytenda- samtökin veröi skorinn niöur um 70 af hundraði, úr 5 miljónum króna í 1.5 miljónir. Styrkur ríkisins til samtakanna hefur aukist á undanförnum árum þartil nú. Neytendasamtökin hafa ritað alþingis- mönnum bréf þar sem þau lýsa yfir undrun og áhyggjum vegna þessa, enda telja þau að niðurskurðurinn gangi þvert á yfirlýs- ingar stjómmálamanna og sé ekki í sam- ræmi við yfirlýsta stefnu stjómvalda. í þessu sambandi nægir að minna á orð Jóns Sigurðssonar, viðskiptaráðherra, í 3. tölublaði Neytendablaðsins í ár. Hann minnir þar réttilega á að í ráðherratíð hans hefur styrkurinn við Neytendasamtökin verið aukinn verulega. Síðan segir Jón: „Enda er ég þeirrar skoðunar að það sé betra fyrir okkur að styrkja þessi frjálsu félagasamtök en að byggja upp stofnana- veldi eins og gert er í stærri löndum. Engu að síður hefur málefnum neytenda verið gert allt of lágt undir höfdði og ég vil bæta úr því.“ ■ Hin Norðurlöndin Ljóst er að framlög íslenska ríkisins til neytendamála eru óveruleg miðað við það sem tíðkast á öðrum Norðurlöndum. Samkvæmt upplýsingum Neytendasam- takanna verja dönsk stjómvöld 105 krón- um á hvem íbúa til neytendastarfs. Norsk stjómvöld veita 110 krónum á hvem íbúa til þessa málaflokks og Svíar enn hærri upphæð. Verði niðurskurður á framlagi til Neytendasamtakanna að veruleika lækkar framlag íslenska ríkisins úr 29 krónum í 15 krónur á hvem íbúa á næsta ári. Neytendasamtökin veita og hafa veitt íslenskum almenningi þjónustu sem í öðr- um löndum Norður-Evrópu er litið á sem eðlilegan hluta af þeirri samfélagsþjónustu sem greidd er úr sameiginlegum sjóðum. { bréfi sínu til þingmanna minna sam- tökin á að þau sóttu um 13,6 miljóna króna styrk fyrir næsta ár. Þar var einvörðungu sótt um styrk til þeirra þátta í starfsemi samtakanna sem talin er nauðsynleg þjón- usta við almenning og sem í öllum tilvik- um er starfrækt og/eða kostuð af stjóm- völdum í nágrannalöndum okkar. I bréfinu til þingmanna segir að neytendavemd og í Morgunblaðinu 11. október, þar sem segir frá kynningu á stefnu og starfsáætlun ríkisstjómarinnar út kjörtímabilið. Fyrir- sögn fréttarinnar er „Ahersla á markaðs- lausnir og hagsmuni neytenda“, enda verður oddvitum ríkisstjómarinnar þar tíðrætt um hagsmuni neytenda. ■ EES og neytendur Neytendasamtökin vitna einnig til þess í bréfi sínu til þingmanna að það er yfirlýst stefna ríkisstjómarinnar að fullgilda samning um evrópskt efnahagssvæði og telja að niðurskurðurinn stangist algerlega á við þær fyrirætlanir. EES kallar á öfl- ugra neytendastarf að mati samtakanna. í niðurlagi bréfsins segir: „Ef fjárlagafrumvarpið gerði ráð fyrir almennum niðurskurði á útgjöldum ríkis- ins, meðal annars á fjárveitingum til fé- lagasamtaka, yrðu Neytendasamtökin vitaskuld að sætta sig við að taka þátt í slíkum niðurskurði til jafns við aðra sam- bærilega aðila. Því fer hins vegar fjarri að svo sé. Við leyfum okkur því að vona að þingmenn geri sér grein fyrir mikilvægi þess starfs sem Neytendasamtökin vinna og afstýri því slysi sem fjárlagafmmvarp- ið felur í sér.“ NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1991 27

x

Neytendablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.