Neytendablaðið - 01.11.2000, Blaðsíða 26
Maturinn
matseðli þeirra á hverjum degi. Neyt-
endablaðinu lék forvitni á að vita hversu
mikið sykurinnihald er í þessum vörum og
því voru skoðaðar innihaldslýsingar á
völdum mjólkurafurðum og ávaxtasöfum.
Eins og sést á töflunni yfir jógúrt og
skyr innihalda afurðirnar nær undan-
tekningarlaust viðbættan sykur eða sykrað
bragðefni (hreint skyr og jógúrt án allra
bragðefna er hér að sjálfsögðu undan-
tekning). Því miður er ekki skylt að
tilgreina viðbættan sykur á umbúðum
íslenskra matvæla og eiga því neytendur
og foreldrar erfitt um vik þegar velja á
hentugar vörur. Sykurinnihaldið kemur að
einhverju leyti fram í magni kolvetna. Ef
varan er með hátt innihald kolvetna eru
miklar líkur á því að viðbættur sykur eða
sykrað bragðefni sé í vörunni. Mun
skynsamlegra er að velja vörur með lágu
magni kolvetna, til dæmis jógúrt, skyr og
aðrar súrmjólkurafurðir sem eru án ávaxta
og annarra bragðefna þar sem sykur er
einnig notaður, en þessar vörur innihalda
aðeins um 4% af mjólkursykri frá
náttúrunnar hendi.
Á markaðnum er abt-mjólk með inúslí.
Mjólkin er í handhægum umbúðum og
einkar vel til þess fallin að taka með sér í
Tegund
Skólajógúrt með súkkulaði og jarðarberjum
Skólajógúrt með epta- og karametlubragði
Skólajógúrt með ferskjum
Abt-mjólk með jarðarberjum og musti
Hrismjólk með skógarberjasósu
Óskajógúrt með hnetu- og karameilubragði
Óskajógúrt með jarðarberjum
Smellur, jógúrt með jarðarberjum og sprengikorni
Smetlur, jógúrt með banönum og sprengikorni
Skyr með bjáberjum
Skótaskyr með vanitlu
Skyr með hnetu- og karameitubragði
Engjaþykkni með jarðarberjum og morgunkorni
Abt-mjótk með musti
Pascuat-jarðarbeijajógúrt
Holtari valkostir
Óska jógúrt án ávaxta
Skyr
Skyr hrært
AB-mjólk
26
NEYTENDABLAÐIÐ - nóvember 2000