Bændablaðið - 25.03.2003, Síða 2
2
Bændablaðið
Þriðjudagur 25. mars 2003
lakkarvexo
Stjórn Lánasjóðs Iandbúnaðar-
ins ákvað á fundi sínum þann 12.
mars sl. að lækka vexti á lánum
sjóðsins, sem bera breytanlega
vexti, f.o.m. 1. apríl nk. Vextir
af lánum sem nú bera lægri vexti
en 7,25% lækka þá um 0,10 %-
stig en vextir af lánum sem nú
bera 7,25% vexti eða hærri,
lækka um 0,30 %-stig.
Algengir vextir, t.d. jarða-
kaupalána og ýmissa fram-
kvæmdalána, verða þá ýmist
3,90% og 6,95% í stað 4,00% og
7,25%. Vextir bústofhskaupalána
verða 4,90% í stað 5,00% og
vextir á vélalánum verða 6,95% í
stað 7,25% nú.
Að sögn Guðmundar Stefáns-
sonar, framkvæmdastjóra sjóðsins,
er vaxtalækkunin nú gerð vegna
þess að staða sjóðsins er sterk, af-
koma hans er eftir vonum og
vextir á skuldabréfamarkaði hafa
farið lækkandi undanfama mánuði
og menn gera sér vonir um að þeir
fari ekki aftur upp í nánustu fram-
tíð. Stjóm Lánasjóðsins vill þó
KENNARAR VIÐ GRUNNSKÓLANN Á HÓLMAVIK
ERU STRAN DAMEISTARARIGÁFIIM!
Kennarar við grunnskólann á Hólmavík sigruðu í spurninga-
keppni sem Sauðfjársetrið á Ströndum hefur undanfarið staðið
fyrir í félagsheimilinu Sævangi.
Sextán lið frá hinum ýmsu fyrirtækjum og stofnunum á svæðinu
hófú keppni sem lauk um síðustu helgi með sigri liðs kennara við
grunnskólann á Hólmavík. Mótherji þeirra í úrslitaviðureigninni var
lið Hólmadrangs á Hólmavík.
Um var að ræða ffekar jaífia og spennandi keppni allt ffá byrjun.
Að margra mati kom frammistaða nemenda við grunnskólann á
Hólmavík einna mest á óvart en aðeins eitt stig vantaði upp á að lið
þeirra næði að komast í undanúrslit. Spyrill var Amar Jónsson og
stigavörður Hildur Guðjónsdóttir.
Sigurliðið hlaut að launum margvíslegar gjafir auk farandbikars
sem það varðveitir í eitt ár. Mikil og góð stemmning ríkti
keppniskvöldin í Sævangi og troðfúllt var öll fjögur kvöldin.
Frá stofúun sauðfjárseturs í Strandasýslu á síðastliðnu ári hafa
aðstandendur þess staðið fyrir fjölmörgum viðburðum til ffóðleiks
og skemmtunar. Enn sem komið er ber hæst sýningarhald í fé-
lagsheimilinu Sævangi á margs konar munum liðinnar tíðar og at-
vinnuhátta til sveita auk fjölmargra ljósmynda en um þrjú þúsund
gestir heimsóttu sauðfjársetriö á opnunartíma þess í fyrra. /GF
Liö grunnskólans á Hólmavik sigraði i spurningakeppni vinnustaöa og
félaga á Ströndum. F.v. Hrafnhildur Guöbjörnsdóttir, Kristján Sigurös-
son og Þorvaldur Hermannsson, kennarar við grunnskólann.
Bændablaðsmynd/Guðfinnur Finnbogason
Komin er áætlun um kynbotasýningar fyrir sumarið og er hún í
flestu með hefðbundnu sniði en skoðist þó með fyrirvara um breyt-
ingar eftir þátttöku á hverjum stað. Boðið verður upp á sýningar
snemma vors í Gunnarsholti og á Sauðárkróki ef næg þátttaka fæst.
Dagsetning Svæði Upplýsingar
25.4 - 26.4 Sauðárkrókur 4557100
2.5 - 3.5 Gunnarsholt, Rangárvöllum 4801800
22.5-31.5 Sörlastaðir, Hafnarfirði 5630346 5630307
26.5-14.6 Gaddstaðaflatir, Hellu 4801800
27.5-31.5 Sauðárkrókur 4557100
2.6 - 3.6 Hvammstangi/Húnaver 4512601
4.6 - 7.6 Melgerðismelar, Eyjafirði 4604477
10.6-14.6 Borgarnes 4371215
11.6-12.6 Stekkhólmi, Héraði 4711226
16.6 Fornustekkar, Hornafirði 4781012
19.5-21.6 Glaðheimar, Kópavogi 5630346 5630307
4.7 - 6.7 Fjórðungsmót Austurlandi - Hornafirði
14.8-23.8 Gaddstaðaflatir, Hellu 4801800
20.8 - 23.8 Vindheimamelar, Skagafirði 4557100
fara frekar varlega í sakimar í
vaxtalækkunum eins og hún hefúr
gert í vaxtahækkunum. Ef ekki
verða breytingar á skuldabréfa-
markði til hins verra eða aðrar
aðstæður versna, hefur stjómin
jafnframt tekið ákvörðun um að
endurskoða vaxtakjör að nýju í
sumar og verður ákvörðun um
vexti tekin í ágúst nk.
Fyrir vaxtalækkunina höfðu
vextir Lánasjóðsins hækkað um
11-14% síðan í árslok 1999 og þar
til nú, en þá er ekki tekið tillit til
hækkana sem urðu um síðustu ára-
mót vegna lækkunar búnaðar-
gjalds. Á sama tíma hafði ávöxtun-
arkrafa á skuldabréf sjóðsins á
markaði hækkað um 22-23% en
mest varð hækkunin um áramótin
2001/2002 þegar ávöxtunarkrafa
hafði hækkað á aðeins tveim ámm
um nálega 50%.
"Við höfúm getað haldið okkar
vaxtahækkunum nokkuð í sketjum
vegna þess að hækkanir á hverjum
tíma leggjast ekki með fúllum
þunga á hverjum tíma og við búum
enn að hagstæðum lánakjörum
áranna 1998 og 1999. En á sama
hátt er til staðar tregða þegar
kemur að betri kjörum á markaði.
Þá getum við ekki lækkað í sama
takti og aðrir. Það er eins konar
sveiflujöfnun í þessu," segir Guð-
mundur Stefánsson.
"Stjóm Lánasjóðsins er þó
ákveðin í að halda vaxtakjörum
sjóðsins eins lágum og kostur er
og við munum fygjast mjög vel
með því hvort svigrúm gefst til
annarrar vaxtalækkunar í sumar,"
sagði Guðmundur Stefánsson.
fslenskur landbúnaúun iær
yóúa kynningu I Fjarðarkaupum
„Sveinbjörn heitir Valbjörn nu"
Þessi hending úr kvæði Þórarins Eldjáms skýtur upp kollinum
þegar flett er nýrri nautaskrá austan úr Svíaríki. Þar er kynnt eitt
ungnaut af sænska landkyninu (SKB), sem heitir Holger 3-6843.
Þegar betur er skoðað er hann sagður undan nautinu Halvor, en
þegar nánar er lesið þá kemur í ljós að þetta naut hafi heitið Hólmur á
Islandi. Hólmur 81018 hefúr fengið nýtt nafn austur þar. Þama er því
kominn sonur hans. Þetta má rekja til þess að um 1980 var flutt sæði úr
íslenskum nautum til Svíþjóðar til blöndunar við landkynið. Síðan
fengu þeir aftur nokkmm ámm síðar viðbót af sæði úr tveimur eða
þremum ungnautum á þeirri tíð. Það var þegar Hólmur stóð sem slíkur
á Nautastöð BI. Erfiðlega hefúr gengið að fá upplýsingar um árangur
af þessari sæðissendingu vegna þess að stofnanir, sem höfðu með
tilraunir í tengslum við þennan innflutning að gera, voru lagðar niður á
þessum tíma. Að löngum tíma liðnum hefur hins vegar augljóslega
verið gripið til þessa sæðis og nú á þessi Hólmssonur að fara að notast
til að færa þessu kyni nýtt blóð.
Fram kemur að móðir hans hafði á fyrsta mjólkurskeiði mjólkað
5600 lítra mjólkur með 3,5% próteini. /JVJ
Guðmundur Árni Stefánsson, þingmaður hlustar á Siv Friðleifsdóttur, ráöherra en hún er líklega fjalla um gildi
íslensks landbúnaðar fyrir þjóðarbúið. Steingrímur Sigfússon, þingmaður virðir kræsingarnar fyrir sér og er aö
segja eitthvað við Sigurberg Sveinsson, sem stofnaði Fjarðarkaup á sínum tima.
Ráðherrar og þingmenn fengu svo sannarlega
gott að snæða þegar þeir heimsóttu verslunina
Fjarðarkaup í síðustu viku, en þar var mikil
kynning á íslenskum landbúnaði. Islenska
kokkalandsliðið annaðist matreiðsluna en
maturinn vakti mikla og verðskuldaða athygli.
Verslunin Fjarðarkaup verður þrítug í sumar en
hún var stofnuð 7. júlí 1973. Sveinn Sigurbergsson
framkvæmdastjóri sagði að forsvarsmenn
verslunarinnar vildu skapa jákvæða umræðu um
íslenskan landbúnaði; væru búnir að fá nóg af þeirri
neikvæðu. "Með þessu átaki viljum við sýna að
bændur eru að gera frábæra hluti," sagði Sveinn,
"og það hlýtur að vera lýjandi að hlusta sífellt á
þessa neikvæðu umræðu í fjölmiðlum."