Bændablaðið - 08.06.2004, Page 15

Bændablaðið - 08.06.2004, Page 15
Þriðjudagur 8. júní 2004 15 1 Ef Bandaríkjamenn ykju almennt neyslu sína af mjólkurvörum upp í 3- 4 skammta á dag, eins og ráðlagt er af næringarfræð- ingum, væri á fyrsta ári hægt að spara 26 milljarða dollara og á fimmta ári meir en 200 milljarða dollara í bandaríska heilbrigðiskerfinu. Þetta kom fram í fyrirlestri David A. McCarrons, prófessors við Næringarfræðideild Kaliforníuháskóla, á síðari degi 40. Norræna mjólkuriðnaðarþingsins, sem lauk á Hótel Nordica í Reykjavík á mánudag. Til þess að gefa hugmynd um stærðarhlutföllin í þessu dæmi má leika sér að því að yfirfæra bandarísku tölurnar yfir á íslenska höfðatölu og þá væri um að ræða milli 3. - 4. milljarða króna sparnað á fyrsta ári og 24 milljarða króna sparnað í heilbrigðiskerfinu á fimmta ári. Viðamiklar rannsóknir Niðurstöður viðamikilla rannsókna McCarrons og samstarfsmanna hans, sem þessi heimsþekkti vísindamaður kynnti á ráðstefnunni á Hótel Nordica, benda eindregið til þess að mjólkurvörur geti skilað miklum árangri í baráttu við helstu lífsstílssjúkdóma samtímans, svo sem ofþyngd, hjarta- og æðasjúkdóma, háþrýsting, áunna sykursýki, nýrnasteina, vannæringu meðal aldraðra, ákveðnar þungunaraðstæður og vissar tegundir krabbameina. Kostnaður við meðhöndlun kvilla af þessu tagi er verulegur hluti heilbrigðisútgjalda í Bandaríkjunum. Rannsóknirnar hafa miðað að því að safna saman rannsóknarniðurstöðum sem allar styrkja heilsubætandi langtímaáhrif mjólkurvöru, prófa niðurstöðurnar með samanburðarrannsóknum og tengja ætluð heilsuáhrif við kostnað samfélagsins af einstökum tegundum sjúkdóma og kvilla. Bæði feitt og magurt McCarron telur að í stað þess að bandarísk heilbrigðisyfirvöld haldi sér við 2-3 skammta á magurri mjólkurvöru sem þátt í daglegu mataræði, ætti að auka ráðlegginguna í 3-4 skammta á dag og binda hana ekki einvörðungu við fituskerta mjólkurvöru því að öll efnaflóra mjólkurinnar sé mikilvæg þegar heilsubætandi áhrif hennar eru metin. Í mjólk eru 14 af 18 mikilvægustu vítamínum og steinefnum sem við þurfum daglega og ýmis lífvirk efni og fitusýrur sem eru líkamanum nauðsynleg. Sérfræðihópur á vegum bandarískra stjórnvaslda hefur nýverið lagt til að hafin verði barátta gegn sætindum og gosi í skólum vegna þess að 7, 2 milljónir barna á aldrinum 6- 19 ára þjáist af offitu sem muni leiða til mikils kostnaðar og vandræða í heilbrigðiskerfinu þegar fram líða stundir. Börn og unglingar fá í sig of margar hitaeiningar vegna gosdrykkju og sætindaáts. Það leiðir til þess að þau drekka minna af mjólk sem aftur leiðir til aukinnar hættu á beinþynningu og beinbrotum. Tannheilsu barna- og unglinga í Bandaríkjunum hrakar einnig. Prófessor við Kaliforníuháskóla: Almennari og meiri neysla mjólkurvöru getur sparað stórfé í heilbrigðiskerfinu Niðurstöður McCarrons og samstarfsmanna hans í Kaliforníuháskóla og ráðleggingar sérfræðihópsins áðurnefnda hafa vakið mikla athygli á Bandaríkjaþingi og þar eru nú til umfjöllunar tillögur um að mjólk verði alls staðar gerð aðgengileg fyrir börn og unglinga í skólum landsins og hvatt til aukinnar neyslu hennar með ýmsum ráðum. "Ef hver maður fengi sér 3-4 skammta af mjólkurvöru á dag myndi það leiða til 200 milljarða dollara sparnaðar í bandaríska heilbrigðiskerfinu á fimmta ári", sagði David A. McCarron á Norræna mjólkuriðnaðarþinginu. Mjólk og heilsa var umfjöllunarefnið á Norræna mjólkuriðnaðarþinginu sem stóð á Hótel Nordica í Reykjavík dagana 5. - 7. júní. Þátttakendur voru um 330 og þar af voru hátt í þrjú hundruð frá Danmörku, Noregi, Finnlandi og Svíþjóð. Þetta er í fertugasta sinn sem starfsmanna- og tæknifélög mjólkuriðnaðarins á Norðurlöndum efna til fagráðstefnu af þessu tagi, en sú fyrsta var haldin í Osló árið 1920. Þingið er þriðja hvert ár á vegum Norræna mjólkurtækniráðsins og var það áður á Íslandi 1973 og 1989. Tæknifélag mjólkuriðnaðarins á Íslandi annaðist skipulagningu þingsins. Það bar nú í fyrsta sinn ábyrgð á efnisumfjöllun þess, enda er Íslendingur, Hólmgeir Karlsson, markaðs- og þróunarstjóri Norðurmjólkur, í fyrsta sinn í áttatíu og fimm ára sögu þessa samstarfs formaður Norræna mjólkurtækniráðsins. Markaður fyrir heilsuvörur er sívaxandi í heiminum í takt við áherslu stjórnvalda og almennings á fyrirbyggjandi heilsuvernd. Í nýlegri alþjóðlegri könnun á vegum Roper´s á 57 lífsgildum kemur í ljós að heilsa og þrek er sett í þriðja sæti á eftir fjölskyldu og heiðarleika og á undan sjálfsvirðingu og réttlæti og hefur færst upp um mörg sæti á þessum lífsgildalista. Mjólkuriðnaðurinn á Norðurlöndum er framarlega í vöruþróun sem kemur til móts við ný vihorf á þessu sviði. Niðurstöður rannsókna, sem kynntar voru á ráðstefnunni á Hótel Nordica, benda eindregið til þess að mjólkurvörur geti skilað miklum árangri í baráttu við helstu lífsstílssjúkdóma samtímans, svo sem ofþyngd, hjarta- og æðasjúkdóma, háþrýsting, áunna sykursýki, vannæringu meðal aldraðra og vissar tegundir krabbameina. Norrænt mjólkuriðnaðarþing Norræna mjólkuriðnaðarþingið Heilsubætandi áhrif mjólkurvöru

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.