Bændablaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 26
26 Þriðjudagur 8. júní 2004
Þrátt fyrir að stóðhestaeign
Íslendinga aukist ár frá ári er það
þó enn þannig að flestir ungfolar
eru geltir veturgamlir. Oftast eru
þeir geltir á þessum árstíma, þ.e.
um vor eða í sumarbyrjun og
gjarna tala dýralæknar um að best
sé að gelda "inn í sumarið."
Einföld aðgerð
Geldingin sjálf er tiltöluega
einföld aðgerð þar sem hesturinn
fær kæruleysislyf og síðan
svæfingu áður en aðgerðin hefst.
Mikilvægt er að þrífa svæðið sem
skera á vel og gæta fyllsta
hreinlætis við aðgerðina. Áður en
farið er af stað með að gelda
hestinn þarf að athuga hvort bæði
eistu eru gengin niður og getur
verið gott að fá fagmann til að
meta það, t.d. dýralækni, ef vafi
leikur á þar um. Hestar geta dregið
eistun svo hátt upp að þau finnist
ekki við venjubundna þreifingu.
Dýralæknir getur t.d. deyft hestinn
þannig að hann slaki á og
auðveldara sé að leita að
eistunum.
Aðgerðin fer þannig fram að
gerðir eru tveir skurðir, sitt hvoru
megin við miðlínu, annar í einu og
eistað tekið út um skurðinn. Eistað
er í himnu sem skorið er á og þá
koma eistað og eistnalyppurnar í
ljós. Þá er eistað og það sem fylgir
dregið út og klippt á eins ofarlega
og hægt er. Tönginni er haldið á í
góða stund til að stöðva blæðingu.
Síðan er eins farið að hinum
megin.
Hreyfingin er lykilatriði
Að sögn Björgvins Þórissonar
dýralæknis er gríðarlega
mikilvægt að hesturinn sé
hreyfður eftir geldingu og ef hann
er hafður á húsi þá ber að gæta
fyllsta hreinlætis og passa
sérstaklega vel upp á að hreint sé
undir hestinum. "Það er mikilvægt
að klippa himnur og annað sem
gæti lafað niður úr sárinu og
skapað sýkingarhættu. Best er
auðvitað að gelda veturgamla og
tveggja vetra fola í júní þegar þeir
eru búnir að éta sig inn í sumarið
ef maður getur sagt sem svo. Þá
eru þeir betur undir aðgerðina
búnir og kominn meiri leikur í þá
sem tryggir meiri hreyfingu.
Hreyfingin er einmitt lykilatriði til
að koma í veg fyrir samgróninga."
Stag eða strengur
Samgróningar þessir eru
jafnan kallaðir stag eða strengur
og lengi vel héldu hestamenn því
fram að um væri að kenna
óvönduðum vinnubrögðum við
geldinguna. Björgvin segir það þó
yfirleitt fjarri lagi. "Oftast er
hreyfingarleysi um að kenna eða
um er að ræða sýkingu af völdum
óhreinlætis. Þegar verið er að
gelda unga ótamda fola er
mikilvægt að fylgjast með því að
þeir hreyfi sig dagana á eftir, að
þeir séu reknir til og taki vel á því
á hlaupunum. Með eldri hesta er
skynsamlegt að hringteyma þá
fyrstu dagana og þrífa sárið á
hverjum degi. Það verður að vera
hreint undir hestinum og svo má
fara að ríða honum létt á fjórða,
fimmta degi. Um það bil viku eftir
geldingu má fara að taka verulega
til hestsins, en hann er um hálfan
mánuð að jafna sig. Ábyrgð
eigenda er því veruleg hvað stagið
varðar og best að reyna að forðast
það vandamál með því að hafa
hreinlæti og hreyfingu að
leiðarljósi."
Stag finnst yfirleitt ekki í
hrossum fyrr en farið er að temja
þau og þjálfa og lýsir sér þá gjarna
í ákveðinni mótstöðu þegar
hesturinn reynir að hlífa sér. Hann
gæti t.d. farið að taka á móti
taumnum eða ganga skringilega
og stundum sést að
afturfótaskrefið er mislangt.
Dýralæknar geta metið hvort um
þetta vandamál er að ræða og þá
er hægt að skera hestinn við
þessum kvilla en auðvitað er best
að reyna að forðast vandamálið frá
upphafi. /HGG
Hreyfing og
hreinlæti
skipta mestu
- Í kjölfar geldingar á hestum
Það vakti athygli á dögunum
þegar háskólakennari og fram-
kvæmdastjóri tóku að sér að
annast fjósið á Heggstöðum í
Borgarfirði meðan Jónmundur
Hjörleifsson og Margrét Frið-
jónsdóttir brugðu sér til útlanda
í stutt frí. Á Heggstöðum eru 18
mjólkandi kýr í hefðbundnu
básafjósi.
Torfi Jóhannesson, lektor á
Hvanneyri, sagði afar mikilvægt
að menn í hans stöðu fengju öðru
hvoru tækifæri til að fara á vett-
vang og reyna hlutina á eigin
skinni. "Þegar kemur að hönnun á
vinnuferlum þá skipa litlu atriðin
oft mjög miklu máli og margt
uppgötvast ekki fyrr en maður fer
sjálfur að vinna verkin. Á Íslandi
eru flestir bændur með hefðbundin
básafjós en það er einmitt þessi
hópur sem hefur mesta þörf fyrir
leiðbeiningar og ráðgjöf um vinnu-
hagræðingu. Þess vegna er það
dýrmætt að fá svona tækifæri eins
og hér á Heggstöðum."
Snorri Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri LK, sagði að það
gæti komið sér vel fyrir land-
búnaðinn ef starfsmenn bænda -
þeir sem gjarnan sitja á skrif-
stofum - kæmu á stundum og
tækju þátt í daglegum störfum
bænda. "Við erum báðir að upplifa
ýmislegt í fyrsta skipti. Báðir erum
við vanir fjósum með mjaltabásum
en hér er venjulegt íslenskt bása-
fjós. Frá því að við komum hingað
að Heggstöðum höfum við rætt um
það hve miklu máli skiptir að
hugsað sé um vinnuhagræðingu."
- Má búast við því að þegar
Jónmundur bóndi kemur til baka
fái hann heilan hestburð af
ókeypis ráðleggingum?
Snorri lygnir augunum á sinn
hógværa hátt og segir svo: "Við
erum þegar búnir að tímamæla
ýmis vinnubrögð í fjósinu. Til
dæmis höfum við athugað hve
mikill tími fer í að gefa kjarnfóður
og hvort hægt sé að vélvæða þetta
verk - og hvað það muni kosta.
Um þetta og margt annað ætlum
við að ræða við Jónmund þegar
hann kemur heim."
NÝKOM
INN
GLÆSI
LEGUR
KEPPN
ISFATN
AÐUR
Keppn
isjakka
r og
hvítar
reiðbu
xur á
konur,
karla o
g börn
ÓTRÚL
EGT VE
RÐ!
Lynghálsi 4 (gegnt MR-búðinni)
110 Rvk. • S: 567 3300• Fax: 567 3309
info@hestarogmenn.is
www.hestarogmenn.is
ÞAR SEM FAGM
ENNIRNIR VESL
A
Alltfyrir hesta og menn
...og alltaf ódýrastir
✔ Fóðurvörur
✔ Bætiefni
✔ Reiðtygi
✔ Hnakkar
✔ Fatnaður
✔ Skeifur
✔ Hesthúsavörur
✔ Járningavörur
✔ O.fl., o.fl.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Landsins
fjölbreyttasta
úrval af hnökkum
Top Reiter Z
Sport 2000
Þór
Hrímnir
Skagfjörð
Skagfjörð Gull
Orri
Keilir
Jarl
Flóki
Svaði
Hrafn
Sleipnir
Feldman PRO
Vintec
Piet Hoyos
Í fjósinu á Heggstöðum. T.v. Snorri Sigurðsson og Torfi Jóhannesson.
Stóðu upp frá skrifborðunum
og gerðust fjósamenn!
Nýr fóðurbíll hjá MR
Mjólkurfélag Reykjavíkur tók í notkun fyrir tæpum tveimur mánuð-
um nýjan fóðurbíl af gerðinni Mercedes Benz. Þórir Haraldsson,
framkvæmdastjóri MR, sagði að tankbíllinn sjálfur taki 18 til 19
tonn og tengivagninn um það bil 8 tonn af fóðri. Þetta eru dýr tæki,
kosta á bilinu 16 til 17 milljónir króna.
Mjólkurfélag Reykjavíkur er með fjóra fóðurbíla. Einn bíllinn
hefur aðsetur á Akureyri og dreifir þaðan en fóðrið er flutt þangað
sjóleiðina. Annar bíll hefur miðstöð í Vík í Mýrdal og dreifir fóðri til
bænda undir Eyjafjöllunum.