Bændablaðið - 08.06.2004, Blaðsíða 41
Þriðjudagur 8. júní 2004 41
Þórunn Hjaltadóttir varð fyrir
því að köttur sem hún átti,
kallaður Cesar, og hún hélt
mikið upp á , át af liljublóm-
vendi sem var á heimilinu og
veikist hastarlega og drapst
nokkrum sólarhringum síðar.
Við krufningu komu í ljós ein-
kenni um nýrnaskemmdir.
Þórunn segir frá þessu á heima-
síðu sinni á netinu en slóðin er
www.kisur.tk.
,,Að gefnu tilefni langar mig
að vara kisueigendur við því að
kettirnir þeirra séu að narta í blóm.
Ég komst að því í síðustu viku að
flest blóm geta verið mjög hættu-
leg og valdið kisum og öðrum
lifandi verum miklum skaða.
Cesar var mjög hrifinn af
blómvendi sem ég hafði á gólfinu
hjá mér og hann byrjaði að gæða
sér á honum á sunnudaginn
síðasta. Daginn eftir var hann
óvenju rólegur og hafði hægt um
sig, á öðrum degi hætti hann að
borða og varð enn veiklulegri og
ég dreif hann upp á dýraspítala og
lét athuga hann. Dýralæknirinn
þreifaði magann á honum og fann
greinilega að þar var allt stíflað.
Ég var send heim með hann og átti
að gefa honum olíu til að reyna
losa um hægðirnar. Það varð
engin breyting á einum sólarhring,
hann hvorki borðaði né skilaði ein-
hverju frá sér. Ég dreif hann aftur
á föstudeginum upp í Víðidal og
þá var hann "lagður inn" og fékk
meðhöndlun. Það var tekin
röntgenmynd af maganum á
honum og hún sýndi miklar upp-
safnaðar hægðir. Honum var gefin
stólpípa sem að losaði heilmikið
um.
Núna eru liðnir 6 dagar síðan
að hann át blómin og hann er enn
slappur og er ekki enn farinn að
borða. Hann drekkur vatn og
virðist vera farinn að hressast.
Hann Cesar minn dó 19. maí eftir
mikla og erfiða baráttu..." Síðan
segir hún. ,,Endanlegar niður-
stöður liggja fyrir... Það er ljóst að
blómin ollu þessari eitrun...
En ég vil segja frá því að
blómið sem kötturinn át heitir eld-
lilja og er banvæn ef ekkert er að-
hafst strax. Margar tegundir í lilju-
fjölskyldunni eru eitraðar. Það má
búast við nýrnabilun eftir ca 36-
72 tíma. Ég og maðurinn minn
höfum verið að fara í saumana á
þessu máli og fundum þessa
heimasíðu
http://www.charitywire.com/00-
02547.htm Þetta er félag sem er í
Englandi og hefur verið að vara
fólk við þessari hættu."
Upplýsingar um þessi mál má
einnig sjá á eftirfarandi heima-
síðum:
http://www.cfainc.org/articles/
lily-dangers.html
oghttp://www.aspca.org/site/Fram
eSet?style=User&url=http://www.
aspca.org/toxicplants/M01947.htm
Flest blóm af liljuætt eru
lífshættuleg köttum