Bændablaðið - 08.06.2004, Side 16

Bændablaðið - 08.06.2004, Side 16
16 Þriðjudagur 8. júní 2004 2 Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra setti Norræna mjólkuriðnaðarþingið kl. 10:00 á sunnudag, 6.júní, og síðan voru haldin þrjú erindi um framtíðarviðhorf í mjólkuriðnaði. Í málstofum var fjallað um mjólk og heilsu út frá ýmsum sjónarhornum eins og yfirskrift þeirra bar með sér: Heilsubætandi áhrif mjólkur; Heilsutengdar vörur frá neytendasjónarmiði; Heilsubætandi mjólkurvörur (markfæði); Markaðsmöguleikar hefðbundinna mjólkurafurða; Kynbætur og erfðatækni; Framleiðsluferli framtíðarinnar og Rannsóknir og þróun. Haldnir voru 25 fyrirlestrar og meðal fyrirlesara voru margir þekktir fræðimenn og forráðamenn í mjólkuriðnaði á Norðurlöndum. Nánar má lesa um 40. Norræna mjólkuriðnaðarþingið á vefslóðinni www.meierikongress.is Norrænt mjólkuriðnaðarþing Mjólkin er markfæða náttúrunnar og hefur sem slík margvísleg heilsubætandi áhrif. Mjólkin er orkudrykkur af náttúrunnar hendi, næringar- og proteinríkur drykkur, sem marga matvöruframleiðendur myndi dreyma um að skapa, ef hann væri ekki þegar til. Mjólkin er smart matvara sem gefur mikla næringu en inni- heldur fáar kaloríur. “Það er út frá þessum stað- reyndum, sem fengið hafa marg- víslega staðfestingu í geysi- miklum rannsóknum á síðustu árum sem fyrirlesarar á Norræna mjólkuriðnaðarþinginu hafa reifað sína framtíðarsýn”, segir Einar Matthíasson formaður fag- nefndar þingsins, sem haft hefur veg og vanda að efnishlið þess. Heilnæmi styrkt og bætt “Í mjólkinni eru 14 af 18 lífs- nauðsynlegum vítamínum og steinefnum sem líkaminn þarf á að halda. Heilbrigðisyfirvöld margra landa ráðleggja fólki ýmist að drekka tvö glös af mjólk á dag, fimm desilítra af mjólk- urvöru eða 3-4 skammta á dag. Þetta er engin tilviljun því tvö glös gefa 15-100% af dags- þörfinni fyrir umrædd næring- arefni”. Einar segir að sambandið milli rangra matarvenja, hreyf- ingarleysis og lífstílskvilla eins og ofþyngdar, glúkósofnæmis, hás blóðþrýstings og aukinnar blóðfitu sé almennt viðurkennt. Það geti síðan leitt til áunninnar sykursýki og hjarta- og æðasjúk- dóma. Rannsóknir hafi sýnt fram á að í mjólk séu ýmis náttúruleg efni sem hafi heilsubætandi áhrif í þessum efnum og umræðan innan mjólkuriðnaðarins beinist að því að sannreyna þessi áhrif og þróa vöru sem styrkir eða bætir við heilnæmi mjólkuraf- urða. Heilsubætandi efni “Athyglin beinist ekki síst að fitusýrum eins og CLA sem ekki aðeins brýtur niður líkamsfitu heldur er talin hægja á myndun krabbameinsfruma og hafa góð áhrif á nýrnastarfsemi. Hormón eins og melatonin sem bætir svefn og lækkar líkamshita er einnig áhugavert rannsóknarefni og sums staðar farið að markaðs- setja kvöldmjólk á þeim grunni. Þá er mjög verið að skoða ýmis næringarefni í mjólk sem reynast vera lífvirk á þann veg, að eggja- hvítuefni (prótein) brotnar niður í meltingarfærunum í búta sem geta reynst hafa holl áhrif á líkamsstarfsemina. Þessi peptíð er að finna bæði í mysupróteini og ostapróteini. Þróaðar hafa verið ýmsar vörur á þessum grunni meðal annars LH sem talið er hollt gegn blóðþrýstingi.” SMART - umbúðir Einar Matthíasson segir einnig að athyglisvert hafi verið að fylgjast með umræðum um SMART-pökkun á mjólkur- iðnaðarþinginu. Umbúðir eru í mikilli þróun og í augsýn séu pökkunaraðferðir sem draga fram bragð, auka heilsutengda eðliskosti vöru eða eru hluti af vörunni á þann hátt að þær megi borða með henni. Þá sé ekki nokkur vafi á því að brátt verði upplýsingatæknin hagnýtt í umbúðum á ýmsa vegu í þágu neytenda, t.d. með því að um- búðirnar gefi til kynna með litar- breytingum hversu lengi þær hafi verið geymdar og hvort þær hafi verið geymdar í verslunum við rétt hitastig og kjöraðstæður. Sannreyndar rannsóknir “Við leggjum mikla áherslu á að starf í mjólkuriðnaði byggist á sannreyndum og ritrýndum rannsóknum. Á þeim er hægt að byggja framfarir í fóðrun kúa til að styrkja ákveðna eðliskosti mjólkur, þróun nýrrar fram- leiðsluvöru og fræðandi mark- aðssetningu um hollustu mjólk- urafurða. Þær eru einnig vísir að þróun margra tegunda markfæðis, þar sem lögð er áhersla á sértæk heilsubætandi áhrif. Loks eru þessar rannsóknir einnig að skila framförum í lyfjagerð og framleiðslu fæðu- bótaefna sem byggir á næring- arefnum og hormónum úr mjólk. Þetta er allt saman ný vídd í mjólkuriðnaði sem á fram- tíðina fyrir sér”, segir Einar Matthíasson, markaðs- og þróunarstjóri Mjólkursam- sölunnar, að lokum. Fulltrúar aðildarlanda við opnunar- hátíðina. Frá vinstri: Hanne Marie Storrö Noregi, Jonas Svensson Svíþjóð, Rigget Förnäs heiðursfé- lagi Norræna Mjólkurtækniráðsins, Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra, Hólmgeir Karlsson, formað- ur Norræna mjólkurtækniráðsins, Flemming Aamann Danmörku og Heikki Lammela Finnlandi. Einar Matthíasson: "Við þurfum ekki að finna upp hjólið - við höfum mjólkina sem orkudrykk frá náttúrunnar hendi." Einar Matthíasson, formaður fagnefndar 40. Norræna mjólkuriðnaðarþingsins: Ný vídd í mjólkuriðnaði

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.