Bændablaðið - 08.06.2004, Síða 23

Bændablaðið - 08.06.2004, Síða 23
Þriðjudagur 8. júní 2004 23 BÆNDUR ATHUGIÐ Vegna mikillar sölu á nýjum dráttarvélum getum við boðið úrval af góðum notuðum vélum af ýmsum gerðum. Leitið upplýsinga hjá sölumönnum okkar Nýr mjólkur- samningur samþykktur Atkvæði um nýjan mjólkur- samning voru talin þriðjudaginn 1. júní sl. Á kjörskrá voru 1.529 og var kosningaþátttaka 67%. Alls var 961 með samþykkt samningsins eða 94% en þeir sem höfnuðu samningnum voru 43 eða 4%. Auðir og ógildir seðlar voru 17 eða 2% atkvæða. Haraldur Benediktsson, for- maður Bændasamtaka Íslands, sagði í samtali við Bændablaðið að hann væri ánægður með hvað þátt- takan í kosningunni hafi verið mikil. Um póstkosningu var að ræða á hinum mikla annatíma bænda um þetta leyti árs. ,,Úrslit kosninganna eru líka afar ánægju- leg og sýna að bændur eru tilbúnir til að taka þeim breytingum sem þeir verða að gera á sínu umhverfi. Bændur skilja fullkomlega kall tímans í því og niðurstaðan segir okkur að þeir vilja og ætla að standa sig á komandi tímum. Þeir eru ánægðir með það umhverfi sem þeim er skapað og því er þessi niðurstaða verðmæt fyrir heildar- samtök bænda og styrkir þau enn frekar,“ sagði Haraldur Benedikts- son. Þórólfur Sveinsson, formaður Landssamband kúabænda, sagði niðurstöðu kosninganna ánægju- lega. Hann segir úrslitin ekki hafa komið sér mjög á óvart enda hefði hann ekki mikið verið að velta þeim fyrir sér og ekki sett sig í spámanns stellingar. ,,Úrslit kosninganna segja okkur hins vegar að bændur eru sáttir við það sem við vorum að gera og það er það sem skiptir máli,“ sagði Þórólfur Sveinsson. fjölnota gripaflutningakerrur 4 - 5 hesta kerrur á hagstæðu verði Lágmúla 7 S: 588 2600 og 893 1722 Eigum einnig kerrur sem rúma tvo til þrjá hesta á aðeins kr. 438.660- án/vsk. Ný send ing!

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.