blaðið - 20.05.2006, Page 42

blaðið - 20.05.2006, Page 42
42 i krakkaRnIr LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 blaðið ■ Leikbœjarkrossgátan Hlaupahjól ívinning Leikbær gefur glæsilegt Jambuster hlaupahjól í vinning fyrir sigurvegara Krakkakrossgátunnar. Notið meðfylgjandi myndir til þess að finna út hvaða orð passa í reitina. Raðið svo stöfunum í reitunum með litlu númerunum saman og þá fáiði út lausnarorðið. Sendið lausnarorðið á netfangið krakkar@bladid.net eða heimilisfangið Krakkasíða Blaðsins, Hádegismóum 2, uo, Reykjavík. Vinningshafi síðustu viku Lausnarorð Leikbæjarkrossgátunnar 13. maí var: Sólin gerir allt svo fagurt. Dregið var úr réttum lausnum og getur vinningshafinn haft samband við skrifstofu Blaðsins til að nálgast hlaupahjólið sitt. Ásdis Rúna Guðmundsdóttir Goðalandi 11 108 Reykjavik js — Emilía Sara Ólafsdóttir, 11 ára Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Mig langar að verða rithöfundur og sjávarlíffræðingur Hvaða kvikmynd sástu síðast og hvernig fannst þér hún? Ég sá Nanny McPhee í bíó með ömmu minni. Mér fannst hún skemmtileg. Hver er uppáhalds maturinn þinn? Makkarónur og ostur er í haldi hjá mér. uppá- Bim/Frikki Hvenær áttu afmæli? Ég á afmæli á þjóðhátíðardegi Norðmanna, 17. maí. I hvaða skóla ertu og í hvaða bekk? I 5.NS í Lindaskóla í Kópavogi. Hver er uppáhalds tölvu- leikurinn þinn? Yoshi island. I honum er maður lítil risaeðla sem er að passa baby Maríó sem er að fara í einhvern kastala. Hvað finnst þér skemmtileg- asta fagið í skólanum? Heimilisfræði finnst mér skemmti- legust af því að þar fæ ég að elda. Hvernig tónlist finnst þér skemmtilegast að hlusta á? Svona tónlist eins og Paparnir spila og Lúdó og Stefán. Æfirðu einhverja íþrótt? Nei, en mér þykir gaman að taka þátt í hlaupum. Hvað ætlarðu að gera í sumar? Ég ætla að fara í sumarbúðir í Öl- veri og svo ætla ég að fara til Dan- merkur með mömmu. systkinum og frænkum mínum. Hvað finnst þér skemmti- legast að gera? Mér finnst skemmtilegast að lesa af því að í bókum og blöðum er hægt að finna og lesa um marga skemmtilega hluti. svo Ef þú fengir eina ósk, hvers myndirðu óska þér? Að ég gæti svifið um i þyngdar- leysi. Það er það sem mig langar mest af öllu.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.