blaðið

Ulloq

blaðið - 10.11.2006, Qupperneq 6

blaðið - 10.11.2006, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006 blaöiA INNLENT Dólgur handtekinn Lögreglan í Reykjavík handsamaði ungan mann sem lét ófriðlega í austurbænum um miðjan dag á miðvikudaginn. Sá hafði meðal annars í hótunum við lögreglumennina. I fórum hans fundust tveir hnífar sem voru haldlagðir. HÁLFS ÁRS FANGELSI Sló mann með bjórflösku Hæstiréttur dæmdi karlmann í sex mánaða fangelsi í gær fyrir að hafa slegið annan karlmann í andlitið með bjórflösku á skemmtistaðnum Players. Við það brotnaði flaskan og hlaut maðurinn meðal annars áverka á auga í árásinni. Hluti dómsins er skilorðsbundinn. HAFNARFJÖRÐUR Rannsókn á lokastigi Mál Franklíns Steiner er á lokastigi rannsóknar en hann var handtekinn 14. september síðastliðinn. Þá var gerð húsleit á heimili hans og hjá öðrum einstaklingi og þar lagt hald á fíkniefni. Einnig fundust skotvopn ásamt meintu þýfi. Franklín var sleppt eftir yfirheyrslur en eftir á að taka ákvörðun um málsókn. Síbrotamaður ók undir áhrifum áfengis: Dæmdur í fangelsi Hæstiréttur staðfesti í gær dóm héraðsdóms þess efnis að karl- maður skuli sæta sextíu daga fang- elsi og sviptur ökurétti ævilangt fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bíl án ökuskírteinis og undir áhrifum áfengis. Hann var stöðvaður við ölvunaraksturinn í desember síðastliðnum, en hann hefur í fjölda tilfella verið sviptur ökuleyfi til lengri eða skemmri tíma. Krafa hins ákærða um ómerk- ingu héraðsdóms var reist á þvi að héraðsdómur hafi átt að vera fjöl- skipaður um meðferð opinberra mála og að verulegir annmarkar hafi verið á mati hans á sönnun- argildi munnlegs framburðar og öðrum sönnunargögnum. .alltaf opiö! Opnunartimi: Virka daga 16 - 22 Um helgar 12-22 Hækkaðu þig upp um einn PfiPINOS Reykjavíkurvegi 62 Hafnarfirði Núpalind 1 Kópavogi Hverafold 1 -5 Grafarvogi Við eigum næsta leik Reykvíkingar - munið prófkjör Samfylkingarinnar Veljum vel á S-listann! Mörður Arnason 4,- 6. sæti a listanum www.morclur.is Opiö öllum stuöningsrnönnum kosiö d morgun i Próttarheimilinu, LauqarcJal.Jd 1 Einföld markmið Vinstri grænir taka stökk i fylgi og mælast vel yfir kjörfylgi. Formaður flokksins segir hann ekki vera bótu og stefnir á að gera hann að þridja stærsta flokki landsins. Mynd/BrynjarCmi Vinstri gr Stefnála'aðlvc stærsti flóKKu Síðustu kosningar vonbrigði Skýr valkostur með öfluga talsmenn Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net „Þetta er fín niðurstaða fyrir Vinstri græna og þeir komu líka vel út úr síð- ustu sveitarstjórnarkosningum. Ct frá þessu tvennu má gera ráð fyrir að þeir bæti nokkuð við sig fylgi í næstu kosningum," segir Baldur Þórhalls- son, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Islands. I nýjasta þjóðarpúlsi Capacents taka Vinstri grænir stórt stökk og mælast verulega yfir kjörfylgi sínu frá síðustu kosningum. Flokkur- inn bætir við sig ellefu prósent- < ustigum á landsvísu. Steingrímur }. Sigfús- son, formaður Vinstri grænna, er ánægður með mælinguna og segir niður- stöður síðustu kosninga von- brigði. Hann segir fylgisgrunn flokksins traustari en þar birtist. „Mælingar flokksins hafa verið mjög stöðugar og virka trúverðugar," segir Steingrímur. „Fyrir síðustu kosn- ingar duttum við í örlitla lægð og náðum okkur seint upp úr henni.“ Ofmetin staða Aðspurður segir Baldur að staða Vinstri grænna hafi mælst töluvert sterkari í könnunum fyrir síðustu kosningar heldur en skilaði sér á end- Mælingar flokksins hafa veríð mjög stöð- ugar og virka trúverðugar. Stelngrímur J. Sigfússon FormaðurVinstri grænna anum. Úrslitin hafi því verið ákveðin vonbrigði og hann veltir fyrir sér hvort fylgið nú sé svipuð bóla og fyrir síðustu kosningar. „Fylgi flokks- ins var verulega ofmetið síðast og þá fékk hann ekkert sérstak- lega góða útkomu," segir Baldur. „Kostur flokksins er hins vegar sá að hann hefur mjög skýra afstöðu í flestum málum. Jafn- framt hefur hann mjög öfl- uga talsmenn og kjósendur velkjast ekkert í vafa um hvað þeir standa fyrir.“ Steingrímur segir holt undir þeirri kenningu að flokkurinn sé bóluflokkur og að sú kenning ríg- haldi í síðustu alþingiskosningar. .Útkoma okkar í sveitarstjórnarkosn- ingunum er vísbending um að svo sé ekki. Þar vorum við að fá það sem kannanir mældu okkur,“ segir Stein- grímur. „Flokkurinn er stofnaður með þann tilgang að vera skýr val- kostur til vinstri og við teljum okkur vera trú þeirri grunnhugsun." Mælast hærra Ágúst Ólafur Ágústsson Varaformaður Samfylkingarinnar Það er í eðli flokka sem eru yst á kant- inum að mælast hærra en þeir fá í kosningum. Það hefur gerst áöur hjá Vinstri grænum og virðist ætla að gerast núna. Nýjasta útspil Frjálslynda flokksins viröist ætla að taka dálítið frá Vinstri grænum enda hafa þeir byggt meir á þjóðrembu hingað til en aðrir flokkar. Fengið meðbyr Guðjón A. Kristjánsson Formaður Frjálslynda flokksins Fyrir síðustu kosningar mældust Vinstri grænir töluvert yfir kjörfylgi. Hvort það gerist í næstu kosningum skal ég ekki segja. Miöað viö þessar tölur er Ijóst að þeir bæta vel við sig fylgi. Mikil umræða um virkjanir og náttúrumál undanfarið hefur hjálpað þeim. Málstaður flokksins í umhverfismálum hefur fengið töluverðan meðbyr. Haffa ekkl traust HjálmarÁrnason Þingflokksformaður Framsóknar Eins og yfirleitt er staða Vinstri grænna góð í könnunum. Þeg- ar nær dregur alvör- unni, hinni eiginlegu skoðanakönnun sem kosningarnar eru, þá virðast kjósendur ekki treysta þeim til að fara með fjármál ríkisins. Mér sýnist sú þróun hafin og farið að síga undan. Frekar skýr stefna Guðlaugur Þór Þórðarson Þingmaður Sjálfstæðisflokksins Vinstri grænir mega eiga að þeir eru fastir á sín- um hugmyndafræðilega grunni. Þeir hafa verið töluvert leiðandi í stjórn- arandstöðunni. Þeir eru ekki eins viðkvæmir fyrir tískusveiflum og hinn vinstri flokkurinn. Af þeim sökum er stefna Vinstri grænna skýr- ari og það skilar þeim auknu fylgi. Þurfa að halda sinum megin- baráttumálum í umræðunni. Baldur Þórhallsson prófessorí stjórnmálafræði SAMANBURÐUR Á FYLGI: Október 2006 Kosningar2003 ■ Alls: 20% ■ Alls: 9% ■ NV: 18% ■ NV: 11% ■ NA: 21% ■ NA: 14% ■ S: 16% ■ S: 5% ■ SV: 17% ■ SV: 6% ■ RS: 21% ■ RS: 9% ■ RN: 23% ■ RN: 10% Stærsta mál samtímans Baldurbendiráaðumhverfismálin hafi verið mjög áberandi á árinu og þar standi flokkurinn sterkur vegna einarðrar afstöðu sinnar. „Þetta þarf hins vegar ekki að þýða að umhverf- ismálin verði eitt af meginkosninga- málunum. Fyrir síðustu kosningar datt botninn úr umræðunni um um- hverfismálin," segir Baldur. „Forysta flokksins þarf að gæta þess að halda sínum meginbaráttumálum í umræð- unni því það skiptir sköpum.“ Steingrímur er sammála því að um- hverfismálin hafi fallið í skuggann fyrir síðustu kosningar og segir um- ræðunni þá hafa verið spillt. Hann er þeirrar skoðunar að umhverfismálin séu eitt stærsta mál samtímans. „ And- rúmsloftið í umhverfismálum er allt annað nú. í síðustu kosningum var þeim snúið upp í neikvæða umræðu," segir Steingrímur. „Þá sameinuðust allir í því að berja á okkur.“ Hefur ekki áhyggjur af Samfylkingunni Aðspurður segir Baldur Vinstri græna hingað til hafa getað leyft sér að vera einir lengst til vinstri en nú virðist Samfylkingin halla sér meira til vinstri. Hann spáir því að mikið muni mæða á flokks- forystunni í komandi baráttu. Stein- grimur er þeirrar skoðunar að á meðan Samfylkingin halli sér til vinstri í sumum málaflokkum halli hún sér lengra til hægri í öðrum. Hann hefur þvi ekki áhyggjur af því að Samfylkingin taki af flokknum fylgi og er sannfærður um gott gengi í komandi kosningum. „Okkar markmið er að halda okkur í góðu tveggja stafa fylgi, ná mönnum inn í öllum kjördæmum og fella ríkis- stjórnina. Við viljum gera Vinstri græna að þriðja stærsta stjórnmála- flokki landsins," segir Steingrímur. „Meira þarf ég ekki til þess að vera ánægður eftir kosningar."

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.