blaðið - 10.11.2006, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006
blaðið
UTAN UR HEIMI
AFGANISTAN
Daprir yfir afsögn Rumsfeld
Ráðamenn í Afganistan segjast daprir yfir afsögn Don-
alds Rumsfelds, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna,
en afar þakklátir fyrir stuðning hans við afgönsku þjóð-
ina. Bandaríkjaforsetí segir að stefnan breytist ekki þó
nýr maðurtaki við emþættinu.
UMillHllff?
Látin kona vinnur kosningar
Mary Steichen sigraði í kjöri til sýslufulltrúa í litlum
bæ í Suður-Dakóta á þriöjudag. Steichen bauð sig
fram á sínum tíma en lést úr krabbameini í sept-
ember. Þrátt fyrir þá staðreynd ákváðu kjósendur
að styðja hana til góðra verka í embætti.
Sýnagóga opnuð í Miinchen
Samkomu- og bænahús gyðinga hefur verið opnað í
Múnchen sextíu og átta árum eftir að Adolf Hitler fyr-
irskipaði að það sem stóð fyrir skyldi rifið. Samkomu-
húsið er í miðborg Munchen og er opnun þess sögð til
marks um blómlegt samfélag gyðinga á síðari tímum
" ii
_
Skattrannsóknarstjóri:
Fjórir sóttu
um embættið
Fjórar umsóknir bárust fjár-
málaráðuneytinu um embætti
skattrannsóknarstjóra sem var
laust til umsóknar. Bryndís Krist-
jánsdóttir, forstöðumaður lög-
fræðisviðs skattrannsókarstjóra-
embættisins, Gísli H. Sverrisson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
flutningadeildar varnarliðsins,
Guðrún Björg Bragadóttir skatt-
stjóri og Guðrún Jenný Jónsdótt-
ir, deildarstjóri úrskurðardeildar
réttarsviðs ríkisskattstjóra, sóttu
um. Fjármálaráðherra skipar
í stöðuna til fimm ára frá ára-
mótum. Skúli Eggert Þórðarson
skattrannsóknarstjóri lætur af
stöfum um áramót og mun taka
við embætti ríkisskattstjóra.
Enn er ekki búið að selja afurðirnar af langreyðunum sem veiddust:
Reynt að liðka fyrir sölu
■ íslensk stjórnvöld ræöa við Japana ■ Bjartsýnn á aö kjötið seljist ■ Reglugerðir flækjast fyrir
Óformlegar viðræður standa nú
yfir milli íslenskra og japanskra
stjórnvalda til að reyna að liðka
fyrir sölu hvalkjöts til Japans.
Ásta Einarsdóttir, lögfræðingur
hjá sjávarútvegsráðuneytinu, segir
ekki um söluviðræður að ræða
heldur snúi þær fyrst og fremst að
samræmingu reglugerða. „Þetta
eru óformlegar viðræður varðandi
fyrirkomulag verslunar með hval-
kjöt og hvernig við eigum að aðlaga
okkur að eftirlitskerfi Japana."
Það sem af er veiðiárinu hafa
verið veiddar sjö langreyðar sem
hafa skilað af sér um eitt hundrað
tonnum af hvalkjöti.
„Ekkert vesen
að losna
viðþetta“
Kristján Loftsson,
útgerðarmaður
Kristján segir mikið hafa breyst
varðandi reglugerðir á þeim árum
sem hafa liðið síðan Islendingar
Kristján Loftsson útgerðar-
maður segist fyrst og fremst
horfa til markaða í Japan
með sölu á kjötinu. „Þetta eru
stórir hvalir og kjötið er of
gróft til þess að það
henti mörkuðum í Nor-
egi og Færeyjum."
I
T»L
stóðu síðast í hvalveiðum. Hann
er þó bjartsýnn á að hægt verði
að selja allt kjötið til Japans. „Það
hefur aldrei verið neitt vesen að
losna við þetta til Japans. Ætli þetta
skýrist ekki betur eftir tvo
Áá v til þrjá mánuði."
J
Hvalskurður í Hvalfirði
nt
i
ák Um hundrað tonn af hval-
y i kjöti biða nú sölu
■1 . HKiMBWX .
Jógvan viö Keldu:
Allir tali sænsku
iH
ké
Allir Norðurlandabúar eiga að
læra og tala sænsku í samskiptum
sínum. Þetta sagði Jógvan við Keldu,
fulltrúi Færeyinga á þingi Norður-
landaráðs, í ræðu á þinginu fyrr í
mánuðinum.
„Sænskan er útbreiddasta Norður-
landamálið og því er eðlilegast að
allir Norðurlandabúar læri það. Ef
við ætlum að standa af okkur yfir-
gang ensku tungunnar verðum við
að hrinda þessu í framkvæmd. Ef
ekki, þá munum við Norðurlanda-
búar tala ensku hverjir við aðra og
þannig missum við sameiginleg nor-
ræn einkenni okkar.“
Helmingurinn
af ánægjunni
KEF KHT3005
Fyrir vikið stækkar sæti bletturinn
heima hjá þér (sweet spot) og
hljómurinn dreifist um mun
stærra svæði í rýminu.
KEF hefur einkaleyfi á þessari
tækni og kallar hana „Sit-any-
where Uni-Q“ tækni.
Hljómurinn verður jafnari
(hljóðdreifmg, ekki hávaði) og
upplifunin á bæði mynd og
hljóði verður öll miklu betri.
Fyrir utan háþróaða tækni hefur
KEF lagt mikla áherslu á
glæsilegt útlit, nútímalega og
stflhreina hönnun sem fyrir
marga er hinn helmingurinn af
ánægjunni.
Njóttu til fulls ánægjunnar af því
að horfa á gott sjónvarp með
KEF heimabíói.
KEF hefur þróað þá einstöku
tækni að staðsetja „tweeter"
hátalarann í miðju bassa-
hátalarans. Hljómurinn hefur því
eina uppsprettu, í staðinn fyrir
tvær; eins og í hefðbundnum
hátölurum.
WKEF.
Bílar skemmdir:
Spreyjaöir
og beyglaðir
Skemmdarverk voru unnin á
tólf bílum við Iðavelli í Kefla-
vík. Spreyjað var með svartri
málningu á alla bílana og einnig
var einn bíll með dældað bretti,
líklega effir spark eða högg. Farið
var inn i einn bílinn og rótað
til í honum en engu var stolið.
Talið er að skemmdarverkin
hafi verið framin á tímabilinu frá
klukkan 21 á þriðjudagskvöld til
miðvikudagsmorguns. Lögregl-
an í Reykjanesbæ segir að tjón
vegna skemmdarverkanna hafi
verið töluvert en ekki sé búið
að meta hversu mikið það var.
Unicef:
Lofað 60
milljónum
UNICEF á íslandi skrifaði í
gær undir samstarfssamning
við fimm af stærstu fyrirtækj-
um landsins. Baugur Group,
FL Group, Fons, Glitnir og
Samskip skrifuðu undir samn-
ing þess efnis að þau myndu
styrkja samtökin um fjórar
milljónir á ári, næstu þrjú árin.
Þessi samningur skilar
UNICEF 60 milljónum í heild-
arstyrki. UNICEF er búið að
starfa á tslandi í rúm tvö ár.