blaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 15
blaðiö
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006 15
Vatnsmýrin:
Efnt til nýrrar
samkeppni
Reykjavíkurborg hefur ákveðið
að efna til nýrrar samkeppni
um skipulag Vatnsmýrarinnar
og verður auglýst formlega eftir
hugmyndum í janúar á næsta ári.
Upphaflega stóð til að sam-
keppnin yrði haldin á þessu
ári en kærunefnd útboðsmála
ógilti útboðsskilmála eftir
að Félag sjálfstætt starfandi
arkitekta lagði fram kæru í
júnímánuði. Þóttu skilmálarnir
ekki samræmast reglugerð-
um um opinber innkaup.
Frjálslyndir:
Sniðganga
sendiherrann
Guðjón Arnar Kristjánsson,
formaður Frjálslynda flokksins,
mun ekki hitta
Miryam Shomr-
at, sendiherra
ísraels, á fundi
sem fyrirhugað-
ur var í Reykja-
vík í næstu viku.
Þingflokkur
Frjálslynda
flokksins
tilkynnti sendiráði ísraels í Nor-
egi þetta á þriðjudaginn. Með
þessu fordæmir þingflokkur
Frjálslynda flokksins aðgerðir
Israelshers gegn óbreyttum
borgurum í Palestínu.„Hryllileg
árás ísraelshers á Beit Hanoun
á Gaza-strönd í gær, þar sem
fjöldi óbreyttra borgara féll og
slasaðist, er enn ein staðfesting
á ólíðandi framferði ísrales-
hers í garð borgara í Palestínu,"
segir í tilkynningu frá flokknum.
Pakistan:
Skóli reyndist
kjúklingabú
Pakistanskir lögreglumenn
fundu kjúklinga en ekki
nemendur þegar þeir rannsök-
uðu ríkisrekinn grunnskóla í
Hyderabad. Skólinn reyndist
vera kjúklingabú. Grunur hafði
leikið á um að ekki væri allt með
felldu í skólastarfinu enda nem-
endur sjaldséðir við húsakynnin.
Samkvæmt gögnum yfirvalda
menntamála voru 59 nemendur
skráðir í skólann.
Athugasemd
Tölur víxluöust í töflu sem fylgdi grein um
stöðu Frjálslynda flokksins í gær.
Taflan átti að vera eins og hérna.
SAMANBURÐUR Á FYLGI:
| Október 2006 1 Kosningar 2003 1
■ Alls: 4% aAlls: 7%
■ NV: 6% bNV: 14%
bNA: 2% bNA: 6%
b S: 3% b S: 9%
bSV: 3% bSV: 7%
bRS: 4% bRS: 7%
bRN: 4% bRN: 6%
Menntamálaráðherrann fékk ekki að faðma forsætisráðherra sinn:
Faðmar ekki karlmenn
„Forsætisráðherrann faðmar ekki
karlmenn, bara konur,“ voru skila-
boðin sem bárust frá fjölmiðlafull-
trúa Jens Stoltenbergs, forsætisráð-
herra Noregs, eftir að hann hafði
neitað að faðma menningarmálaráð-
herra Noregs í afmælisveislu þess
síðarnefnda.
Trond Giske menningarmálaráð-
herra hélt upp á fertugsafmæli sitt um
daginn og tók hann á móti gestum
sínum fyrir framan sjónvarpsmynda-
vélar. Þegar Stoltenberg mætti á stað-
inn hallaði Giske sér fram í von um
faðmlag en greip í tómt þegar Stolten-
berg steig skref aftur á bak með stirt
bros á vör.
Tilraun til faðmlags Stoltenberg
stígur skref aftur á bak með stirt
bros á vör.
Thorbjörn Jagland, fyrrum forsæt-
isráðherra Noregs, segist þó faðma
karlmenn. „í mínum huga er ekki
mikill munur á því að faðma karl-
menn og kvenmenn, þó að ég eigi
auðveldara með að faðma konurnar.“
Per Kristian Dotterud sálfræð-
ingur segir það verða æ algengara
að karlmenn faðmist. „í Noregi er
engin sérstök faðmlagsmenning, en
hún er þó að ná fótfestu. Nú þykir
undarlegt að Stoltenberg faðmi ekki
samráðherra sína, en á áttunda
áratugnum hefði það þótt ónáttúru-
legt.“Dotterud bendir á að rússneskir
valdamenn faðmist og kyssist þegar
þeir hittast, en George Bush, forseti
Bandaríkjanna, lætur nægja að taka
í hönd annarra valdamanna, óháð
því hvort um sé að ræða karlmann
eða kvenmann.
Lést við messu:
Bitin til bana
Tæplega fimmtug kona í
Kentucky í Bandaríkjunum var
bitin til bana af snák í messu á
sunnudag. Konan tilheyrði hvíta-
sunnusöfnuði. í sumum slíkum
söfnuðum tíðkast að nota snáka
í trúarathöfnum en hald manna
er að sannir kristnir menn eigi
að geta „haldið á höggormi” án
þess bíða af því skaða.
Kópal Glitra þekur betur, ýrist sama og ekkert og er svo til lyktarlaus.
Spurðu um KÓPAL.
Úftsölustaölr Málnlngar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfirði • Málningarbúöin Akranesi
Byko Akranesi • Axel Þórarinsson, málarameistari, Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfirói • Litabúöin Ólafsvík
Núpur byggingarvöruverslun, ísafirði • Vilhelm Guöbjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sauóárkróki
Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfirói • Byko Reyóarfiröi • Verslunin Vík, Neskaupstaó • Byko Selfossi
Miðstöðin Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig. Sigurjónsson, málarameistari, Grindavtk
má/ning
-það segir sig sjólft -
KÓPAL Glitra
Lyktarlaus
m
Erlendur Eiríksson málari:
„Einfaldlega besta málningin sem ég hef notað.“