blaðið - 10.11.2006, Síða 37
blaöiö
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006 37
*
jólalag. Okkur fannst mjög íyndið að
taka amerískt bárujárnslag og gera
jólatexta við það þannig að við tókum
lagið Crazy, Crazy Night með Kiss og
kölluðum það fóla-, jólasveinn," segir
Guðmundur og bætir við að síðan
hafi þeir sent frá sér nýtt jólalag á
hverju ári og síðastliðin tvö ár einnig
aðventulag. „Jólalög lifa mjög skammt,
kannski tvær til þrjár vikur og svo er
það búið. Með því að gefa út aðventu-
lag fær maður kannski eina viku í
viðbót.“
Auk jólalaga sendi sveitin frá sér
stuðningslag fyrir íslenska landsliðið,
hvatningarsöng til Vigdísar Finnboga-
dóttur um að bjóða sig aftur fram til
forseta, sumarlag og páskalag svo
nokkuð sé nefnt.
Guðmundur segir að i kjölfarið hafi
menn verið orðnir áhugasamir um að
gera heila plötu.
„Þá duttum við niður á þessa hug-
mynd að það væri í raun og veru gat
á markaðnum fyrir kántrítónlist. Það
lá beint við. Það var enginn að sinna
henni og þetta er tónlist sem mjög
margir hafa gaman af þó að fáir viður-
kenni það,“ segir Guðmundur.
Djókerar stela tónlistarverðlaunum
Platan Pabbi þarf að vinna í nótt
hlaut mjög góðar viðtökur en Guð-
mundur segir að margir hafi ekki
tekið þá alvarlega sem tónlistarmenn
í ljósi fyrri afreka.
„Við fengum samt þrjár tilnefningar
til íslensku tónlistarverðlaunanna
fyrir Pabbi þarf að vinna og fengum
verðlaunin fyrir lag ársins. Þetta fór
fyrir brjóstið á mörgum, að það væru
einhverjir „djókerar" að stela verðlaun-
unum af alvöru tónlistarmönnum.
Við fengum þarna frábæra flytjendur
með okkur og lögðum heilmikið í
þetta. Tónlistin er náttúrlega misjöfn
og misdjúp en við vorum alla vega
mjög ánægðir með þessa plötu,“ segir
Guðmundur.
Síðastliðið sumar kom út önnur
plata Baggalútsflokksins sem heitir
Aparnir í Eden. Þar er hljómsveitin
enn á kántríbuxunum en með dálitlu
Havaí-ívafi.
Kúvending á næstu plötu
Guðmundur segir að hljómsveitin
hafi þróast mikið á milli platnanna
tveggja og hugsanlega muni þróunin
verða allt önnur á þeirri næstu.
„Við erum að ræða um hvað við
gerum næst. Það eru ýmsar hug-
myndir í gangi og það gæti þess vegna
orðið alger u-beygja eða kúvending,"
segir Guðmundur sposkur.
Margir landsfrægir tónlistarmenn
hafa unnið með Baggalúti í gegnum
tfðina og nægir þar að nefna gömlu
brýnin Rúnar Júlíusson og Björgvin
Halldórsson. Guðmundur segir að
það hafi verið frábært að vinna með
þessu fólki og fá að kynnast því.
„Það hafa allir tekið þessu svo ro-
salega vel og viljað vera með sem er
náttúrlega dásamlegt. Ég vona að það
sé viss gæðastimpill fyrir okkur. Eða
gæðastimpill fyrir þá.“
Að sögn Guðmundar voru flytj-
endur valdir með hliðsjón af lög-
unum og þau hafi kallað á ákveðna
karaktera.
„Það lá til dæmis alveg beint við að
Rúnar myndi syngja Pabbi þarf að
vinna. Það var hreinlega samið með
hann í huga. Það var sama sagan með
Allt fyrir mig. Það kom enginn annar
til greina en Björgvin. Okkur fannst
það alveg steinliggja fyrir hann. KK
söng líka lag sem okkur fannst kalla
á hann. Það var sama sagan með Borg-
ardætur,“ segir Guðmundur.
Fóru yfír strikið á Rás tvö
Baggalútsmenn sitja síður en svo
auðum höndum fyrir þessi jól. Á dög-
unum gáfu þeir út lagið Brostu til
styrktar Barnahjálp Sameinuðu þjóð-
anna (UNICEF), von er á safnplötu
með hinum sívinsælu jóla- og að-
ventulögum þeirra og síðast en ekki
síst eru þeir sestir á nýjan leik fyrir
framan hljóðnemann á Rás tvö þar
sem þeir verða með vikulega þætti.
Fyrir tveimur árum voru þeir með
dagleg gríninnslög í dægurmálaút-
varpi Rásarinnar en Guðmundur
segir að nýi þátturinn sé á öðrum
nótum.
„Þetta eru eins konar fréttaskýr-
ingar. Við tökum það sem er ofarlega
á baugi í umræðunni og reynum að
kafa aðeins dýpra,“ segir Guðmundur.
Grínið verður f fyrirrúmi að vanda
og segist Guðmundur litlar áhyggjur
hafa af því að eitthvað kunni að fara
fyrir brjóstið á yfirmönnum stöðvar-
innar en eins og kunnugt er þurfti
einn starfsmaður hennar nýverið að
taka pokann sinn vegna óheppilegs
gríns.
„Við höfum farið yfir strikið á Rás
tvö og fengum að heyra það þegar
það gerðist. Það voru ákveðin velsæm-
ismörk sem við fórum y fir. Skilst mér.
Þetta var um miðjan dag þannig að
það er kannski ekki skrýtið að ein-
hverjum hafi verið misboðið. Okkur
fannst það ekki á sínum tíma. Okkur
Þó að stjórnmálamenn
geti verið hörundsárir
og taki gríni misvel seg-
ist Guðmundur aldrei
hafafengið neikvæð
viðbrögð frá þeim.
fannst það bara fyndið og skemmti-
legt þannig að ég ætla alls ekki að
vera að afsaka það.“
Gengur einhvern veginn upp
Af umsvifum Baggalúts að dæma
kynnu einhverjir að halda að þeir fé-
lagar gerðu ekki annað en að sinna
starfseminni. Svo er alls ekki enda
vinna þeir allir fulla vinnu og sinna
öðrum áhugamálum aukþess að vera
fjölskyldumenn. Það liggur því bein-
ast við að spyrja Guðmund hvernig
þetta gangi allt upp.
„Þetta hefst einhvern veginn. Við
erum náttúrlega með frábæra sam-
starfsmenn í tónlistinni. Guðmundur
Kristinn í Geimsteini sem spilar með
okkur í hljómsveitinni hefur verið
aðalmaðurinn í þessu tónlistarbrölti
og þetta væri náttúrlega ekki hægt
ef hann væri ekki með okkur. Hann
skipuleggur þetta allt saman og raðar
upp verkefnum,“ segir Guðmundur
og bætir við að sjálfur sé hann því
miður ekki sérlega skipulagður.
„Við erum líka búnir að þekkj-
ast það lengi og vitum hvenær við
þurfum að fara af stað til að ná að
klára hlutina. Stundum mætum við
til dæmis í stúdíó með enga texta
og við klárum þá bara á staðnum.
Stundum er tíminn of naumur en
þetta reddast alltaf.“
Guðmundur óttast ekki að fólk fái
nóg af Baggalúti þegar hann er orð-
inn jafnáberandi og raun ber vitni.
Ekki er heldur að sjá að komin séu
þreytumerki í samstarfið
„Þetta er bara svo rosalega skemmti-
legt og meðan svo er heldur maður
áfram og gerir eins mikið og maður
getur,“ segir Guðmundur Pálsson að
lokum.
einar.jonsson@bladid.net
HÚS OG HÍBÝLI
HÖNNUNARBLAÐIÐ ER KOMIÐ ÚT!
G HIBYLI
LEIKFÖNG FYRIR
LISTAVERKASAFNARA
ísmm
HURNUÐIR
Honnun er í blóma á íslandi og með hverju arinu fjölgar
þeim sem hafa nað fullkomnum tdkum á hinum ýmsu
sviöum hennar. i blaöinu er litið á nokkra islenska
hónnuöi úr mismunandi áttum sem allir eru á kafi i
sínu fagi og lofa góöu i framtiðinni.
Skreytiá§ameisáajT
_áSelfossi"-' !188
Hvernig á að
kaupa myndlist?
ÉÉftJm L’ >w
Einajr og Svala Björgvins Sveinn og Viöar Eggerl
PRE.YMIRUM AÐBÚA FYL6IFISKAR
í LOS ANGELES Í'FOSSVOGINUM -;
m ' I /
ÁrniJohnsen /
MEÐ DÝR Á /
ÖLLUMVEG'GJUM
Sigurjón Sigurgeirsson elskar rauðvín
og vindla. Hann býr í frábærri íbúð við
Laugaveginn sem er eins og sérsniðin
fyrir piparsveina með góðan smekk.
9 ístenskir hönnuðir ræða verk sín
og gróskuna í íslenskri hönnun.
Fagurkerinn Guðbjörg Anna Árnadóttir
á einstaklega fallegt heimili á Selfossi.
Hún rekur Tilefni.is ásamt systur sinni
og er nú á fullu við jólaskreytingar
útumallt land.
Víða í heiminum bíður fólk í röðum
eftir því að kaupa lítil hönnunarleikföng
úr plasti sem eru framleidd í takmörkuðu
upplagi og oft á himinháu verði.
Leiðarvísir Húsa og híbýla fyrir leikmenn og lengra komna.
Hvað ber að varast, hvert á að leita og hvernig á að velja?
Rut Káradóttir innanhússarkitekt valdi
Skildinganes 40 sem uppáhaldshúsið sitt. Hún segir það
látlaust en fágað og sérlega vel staðsett.
Hvaða blað ert þú að lesa? Kynntu þér frábær áskriftarkjör (s(ma 515 5555,
á www.birtingur.is eða sendu okkur póst á askrift @birtingur.is