blaðið - 10.11.2006, Page 38
38 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006
blaðið
Wasabi
Wasabi er ómissandi með sushi. Hægt er að fá
wasabi í duftformi og þá er auðvelt að blanda það
eftir eigin smekk sem er gott fyrir þá sem vilja hafa
það þurrara og sterkara.
matur
Ekki bara spari
Sushi er ekki bara fínn matur í Japan þar sem hefðirnar
er hafðar i hávegum. Sushi er í raun bara ein leið til að
gera mat og þar tíðkast að gera sushi úr kjötbollum og
öllu mögulegu og allt leyfilegt í þeim efnum.
matur@bladid.net
Allt leyfilegt í sushi
Unnur Bergsveinsdóttir
er mikil áhugakona um
sushi og gerir sushi reglu-
lega. Hún leyfir gjarnan
hugmyndafluginu að ráða för og er
óhrædd við að prófa sig áfram.
„Ætli þetta hafi ekki byrjað á því
að ég fékk sushi á veitingastað fyrir
4 árum og fannst það svo ótrúlega
gott. Það er nú svolítið dýrt að fara
alltaf út að borða til að fá sushi þann-
ig að ég ákvað að ég þyrfti að læra
að gera það sjálf, maður þarf að geta
hámað það í sig,” segir Unnur um
hvernig hún byrjaði að gera sushi.
„Það er svo frábært við þessa matar-
gerð að þegar maður er kominn upp
á lagið með að gera það sjálfur þá er
þetta mjög einfalt og skemmtilegt.
Þetta er fallegur matur og gaman
að bjóða fólki í mat. Best er að gera
sushi klukkutíma áður en gestirn-
ir koma þannig að fiskurinn þorni
ekki og allt bragðist sem best. En
það er hægt að gera rúllurnar með
fyrirvara og undirbúa ýmislegt.”
KJÖTBOLLU-SUSHI
Unnur hefur lesið sér til og hún
á dágott safn sushi-matreiðslubóka
auk þess sem hún finnur upplýsing-
ar um sushi á Netinu.
„Það er skemmtilegast að prófa
sig áfram og þegar maður er búinn
að gera sushi nokkrum sinnum þá
verður maður öruggari og djarfari
í að prófa nýjar og spennandi sam-
setningar. Eg reyni alltaf að gera
eitthvað nýtt þegar ég bý til sushi
og fer að búa til djarfar hugmyndir
sem kitla bragðlaukana. Ég prófaði
til dæmis um daginn að gera rúllur
sem voru með laxi og mangóchutn-
ey og ferskri basiliku og það var
mjög gott.”
Margir halda að sushi fylgi mikl-
ar reglur og hefðir en Unnur segir
að það sé alrangt og allt sé í raun-
inni leyfilegt í sushi-gerð.
Ég hef komist að því að sushi sem
þekkist á Vesturlöndum er í raun
mjög takmörkuð útgáfa af því sem
sushi hefur upp á að bjóða. Japan-
ar gera sushi úr soðnum jafnt sem
hráum fiski og þar þekkist að setja
kjötbollur í sushi og hvaðeina. Sushi
í Japan er bara leið til að búa til mat.
fullkomnunarAr-
Attunni sinnt
Unnur segir að fagurfræðin sé
jafn mikilvæg og bragðið. „Þetta er
góður matur fyrir þá sem eru með
fullkomnunaráráttu og það er gott
að finna henni farveg þarna, og í
staðinn fyrir að þurfa að hafa alltaf
fínt heima hjá sér geta þeir búið til
sushi öðru hvoru.”
Unnur segist yfirleitt búa til bæði
rúllur og bita og notar þá lax og tún-
fisk. „Mér finnst líka mjög gott að
búa til rúllur með krabbasalati. Ég
uppgötvaði um daginn að gera svo-
kallað herskipasushi, en öll formin
á sushi eiga sér nafn á japönsku
með vísun í útlit sitt. Hersícipasushi
er kúlur sem eru vafðar með þangi
og fyllingunni mokað inn í en þang-
ið heldur bitanum saman. Kúlurnar
eru eins og lítil herskip sem sigla
um á diskunum. Það er síðan mjög
gott að setja laxahrogn á herskipin.”
Það er mikið að gera hjá Unni
þessa dagana en hún er að skrifa
mastersritgerð um pönkið og vinn-
ur auk þess að undirbúningi mið-
stöðvar munnlegrar heimildar sem
verður opnuð í janúar. Unnur segist
þó alltaf hafa tíma til að búa til sus-
hi þar sem um mikið áhugamál sé
að ræða. „Nú bíð ég eftir að gera sus-
hi þar sem ég er með svo skemmti-
lega hugmynd að nýju sushi sem ég
þarf að athuga hvort virki.”
loa@bladid.net
LANCÖME
P A R I S
Lyf&heilsa
Við hlustum!