blaðið - 14.11.2006, Blaðsíða 23
—B1
Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
Allar almennar bílaviðgerðir
Gylfaflöt 24 - 30 | 112Reykjavík | Sími 577 4477 | Fax 577 4478
Þjónustuaðili
24
Fróðleg námskeið
fyrir unga ökumenn
26
Varahlutaverslun
á Internetinu
28
Draumabíll knatt-
spyrnuþjálfaran>
• ••••••••••••••••••
29
Þröstur 3000 er hald-
inn óbilandi bíladellu
30
Sala og leiga á lyft-
um og kerrum
AJGLÝSINGASÍMIAUKABLAÐA
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Polaris-tækin reynast vel
Fyrirtækið Stormur ehf. var
formlega stofnað í október 2004
en síðan hefur fyrirtækið flutt
inn og selt Polaris-sleða, fjórhjól
og mótorhjól. Polaris-tækin hafa
notið mikilla vinsælda undan-
farin ár, en að sögn Gunnars Valdi-
marssonar hjá Stormi hafa tækin
selst mjög vel hérlendis og rutt
sér verulega til rúms. „Polaris-fjór-
hjólin hafa selst meira en öll önnur
fjórhjól til samans á Islandi og við
erum auðvitað mjög stoltir af þess-
ari velgengni tækjanna. Þetta eru
bandarísk tæki sem hafa komið
gríðarlega vel út og reynst mjög
vel, enda afar vinsæl. Tækin hafa
virkað vel bæði í leik og starfi, en
þau eru til dæmis mikið notuð
af veitustofnunum, verktökum,
bændum og björgunarsveitum auk
þess sem einkaaðilar nota tækin
sér til skemmtunar í frístundum,
bæði sleða og hjól.“
Gunnar segir marga hafa verið
haldna þeirri grillu að snjóskortur
hafi gert vart við sig undanfarin
misseri og lítið færi á sleðaferðum.
,Það hefur samt verið mjög gott
sleðafæri þegar komið er upp á há-
lendi. Það þarf kannski að sækja
snjóinn aðeins lengra en áður, en
þegar komist er í góðan snjó þá
hefur færið verið mjög gott,“ segir
Gunnar. „Ég fór til dæmis ásamt
góðum hópi íslenskra sleðamanna
í sumar á Vatnajökul með Polaris
Industries til þess að prófa nýja
sleða fyrir árið 2007 þar sem við
vorum í 10 daga. Ég verð bara að
segja eins og er að það var eitt besta
færi sem maður hefur kynnst lengi,
þrátt fyrir að þetta hafi verið í júlí.
Eg hef þvælst á jöklum í áraraðir
og hef aldrei vitað eins góðar að-
stæður. Þetta er bara spurning um
að nenna að sækja í snjóinn, þótt
það taki aðeins lengri tíma.
i lebasto
Slókktu á vetrinum með fjarstýringu.
Hitaðu bílinn áður en þú setur hann í gang!
bilahitarar
e/
^°skafc
a
• Aldrei kalt 1 bilnum
• Alltaf hreinar rúður
• Meira öryggi
• Umhverfisvænt
• Auðvelt og þægilegt
| ...
Bíldshöfða 16 | Sími 567 2330
Bílasmiðurinn hf