blaðið - 14.11.2006, Blaðsíða 54

blaðið - 14.11.2006, Blaðsíða 54
ÚTVARPSSTÖÐVAR: RÁS 1 92,4/93,5 • RÁS2 90,1 /99,9 • KISS FM 89.5 • XFM 91,9 • BYLGJAN 98,9 • FM 95,7 • X-IÐ 97,7 • ÚTVARP SAGA 103,3 • TALSTÖÐIN 90,9 • LÉTTBYLGJAN 96,7 <u»>- HVAÐ SEGJA STJÖRNURNAR? Það er eitthvað sem þú hefur ætlað að gera lengi en ekki gert. Ljúktu við þetta en vertu viss um að gera allt sem þú þarft Það er ekki nóg að halda að málinu sé lokið heldur þarftu að vera alveg viss um að það verði engin eftirmál. ©Naut (20. aprfl-20. maO Þú klárar hvert einasta verkefni meö glæsibrag og þú hættir ekki fyrr en þú ert viss um að búið sé að hnýta alla lausa enda. Þú heillast af smáatriðunum en það er líka mikilvægt að huga að endanlegri út- komu. ©Tvíburar (21. maí-21. júnO Þú ættir að viðurkenna fyrir sjálfri/um þér og öðr- um að þú hefur lagt mikið á þig undanfariö til að ná fullkomnun. Þessu hefur fylgt stjórnunarsemi. Slakaöu á og gefðu sjálfri/um þér tækifæri til að draga andann. ©Krabbi (22. júní-22. jlilO Það er eitthvað sem truflar ástvini þína og þú ert ekki viss um hvernig þú getur hjálpað til. Þú getur boðist til að aðstoöa en ef þeir þurfa ekki á þér aö halda skaitu láta þá vita að þú sért til staöar ef þeir þurfa. ®Ljón (23. Júlf- 22. ágúst) Það er eitthvað sem er að naga þig en þú kemur ekki auga á þaö. Sem betur fer geturðu beðið góð- an vin um aðstoö. Jákvætt viðhorf og hjálparhönd hjálpar þér að komast enn lengra. Meyja $ (23. ágúst-22. september) Það er alltaf gáfulegt að hafa gott jafnvægi á milli metnaðar og markmiða. Veldu málefni sem eru nægilega stór til að skipta máli en nægilega litil til að þú getir náð virkilegum árangri. Vog (23. september-23. október) Þaö er tími til að skoða heilsu þína, andlega og lik- amlega. Taktu þér einungis það fyrir hendur sem nærir þigtil lengri tíma litið. Sporðdreki (24. október-21. nóvember) Þú ert athugul/l og hefur þrek en þessir tveir kostir gera það að verkum að þú getur lagað allt sem af- laga fer. Einbeittu þér að þinum eigin málefnum en láttu vini þfna um að leysa úr sfnum vanda. Bogmaður (22. nóvember-21. desember) Hógværð kemur þér ekki þangað sem þú vilt fara, sérstaklega ekki núna. Tækifæri þín margfaldast þegar þú sýnir kosti þína. Vertu þinn eiginn upp- lýsingafulltrúi. Steingeit (22. desember-19. janúar) Það er fátt sem þú vilt frekar en að deila velferð þinni með þeim sem skipta máli. Þú hefur upp á margt að bjóða, hættu að þykjast vera harður ein- fari og leyfðu öörum að taka þátt i lifi þfnu. ®Vatnsberi (20. janúar-18. febrúar) Ef þú einblínir á galla þína þá hættirðu að hafa gaman af lifinu en lætur það draga þig niður. Það er engin lygi að jákvæður hugsunarháttur getur breytt mörgu. Prófaðu það og athugaðu hvernig það hentar þér. ©Fiskar (19. febrúar-20. mars) Þér finnst sem draumar þlnir séu að fuðra upp en þú þarft ekki að hafa áhyggjur. Þessi ákveðna hindr- un er tímabundin. Haltu voninni á lifi með þvf að læra að vinna innan þessara takmarka. Raunveruleg pólitík Röð prófkjara hrúgast yfir okkur þessa dagana. Auglýsingar á auglýsingar ofan flæða yfir hvert heimili með tilheyrandi pappírsflóði. Smáskila- boð fylla farsimana svo að maður hefur ekki und- an að eyða þeim vegna ofurþumla frambjóðenda. Þegar maður gengur niður Laugaveginn í sakleysi sínu grípa óðir þingmenn í hönd manns og kreista úr manni líftóruna. Þeir falast eftir atkvæðum og sannfæra mann um að þeir séu betri kostur en næsti maður til þess að gæta lýðræðisins. Ég er orðinn þreyttur og ég er sennilega ekki einn um það. Þess vegna vil ég einfalda þetta fyrirkomulag. Eðli prófkjörs, og kosninga almennt, er nákvæm- lega eins og má finna í raunveruleikaþáttum sem tröllríða íslensku sjónvarpi. Því væri ágætislausn að gera raunveruleikaþátt um herlegheitin. Ríkis- sjónvarpið myndi að sjálfsögðu sjá um gerð þátt- arins. Við gætum fylgst með þingmönnum leysa hinar ýmsu þrautir undir sterkri leiðsögn Loga Bergmanns og svo kjósum við þá í búrtu sem við náum engum tengslum við. Þátturinn gæti borið nafn- ið „Lýðræði". Við getum tekið þátt í gleði þeirra og sorgum í gegnum Valur Grettisson Vill raimveruleikaþátt um pólitíkusa. Fjölmiðlar valur@blaclid.net sjónvarpsskjáinn. Enginn getur kvartað undan því að fá ekki athygli. Allir eru jafnir. Kjósendur kynnast þá einnig innra eðli manneskjunnar en ekki bara glansandi andliti þeirra á rándýru aug- lýsingaskilti. Að lokum verður einn þraukari eftir. Hann mun verða forsætisráðherra og lýðræðið verður fullnýtt á íslandi. Loksins værum við þá komin með innlent efni sem horfandi er á. Sjónvarpið Sirkus js?=m Sýn 17.05 Leiðarljós 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Magga og furðudýrið 18.25 Safnamýsnar (1:6) 18.30 Kappflugið í himin- geimnum (10:26) 19.00 Fréttir, íþróttir og veður 19.35 Kastljós 20.05 Edduverðlaunin 2006 Kynntar verða tilnefningar til Edduverðlaunanna 2006 sem afhent verða í beinni útsendingu frá Hótel Nord- ica á sunnudagskvöld. 20.15 Veronica Mars (11:22) (Veronica Mars II) Bandarísk spennuþáttaröð um unga konu sem tekur til við að fletta ofan af glæpa- mönnum eftir að besta vinkona hennar er myrt og pabbi hennar missir vinn- una. 21.00 Svona var það (18:22) (That 70’s Show) Bandarísk gamanþáttaröð um ungt fólk á áttunda áratugnum. Með aðalhlut- verk fara Ashton Kutcher, Mila Kunis, Topher Grace, Danny Masterson og Laura Prepon. 21.25 Nærmynd Þáttaröð um norræna kvik- myndaleikstjóra. I þessum þætti er fjallað um Norð- manninn Margreth Olin. 22.00 Tíufréttir 22.20 Lögmál Murphys (6:6) (Murphy’s Law, Ser. 3) Breskur spennumyndaf lokk- ur um rannsóknarlögreglu- manninn Tommy Murphy og glímu hans við glæpa- menn. Meðal leikenda eru James Nesbitt, Claudia ■ Harrison og Del Synnott. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi barna. 23.15 Örninn (3:8) (e) (0rnen) Danskur spennumynda- flokkur um hálfíslenskan rannsóknarlögreglumann [ Kaupmannahöfn, Hallgrím Örn Hallgrímsson, og bar- áttu hans við skipulagða glæpastarfsemi. Meðal leikenda eru Jens Albinus, Ghita Norby, Marina Bo- uras, Steen Stig Lommer, Janus Bakrawi, Susan A. Olsen, David Owe. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi barna. 00.15 Kastljós 00.45 Dagskrárlok 06.58 island í bítið 09.00 Bold and the Beautiful 09.20 f fínu formi 2005 09.35 Martha 10.20 island í bítið (e) 12.00 Hádegisfréttir 12.40 Neighbours 13.05 Valentína 13.50 Silfur Egíls (e) 15.25 Meistarinn (19:22) (e) 16.10 ShinChan 16.35 Mr. Bean 16.55 HeMan 17.15 Nornafélagið 17.40 Bold and the Beautiful 18.05 Neighbours 18.30 Fréttir, iþróttir og veður 19.00 ísland í dag 19.40 Simpsons (6:21) (Simpson-fjölskyldan) 20.05 Amazing Race (Kapphlaupið mikla) 20.50 NCIS (19:24) (Glæpadeild sjóhersins) Bönnuð börnum. 21.35 Prison Break (5:13) (Flóttinn) Bönnuð börnum. 22.20 Shield (11:11) Str. bönnuð börnum. 23.10 Numbers (4:24) (Tölur) 23.55 Deadwood (11:12) (Catbird Seat) Str. bönnuð börnum. 00.45 Robocop2 (Véllöggan) Spennumynd sem fær hárin til að rísa. Véllöggan snýr aftur á stræti Detro- it. Stranglega bönnuð börnum. 02.35 The Anniversary Party (Brúðkaupsafmælið) Dramatísk kvikmynd. Hjón- in Joe og Sally Therrian eiga 6 ára brúðkaupsaf- mæli og bjóða nánum vinum til að gleðjast með sér á þessum tímamótum. Kvöldið lofar góðu en margt fer öðruvísi en ætlað er. Bönnuð börnum. 04.25 NCIS (19:24) (e) (Glæpadeild sjóhersins) Þriðja þáttaröð þessara vin- sælu spennuþátta um störf sérstakrar glæpadeildar hjá bandaríska sjóhernum. Bönnuð börnum. 05.10 Fréttir og island í dag Fréttir og island í dag end- ursýnt frá því fyrr í kvöld. 06.20 Tónlistarmyndbönd frá Popp TiVí 07.00 6 til sjö (e) 08.00 Rachael Ray (e) 08.45 Innlit/ útlit (e) 15.00 Just Deal (e) Bandarísk unglingasería um þrjá ólíka vini. 15.30 One Tree Hill (e) Bandarísk unglingasería. 16.20 Beverly Hills 90210 Bandarísk unglingasería. 17.05 RachaelRay 18.00 6 til sjö Guðrún Gunnarsdóttir og Felix Bergsson eru í beinni útsendingu alla virka daga og taka á móti góðum gest- um í myndveri SkjásEins. 19.00 Everybody Loves Raymond (e) Bandarísk gamansería. 19.30 Out of Practice (e) Bráðfyndin gamansería. 20.00 Queer Eye for the Straight Guy Fimm samkynhneigðar tískulöggur þefa uppi lúða- lega gaura og breyta þeim íflotta fýra. Hinirfimm fræknu heimsækja Hector Delgado, fyrrverandi her- mann sem nú er bundinn við hjólastól eftir átök í írak. Þeir sýna honum hvernig hann getur haldið áfram að lifa fjörugu lífi þrátt fyrir fötlun sína og breyta heimili hans í samræmi við nýjar þarfir. 21.00 Innlit / útlit Hönnunar- og lífsstílsþátt- ur þar sem Þórunn, Nadia og Arnar Gauti koma víða við og skoða hús, híbýli og flotta hönnun. 22.00 Close to Home Lögfræðidrama af bestu gerð. Annabeth Chase er ungur saksóknari sem vill ólm fá öll erfiðustu glæpa- málin og hlifir sér hvergi. Kona sem er sökuð um morð á eiginmanni sinum ákveður að sjá sjálf um málsvörn sína og ber við sjálfsvörn. 23.00 Everybody Loves Raymond Bandarísk gamansería. 23.30 Jay Leno Spjallþáttur á léttum nótum. 00.15 Survivor: Cook Islands Bandarísk raunveruleik- asería. 01.15 Surface (e) 02.05 Beverly Hills 90210 (e) 02.50 Ústöðvandi tónlist 18.00 Insider(e) 18.30 Fréttir NFS 19.00 islandidag 19.30 Seinfeld 20.00 EntertainmentTonight 20.30 The Hills Lauren úr Laguna Beach- þáttunum erflutttil L.A. og er á leiðinni (skóla. 21.00 So You Think You Can Dance2 Niðurskurðurinn heldur áfram og nú kemur í Ijós hvaða tveir keppendur verða sendir heim í kvöld. 22.05 Rescue Me 22.55 24 (21:24) Bönnuð börnum. 23.40 Insider í heimi fræga fólksins eru góð sambönd allt sem skipt- ir máli. Og þar er enginn með betri sambönd en The Insider. (þessum þáttum fara stjórnendurnir með okkur í innsta hring stjarn- anna þar sem við fáum að sjá einkaviðtöl, nýjustu upp- lýsingarnar og sannleikann á bakvið heitasta slúðrið í Hollywood. 00.05 My Name is Earl (e) 00.30 The War at Home (e) (Runaways) 00:55 Seinfeld (e) Jerry, George, Elaine og Kramer halda uppteknum hætti í einum vinsælasta gamanþætti allratíma. 01.20 Entertainment Tonight 01.45 Tónlistarmyndbönd frá Popp TV 18.05 Gillette Sportpakkinn 18.35 Meistaradeild Evrópu - fréttaþáttur 19.05 Harlem Globetrotters: The Team 20.00 X-Games 2006 - þáttur 2 Nýtt tímaþil er hafið i X-Games og er þetta ann- ar þátturinn átímabilinu. ksjóníþróttlr eins og þær erast bestar í sannkall- aðri hátíðarstemningu í Kaliforníu. 21.00. Mourinho's Ultimate (Mourinhos Ultimate) Einstakur sjónvarpsþáttur um forvitnilega keppni sem fram fór í akademíu David Beckhams í apríl 2006. 21.50 Goðsagnir Chelsea - Eiður Smári (Chélsea Legend - Eiður Smári) Breskur þáttur um Eið Smára Guðjohnsen þar sem sérstaklega er farið yfir feril hans hjá Chelsea. 22.50 Veitt með vinum (Breiðdalsá) 23.20 Ensku mörkin 23.50 Steven Gerrard: Sagan til , þessa (Steven Gerrard - A Year in my life - part 2) ■h Þáttur um enska knatt- spyrnumanninn Steven Gerrard sem gerður var í m aðdraganda HM í Þýska- iandi. Spjallað við Gerrard, samherja hans og mótherja og sýndar svipmyndir af þvi helsta á hans ferli. Skjár sport 07.00 Að leikslokum (e) 14.00 Sheffield Utd. - Bolton (frá 11. nóv) 16.00 AC Milan - Roma (frá 11. nóv) 18.00 Þrumuskot(e) 19.00 Að leikslokum (e) Snorri Már Skúlason fer með stækkunargler á leiki helgarinnar með spark- fræoingunum Willum Þór Þórssyni og Guðmundi Torfasyni. 20.00 Chelsea - Watford (frá 11. nóv) 22.00 Middlesbrough - West Ham (frá 11. nóv) 00.00 Dagskrárlok 06.00 Lísa litla á fína hótelinu 08.00 The Commitments (e) 10.00 MarineLife 12.00 OneFineDay 14.00 Lisa litla á fina hótelinu 16.00 The Commitments (e) 18.00 MarineLife 20.00 One Fine Day 22.00 House of Sand and Fog Bönnuð börnum. 00.05 The Last Ride 02.00 Texas Rangers Str. bönnuð börnum. 03.55 House of Sand and Fog (Hús byggt á sandi) Simpsons á Stöö 2 klukkan 19.40 Hneyksli í Springfield Fræg fréttakona sem heitir Chloe Talbot kemur til Springfi- eld til að rannsaka hneyskli sem tengist Quimby borgar- stjóra. Chloe notar tækifærið og heimsækir Marge en þær voru í eina tíð saman i blaða- mannanámi. En á meðan Chloe öðlaðist virðingu og frægð þá þróaðist lif Marge í allt aðra átt, eins og Simpsons-unnendur vita best. Og Marge er ennþá beisk og bitur yfir því og lætur það bitna á Chloe vinkonu sinni og ekki bætir úr skák þegar Lisa tekur ástfóstri við þessa farsælu kjarnakonu. Þess má geta að það er engin önnur en Kim Cattrall, Sam úr Sex and the City, sem talar fyrir Chloe Talbot. Nærmynd í Sjónvarpinu klukkan 21.25 Margreth Olin í fremstu röð Nærmynd er þáttaröð um norræna kvikmyndaleik- stjóra. f þessum þætti er fjallað um Norðmanninn Margreth Olin. Hún er aðeins hálffertug en þykir þó í fremstu röð heimildarmyndahöfunda á Norðurlöndum. Meðal mynda hennar eru I kjærleikens hus, frá 1994, Onkel Reidar, frá 1997, Dei mjuke hendene, frá 1998, Kroppen min, frá 2002, sem er um hana sjálfa, og með tveimur siðastnefndu myndunum náði hún til mun stærri áhorfendahóps en norskar heimildar- myndir gera yfirleitt, en allar myndir hennar eiga það sammerkt að vera sterkar frásagnir af alvörufólki. í þættinum er meðal annars fylgst með Olin við upp- tökur á mynd sinni Ungdommens ráskap, þar sem hún fylgist með nem- endum og kennurum í 10. bekk grunnskólans í Hauketo í hálft ár og styðst í þeirri vinnu við manifestó Lars von Triers um heimildarmyndir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.