blaðið - 24.11.2006, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2006
blaðið
INNLENT
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Jöfn tekjuskipting á Islandi
Tekjuskipting á (slandi er með jafnasta móti þegar
ekki er tekið tillit til fjármagnstekna. Þetta kemur
fram í vefriti fjármálaráðuneytisins. Þar segir að
hæstu og lægstu tekjur á Islandi hækkað hlutfalls-
lega jafnt á undanförnum árum.
KYNFERÐISBROT
Hæstiréttur staðfestir dóm
Hæstiréttur Islands staðfestir dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur yfir manni sem misnotaði dóttur sína gróf-
lega og vinkonu hennar. Hann var dæmdur í þriggja
ára og sex mánaða fangelsi fyrir athæfið og til að
borga stúlkunum tvær og hálfa milljón í skaðabætur.
I.IARMAI ARAIJHI RRA
Skattur á geisladiskum lækkaður
Virðisaukaskattur á geisladiskum verður lækkaður úr 24,5
prósentum í 7 prósent samkvæmt frumvarpi Árna M. Mathie- ■ JgL-. '"^4
sen fjármálaráðherra. Verði frumvarpið samþykkt á Alþingi
mun það taka gildi í mars á næsta ári eða um leið og aðrar «íiw*fc tj%f" ,¥2u--
boðaðar breytingar á virðisaukaskattslögunum. S "‘r mm
j?
BJARTUR
OUMDEILDUR
MEISTARIHINNAR
UTHUGSUÐU
SPENNUSOGU
Eg er sko
með allt á
hreinu!
Sýknaður af ákæru um að nauðga
unglingi Tuttugu og sex ára gamall mað
ur var sýknaður af þvíað hafa nauðgað
fimmtán ára stúlku í bifreiðinni sinni.
samræðis
Sýknaður af ákæru um áð þrö:
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
26 karlmaður var sýknaður í
Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru
um að hafa nauðgað fimmtán ára
stúlku. Fjölskipuðum héraðsdómi
fannst óeðlilega langur tími líða á
milli þess að athæfið átti sér stað og
kærunnar. Einnig þótti framburður
stúlkunnar ekki sýna fyllilega fram
á að maðurinn hefði nauðgað henni.
Dómarar töldu þó að stúlkan og
maðurinn hefðu átt kynferðismök
þrátt fyrir að hann neitaði allan tím-
ann að þekkja stúlkuna.
Maðurinn á nokkurn afbrotaferil
að baki og fór fyrsta skýrslutaka
af manninum fram á Litla-Hrauni.
Hann hefur hinsvegar aldrei orðið
uppvís að kynferðisbrotum.
Atvikið átti sér stað í byrjun sumars
2005. Maðurinn mun hafa verið góð-
vinur föður stúlkunnar en samkvæmt
framburði hennar passaði hann stúlk-
una og vinkonu hennar áður.
Hinn örlagaríka dag fór hún
ásamt vinkonu sinni með honum
í bíltúr. Hann stöðvaði bifreiðina
fyrir framan skóla. Þar á hann
að hafa klæmst við stúlkurnar og
meðal annars spurt þær hvort þær
vildu báðar sofa hjá honum í einu.
Það hugnaðist stúlkunum ekki.
Maðurinn bað þá aðra stúlkuna
um að fara út úr bílnum sem hún
og gerði.
í framburði fórnarlambsins segir
að maðurinn hafi klætt hana úr
buxunum og síðan sjálfur afklæðst.
Hún segir að hann hafi sett hana
ofan á sig og haft við hana mök.
Svo hafi hann lagt hana á bakið
og haldið áfram. Hún segist hafa
grátið á meðan á kynmökunum
stóð. Einnig segist hún hafa spurt
ítrekað hvort þau ættu ekki að ná
í vinkonu hennar fyrir utan. Hann
hafi ekki ansað því samkvæmt vitn-
isburði hennar.
„Ég skil hreinlega ekki
röksemdafærsluna,
segir Guðrún Birgis-
dóttir, réttargæslu-
maður stúlkunnar,
um sýknudóm hér-
aðsdóms. Hún segir
að dómurinn hafi
komist að þeirri
niðurstöðu að mað-
urinn væri að segja
ósatt um að hann
þekkti ekkert
til stúlkunnar
og að hann
hafi sofið hjá
henni. Þá
væri einnig
undarlegt
h v e r s u
lítið mark
er tekið
á orðum
s t ú 1 k -
unnar en í
dómsorði
er það
tekið fram
að hún sé bæði
feimin og ófram-
færin að eðlisfari.
Þá mun stúlkan
hafa verið kölluð tvisvar til vitnis í
héraðsdómi en slíkt er afar óalgengt
í kynferðisbrotamálum. Að sögn
Guðrúnar hefur hún ekki áður orðið
vitni að svona miklum andlegum af-
leiðingum af meintu kynferðisbroti.
„Það hefði verið réttast að ákæra
manninn fyrir misneytingu til
vara,“ segir Guðrún og bætir við
að hún trúi ekki öðru en að ákæru-
valdið áfrýi málinu til Hæsta-
réttar íslands.
„Við mátum það svo að ekki
þyrfti að ákæra manninn
til vara,“ segir Sigríður Elsa
Kjartansdóttir, fulltrúi rík-
issaksóknara, en áfrýjun
málsins er til skoðunar.
Ákæruvaldið hefur átta
vikur til þess að
meta málið
og hvort for-
senda sé fyrir
áfrýjun
S a m -
k v æ m t
Sigríði er
ómögulegt
að leggja
mat á það
að svo
komnu
m á 1 i
hvort mál-
inu verði
áfrýjað.
Hrikalegar andlegar afleiðingar Sam-
kvæmt réttargæsiumanni stúlkunnar,
Guðrúnu Birgisdóttur, hefur hún aldrei
orðiö vitni að jafn miklum andlegum af-
leiðingum i nauðgunarmáli.
Mislæg gatnamót Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar opnuð:
Þremur vikum á eftir áætlun
Eftir Atla Islefsson
atlii@bladid.net
Umferð var hleypt á mislæg gatna-
mót Vesturlandsvegar og Suður-
landsvegar aðfaranótt gærdagsins,
rúmum þremur vikum eftir að fram-
kvæmdir áttu að klárast.
Jóhann J. Bergmann, deildarstjóri
hjá Vegagerðinni, segir að byrjað
hafi verið að fræsa burtu gamlar yf-
irborðsmerkingar og merkja nýjar á
miðvikudagskvöldið. „ Síðan var um-
ferðinni smám saman hleypt á. Enn
vantar lýsingu á nokkra ljósastaura,
en allir vegvísar og umferðarmerki
eiga að vera komin á sinn stað.“
Eftir er að vinna afreinina upp á
Suðurlandsveg til austurs. Sú um-
ferð fer um hjáleið á meðan verið er
að ljúka því verki og segir Jóhann að
það geti tekið um eina til tvær vikur.
Þegar verkið var boðið út var miðað
við að verkinu myndi ljúka 1. nóv-
ember. „Við vorum í startholunum
að hleypa umferð á í síðustu viku,
en kuldakastið gerði það að verkum
að ekki var hægt að vinna við yfir-
borðsmerkingar, þannig að við frest-
uðum opnuninni.“
Jóhann segir að verið sé að fara
yfir það hvort verktakinn verði sekt-
aður fyrir seinaganginn. „Verkinu er
ekki alveg lokið, en magnaukningar
voru í verkinu og við eigum eftir að
hlutfalla það endanlega upp. Nú er
verið að ganga frá lokauppgjöri.“
I