blaðið - 24.11.2006, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2006
blaöið
UTAN ÚR HEIMI
Tugþúsundir fylgdu ráðherra til grafar
Tugþúsundir Líbana fylgdu Pierre Gemayel, ráðherr-
anum sem var myrtur í vikunni, til grafar í Beirút í gær.
Ráðherrann var einn helsti baráttumaður gegn áhrifum
Sýrlendinga í Líbanon og hafa stjórnvöld í Damaskus
verið sökuð um að vera viðriðin morðið. Þau neita því.
Varað við heróínflóði
Yfirmaður fíkniefnamála hjá Sameinuðu þjóð-
unum hefur varað við því að heróínflóð sé um
það bil að skella á Evrópu. Er þetta rakið tii mik-
illar ræktunar á valmúa í Afganistan. Costa segir
efnið vera hreinna en áður og hættulegra.
SÓMALÍA
Stríð í uppsiglingu
Forsætisráðherra Eþíópíu segir að stjórnvöld
hafi lokið undirbúningi fyrir stríð gegn íslam-
istum í Sómalíu. I ræðu sinni á þingi í gær
sagði Zanawi að íslamistarnir væru mikil ógn
við þjóðaröryggi Eþíópíu.
Heilsu rússnesks uppljóstrara sem var eitrað fyrir hrakar:
KR-ingar:
Vilja knatt-
spyrnuhús
„Við erum að skoða svæðið
í heild sinni og meðal annars
möguleikann á að byggja lítið
knattspyrnuhús,“ segir Ingólfur
Már Ingólfsson, framkvæmda-
stjóri KR.
Arkitektastofan Andrúm
hefur fyrir hönd KR lagt fram
fyrirspurn fyrir skipulagsráð
Reykjavíkur um mögulegar
breytingar á deiluskipulagi við
KR-völlinn. Er markmiðið að
skoða hvar megi koma fyrir
knattspyrnuhúsi á lóðinni.
Málið var tekið fyrir á fundi
ráðsins í síðustu viku og vísað
til umsagnar íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur og
hverfisráðs Vesturbæjar.
Að sögn Ingólfs hafa KR-
ingar átt í viðræðum við borgar-
yfirvöld um mögulegt samstarf
en ekkert liggur enn fyrir í
þeim efnum. „Við höfum fengið
jákvæð viðbrögð en erum hins
vegar ekki komnir með nein
loforð.“
Litvinenko á valdamikla óvini
■ Glæpasamtök og embættismenn vildu þagga niður í honum ■ Hafði verið varaður við
Mario Scaramella, sem er ítalskur
sérfræðingur í njósnum Sovét-
manna á tímum kalda stríðsins, full-
yrðir að að hagsmunir skipulagðra
glæpasamtaka og háttsettra embætt-
ismanna í Rússlandi hafi falist í því
að þaggað yrði niður í Alexander
Litvinenko, fyrrum leyniþjónustu-
manninum sem talið er að hafi verið
byrlað eitur fyrir þremur vikum.
Versnar dag frá degi
Litvinenko liggur nú þungt hald-
inn á sjúkrahúsi í London og er í
lífshættu. Ástand hans fer versnandi
dag frá degi og í gær sögðu læknar
hans að fundist hefðu hringlaga að-
skotahluti í ristlinum. Ekki er vitað
um áhrif þeirra.
Mafía frá Pétursborg
Scaramella segir að hann hafi
hitt Litvinenko á veitingastað í
London sama dag og talið er að
honum hafi verið byrlað eitrið. í við-
tali við breska ríkisútvarpið, BBC,
segir Scaramella að Litvinenko hafi
fundað með tveimur Rússum á hót-
eli í borginni fyrr þann dag. Scara-
mello segir að hann eigi valdamikla
óvini og segir að á fundi þeirra þann
dag hafi hann reitt fram bréf frá sam-
eiginlegum heimildarmanni. Bréfið
innihélt aðvörun um að líf Litvinen-
kos væri í hættu.
Scaramella segir að hald Litvin-
enko hafi verið að glæpasamtök
sem starfa í Pétursborg, með hugs-
anleg tengsl við stjórnvöld í Moskvu,
væru á hælum hans. Aðrir vinir Lit-
vinenkos hafa áður haldið því fram
í fjölmiðlum að stjórnvöld í Kreml
séu viðriðin veikindi hans. Þeim
ásökunum hefur verið vísað á
bug.
Gagnrýndi Pútín
Alexander Litvin-
enko, sem nú
breskur ríkisborg-
ari, gerðist harður
gagnrýnandi Vlad-
imírs Pútíns í kjöl-
far þess að hann
hætti að starfa
fyrir rússnesk
stjórnvöld. Árið
2002fullyrtihann
í bók sinni Rúss-
land sprengt upp
að stjórnvöld hefðu
staðið fyrir hryðju-
verkaárásum í landinu
sem hefðu kostað 300
manns lífið en kennt að
skilnaðarsinnum í Tsjetsj-
eníu um þær. Áður en hann
veiktist var hann að rannsaka
Mario Scaramella Hitti Litvin-
enko sama dag og hann veiktist.
morðið á Önnu Politkovskaya.
Hún var blaðamaður sem
' , hafði rannsakað stjórn-
völd í Rússlandi og
\\ Tsjetsjeníu og sakaði
4 þau um óhæfuverk.
\ Politkoskaya var
, skotin til bana
\ í október og
voru stjórnvöld
í Tsjetsjeníu
sökuð um að
hafa staðið að
baki morðinu á
henni.
Hryðjuverka-
lögregla Bret-
lands rannsakar
nú mál Litvinenkos
og er talið að það
geti haft víðtækar pól-
itískar afleiðingar finnist
sannanir fyrir því að veik-
indin séu tilkomin vegna inn-
töku eiturs.
lif
[ý
Þegar gæðin skipta máli
Lotus Professional borðpappírsvörur
Til hátíðabrigða
Halldór Sigdórsson
aðstoðarverslunarstjóri hjá RV
í verslun RV að Réttarhálsi eru
nú á tilboði Lotus LinStyle
dúkar og servíettur í mörgum
litum. Einnig eru á tilboði
ýmsar gerðir af servíettum,
diskamottum og „löberum"
með jólamynstri.
Takmarkað magn er í boði af sumum
jólavarningi. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2*110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
W
Indónesía:
Hnefaleika-apar
lausir úr ánauð
48 órangútanar sneru
aftur til heimkynna
sinna í Indónesíu í
gær eftir að hafa varið
stærstum hluta lífs síns
í að keppa í hnefaleikum
í skemmtigarði í Bang-
kok á Taílandi. Aparnir
fengu höfðinglegar mót-
tökur á herflugvelli i
Djakarta við heimkom-
una og fór eiginkona for-
Öpunum hafði
verið smyglað frá Ind-
ónesíu á sínum tíma
og þeim komið fyrir í
skemmtigarði í Bang-
kok. í garðinum voru
þeir klæddir upp að sið
hnefaleikamanna og
þeim att saman gestum
til skemmtunar. Hnefa-
leikakeppni apa hefur
um áratugaskeið verið
seta landsins, Kristiani III meðferð Hætt var að eitt helsta aðdráttar-
Yudhoyone, fyrir mót- ^ta fPa keppa i hnefaleik- af| skemmtigarðsins.
tökunefndinni. Forseta- um 2004. Hinsvegar var þeirri
frúin sagði endurkomu þeirra vera iðju hætt fyrir tveimur árum í
sambærilega við það þegar týndi kjölfar þrýstings frá alþjóðlegum
sonurinn snýr loksins heim. dýraverndunarsamtökum.
Höfðinglegar móttökur
Forsetafrú Indónesíu tekur
á móti einum af öpunum.