blaðið - 24.11.2006, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2006 27
dögunum að þá hefði verið ákveðið
að bíða og sjá til og fylgjast með fugl-
unum. Þetta getur ekki hafa verið
hættulegt fyrst að yfirdýralæknir
lætur fuglana vera áfram innan um
hópinn. Nú eru liðnir níu mánuðir og
á þessum níu mánuðum hefur ekkert
gerst. Það hefur enginn fugl veikst.
Það hefur enginn smitastf segir Jó-
hanna sem sér engin rök fyrir því að
gripið sé til þessara aðgerða núna.
Aðgerðirnar þjóna engum tilgangi
Jóhanna hefur meðal annars
leitað til erlendra sérfræðinga í dýra-
sjúkdómum út af atburðunum í
Húsdýragarðinum.
„Ekki einn einasti þeirra skilur
þetta. Þeir segja að þegar það finnast
mótefni sem eru gömul og dýrin eru
búin að vera saman áður þá hefur
þetta ekkert upp á sig og þjónar
engum tilgangi," segir hún.
„Við höfum fengið mjög góðan
stuðning að utan bæði frá öðrum
samtökum um gamla stofna á Norð-
urlöndunum og dýralæknum á Norð-
urlöndum og á Bretlandi. Menn eru
náttúrlega afskaplega kurteisir en
þeir efast mjög um svona aðgerðir
og sjá ekki faglegan tilgang með
þeim. Maður stendur ekki einn og
líður því miklu betur þegar maður
er búinn að tala við fólk sem var
kannski að berjast við svona að-
gerðir í fyrravor. Það er löngu liðin
tíð. Menn gera ekki svona lengur
úti,“ segir Jóhanna.
„Yfirdýralæknir talaði um það að
það sé venjan erlendis að drepa alla
fugla þegar það sem hann kallaði
smit finnist. Það er bara alls ekki
venjan nema kannski í verksmiðju-
búum. Þetta var gert í Danmörku
í fyrravor og það varð allt vitlaust.
Þeir eru hættir þessu vegna þess að
menn eru að gera sér grein fyrir að
mótefni eru ekki hættuleg. Þetta
er úrelt stefna annars staðar. Fólki
finnst að það hafi verið tekin mjög
röng ákvörðun og það er hrætt við að
það eigi að halda áfram á sömu braut
án þess að nokkur fagleg rök liggi þar
á bak við,“ segir hún.
einar.jonsson@bladid. net
Lauggvegi - Faxafeni - Mjódd - Firði, Hgfngrfirð