blaðið - 24.11.2006, Blaðsíða 23

blaðið - 24.11.2006, Blaðsíða 23
blaðið Ef við hættum að reyna að vera ham- ingjusöm þá gæti okkur liðið alveg ágætlega. Edith Wharton cc FðSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2006 23 Afmælisborn dagsms HENRI DETOULOUSE-LAUTREC MÁLARI, 1864 SCOTT JOPLIN TÓNLISTARMAÐUR, 1868 Er Latibær skyndibiti? Er Lafibær skyndibiti? Og meira að segja óhollur skyndibiti? Það er niðurstaða Dagnýjar Krist- jánsdóttur prófessors sem hefur lagst í verk Magnúsar Schevings um íþróttaálfinn knáa og birtir grein um þau í nýju hefti Tímarits Máls og menningar. Fyrirbærið Latibær gæti verið kennsludæmi í menningarfræðum og mark- aðsfræðum, segir Dagný, svo ótrúlega vel hefur gengið að breiða það út um heimsbyggðina. En hvernig er talað til neytend- anna - barnanna - í bókunum og sjónvarpsþáttunum um Latabæ? Að mati Dagnýjar er talað niður til þeirra og afar neikvæð mynd af barninu lögð til grundvallar sög- unum sem sagðar eru. Börnin í Latabæ eru einvíðar persónur, þroskast ekkert og læra ekkert, taka bara við skipunum íþrótta- álfsins - sem verður eins konar nútíma Grýla. Líkami barnanna er vígvöllur, eins og í viðvörun- arsögum 18. aldar, þar sem eilíf TIMARÍT barátta er háð við fýsnir og lesti, því þótt börnin hlýði um skeið eru þau fljót að detta ofan í fýsnir sínar aftur af því þau hafa ekkert lært í raun og veru. í orði kveðnu boðar Magnús Scheving umburð- arlyndi og fordómaleysi en raunin er önnur. Það er eineltiskeimur af því að viðurnefni barnanna skuli ekki breytast þó að þau yfirvinni lesti sína - enda reynast þau ekki hafa yfirunnið neitt. Og hvar eru foreldrar barnanna í Latabæ? Hver á að búa til holla matinn sem íþróttaálfurinn vill að þau borði? Það er kannski von að þau flýi í skyndibitana aftur, yfir- gefin af öllum nema álfinum. Á kápu nýja heftisins er mynd Halldórs Péturssonar af Grýlu sem vísar í afmælisgrein Önnu Þ. Ingólfsdóttur um Vísnabók- ina sextuga í heftinu. Meðal efnis er einnig ítarleg greining Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur á verðlauna- bókinni Engill í Vesturbænum eftir Kristínu Steinsdóttur og Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur, sjötíu ára gamalt bréf frá fimm verkakörlum á Akureyri til Kristins E. Andréssonar sem Árni Bergmann bjó til prentunar, síðari hluti greinar Gísla Sigurðs- sonar um íslenska málpólitík og samanburður Jóns Yngva Jóhannssonar á skáldsögunum Roklandi og 101 Reykjavík eftir Hallgrím Helgason. Ljóð eru í heftinu eftir Þórarin Eldjárn, Ara J. Jóhannesson, Einar Kárason, Kristínu Svövu Tómasdóttur, Magnús Sigurðsson og Hrund Gunnsteinsdóttur. Smásagan er eftir spænska rithöfundinn Ana María Matute. Halldór Björn Runólfsson skrifar um myndlist, Sif Gunnarsdóttir um norrænar kvikmyndir og dr. Gunni fertil Liverpool að heimsækja Bítlana. Loks eru fjölmargar umsagnir um bækur. Fíasól á flandri Hjá Máli og menningu er komin út Fíasól á flandri eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur og Halldór Baldursson. Fíasól er átta ára gamall ferðalangur og óskabarn sem lendir í einhverju fjörugu á hverjum degi. Hér útvegar hún fjölskyldunni einkaþjón, kallar saman nokkra viðskiptarisa til styrktar góðu málefni, hittir næstum því forsetann og bregður sér í ævintýraferð til útlanda. Hressilegar sögur Kristínar Helgu Gunnarsdóttur og bráðfyndnar myndir Halldórs Baldurssonar gera Fíusól að eftirlæti íslenskra bókaorma ár eftir ár. Lítill drengur á dýrabaki Hjá Máli og menningu er komin út Á dýrabaki eftir Brian Pilkington og Þórarin Eldjárn. Margir krakkar hafa farið á hestbak og sumir hafa jafnvel sest upp á fíl en hvernig væri að taka sér far með nashyrningi, gíraffa eða kengúru? Það prófar lítill drengur í þessari bók og kemst að skemmtilegri niðurstöðu. Söguna samdi Brian Pilk- ington í orðum og myndum en Þórarinn Eldjárn Ijóðskreytti á íslensku. Ríkharður Jónsson átti markametið með landsliðinu í 40 ár, 17 mörk í 33 leikjum; og enn á eftir að bæta það. Þá var spilaður fótbolti, sagði Siggi Sig. Jón Birgir Pétursson, blaöamaður og rithöfundur, segir sögu Rikka. Hann var ágætur, kallinn! Saga stráks af Skaganum sem heillaði íslensku þjóðina með snilli sinni í fótbolta. Sorg og mótlæti í æsku bugaði hann ekki. Valinn í landsliðið 16 ára, margfaldur íslandsmcistari. Bauðst að fara í atvinnumennsku en lá við lömun eftir slys á æfingu hjá Arsenal. Hryggbrotnaði í úrslitaleik gegn KR. Landsliðsþjálfari. Málari að atvinnu og ábyrgur fimm barna faðir. Og svo er það pólitíkin.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.