blaðið - 24.11.2006, Blaðsíða 21
blaöió
Ar
Utsaumur,
prjón og þrykk
Áhugi á handavinnu hefur auk-
ist mjög á síðustu árum og í saum-
klúbbum er nú saumað og prjónað
af kappi en ekki bara talað eins og
oft var áður. Útprjónaðar lopapeysur
eru vinsælli en nokkru sinni og alls
kyns púðar með fallegum ísaumi
eru einnig mjög vinsælir.
Nýlega var opnuð í Kópavogi
hannyrðaverslun sem nefnist Kven-
legar listir en slíkar vtrslanir hafa
einmitt týnt tölunni hver af annarri
síðastliðin ár.
„Handavinna á að vera skemmti-
leg og afslappandi. Sjálfri finnst mér
notalegt að setjast niður á kvöldin
og skapa eitthvað fallegt. En þá
skiptir líka miklu að efniviðurinn
sé góður og spennandi og þannig
hannyrðavörur kappkosta ég að
bjóða,” segir Halldóra Arnórsdóttir,
eigandi verslunarinnar.
Nafn verslunarinnar vekur athygli
en það er fengið frá séra Sveini Ólafs-
syni, presti í Vallanesi á Héraði. Hann
orti árið 1654 heilræðakvæði til Guð-
ríðar Gísladóttur um þær kvenlegu
listir sem hún yrði að nema áður en
hún giftist. „Bið ég að þú lærir bestu
hannyrðir," kvað klerkurinn.
Upphefja listir kvenþjóðarinnar
Mörgum finnst ef til vill sem
hér sé hallað á karlana en því eru
Halldóra og Erla Hrönn Sigurðar-
dóttir, textílkennari og starfsmaður
verslunarinnar, ósammála. „Af
hverju má ekki upphefja þær listir
sem hingað til hafa meira verið í
höndum kvenþjóðarinnar? Ekki það
að búðin hefur vakið mikla lukku á
meðal fluguhnýtingamanna lands-
ins,” segir Halldóra.
í Kvenlegum listum er fjölbreytt
úrval af flestu því sem til þarf til
útsaums, meðal annars garn úr
bómull, ull og silki. Mikið úrval er
af bókum og blöðum til útsaums,
meðal annars frá Inspirations og
Country Bumpkin. Að auki fæst
prjónagarn frá hinum þekkta
danska hönnuði Marianne Isager,
ásamt uppskriftum hennar. Einnig
er í versluninni að finna skemmti-
lega hönnun frá Helgu Isager, sem er
ungur og upprennandi prjónahönn-
uður. Þá verður boðið upp á spenn-
andi nýjungar í þrykki, úrval af mis-
munandi þrykkilitum og festum
sem gefa spennandi áferð.
Góð aðstaða
í búðinni er góð vinnuaðstaða
og þar með góð aðstaða til nám-
skeiðshalds. Því er hægt að koma á
námskeið í Kvenlegum listum í öllu
því sem í boði er í búðinni, það er
í útsaumi, prjóni og þrykki. I versl-
uninni er góð aðstaða til að setjast
niður, fá sér kaffi og skoða gott úr-
val af bókum og blöðum um allra
handa handverk.
Hlúðu vel að
hundinum þínum
Auglýsingasíminn er
5103744
EIEHEl
Thea^
www.Thea.is
DÝRARIKIÐ
Grensásvegi s: 5686668
Skútuvogi 16 s:5680020 - Akureyri s:4612540 - www.dyrarikid.is