blaðið - 24.11.2006, Page 24
4
blaöið
Listamannaspjall
Myndlistarmennirnir Hulda Há-
kon og Brynhildur Þorgeirsdóttir
spjalla um sýninguna Málverkið
eftir 1980 á
sunnudaginn
26. nóvember
klukkan 14.00
í Listasafni
íslands. Báðar
eiga þær verk á |
sýningunni en
þær voru úti í
Amerfku þegar iP
nýja málverkið
var að halda innreið sína á (slandi.
Brynhildur og Hulda munu tala
um sýninguna í Listasafninu út
frá tímamótasýningu sem haldin
var í JL-húsinu árið 1983. Þær
stöllur fjalla um hvernig verk
þeirra tengjast straumum og
stefnum þessa tíma og á hvaða
forsendum þær tóku þátt í þeirri
gerjun sem kennd hefur verið við
nýja málverkið. Listakonurnar
hafa báðar vakið athygli fyrir
frumlega efnismeðferð á verkum
sínum.
Rúnum rist andlit
og áttunda ára-
ferðaðist danski
sjöunda
tugnum
ljósmyndarinn Mogens S.
Koch tíu sinnum til Græn-
lands með Hasselblad-myndavélina
sína í farteskinu. Afrakstur þessara
ferða varð þegar yfir lauk yfir íoo þús-
und myndir en nú geta íslenskir ljós-
myndaáhugamenn barið augum lítið
brot þeirra á sýningu sem verður opn-
uð í dag á Ljósmyndasafni Reykjavik-
ur. Myndirnar, sem allar eru teknar í
svarthvítu, sýna stórbrotið landslag
Grænlands þar sem andstæður ljóss
og skugga eru í aðalhlutverki. Mog-
ens fléttar saman landslagið, íbúana
og hrjóstrugt umhverfið í myndum
sínum sem gefa heildstæða og raun-
sæja mynd af landinu sjálfu og heima-
mönnum. Hann framkallar myndir
sínar á hefðbundinn hátt á silfurge-
latín-fíberpappír sem gefur mestu
gæðin og eftir hið hefðbundna fram-
köllunarferli meðhöndlar hann þær
með seleníum-tóner og þurrkar þær
á réttan hátt. Hann leggur áherslu á
að ljósmyndirnar eigi að endast og
mögulega verða fallegri með tíman-
um. Mogens S. Koch hefur í yfir 40
ár unnið ötullega að skrásetningu
með ljósmyndum og ljósmyndavarð-
veislu. Hann var einn af stofnendum
forvörsluskóla Konunglegu listaaka-
demíunnar í Kaupmannahöfn þar
sem fyrst var lögð áhersla á að byggja
upp skráningu með Ijósmyndum.
Nokkuð fljótlega upp úr því tók svo
ljósmyndaforvarsla á sig mynd. Á
síðastliðnum 25 árum hefur Mogens
S. Koch gegnt mikilvægu hlutverki í
faginu á alþjóðavettvangi. Samhliða
kennslunni hefur Mogens séð um ljós-
myndun á verkum margra fremstu
og færustu arkitekta og listhandverks-
manna Dana. Ljósmyndarinn hefur
einnig gert margar stórfenglegar
Hannes - Nóttin
er blá, mamma
Út er komið hjá Nýhil fyrsta bindi
ævisögu Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar
eftir Óttar
Martin Norð-
fjörð. Þetta
fyrsta bindi ber
titilinn Hannes
- Nóttin er
blá, mamma
en von er
á tveimur
bindum til
viðbótar. Bókin er 2 blaðsíður á
lengd og aðeins til sölu í bókabúð
Máls og menningar á Laugavegi og
Þennanum Eymundsson í Austur-
stræti. Hún kostar 99 krónur og
rennur allur ágóði til Mæðrastyrks-
nefndar. Bókin stökk beint í níunda
sæti metsölulistans eftir einungis
einn dag í sölu. Þetta er fyrsta ævi-
saga Óttars en hann hefur getið
sér gott orð fyrir Ijóð sin og í fyrra
kom út hjá Eddu skáldsaga hans
Barnagælur.