blaðið - 24.11.2006, Blaðsíða 25
blaðiö
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2006 25
Fabúla sendir frá sér sína þriðju plötu
Melankólísk leikgleði
Eg er farin að þrá svo mikið
að spila og syngja eftir alla
hljóðversvinnuna og ein-
angrunina að nú ætla ég
bara að njóta þess að flytja tónlistina
fyrir alla þá sem hana vilja heyra,“
segir Margrét Kristín Sigurðardóttir
eða Fabúla eins og hún kallar sig þeg-
ar hún kemur fram. Fabúla hefur nú
sent frá sér plötuna Dusk og heldur
útgáfutónleika í Tjarnarbíói í kvöld
ásamt fríðum flokki tónlistarmanna.
Fabúla hefur áður sent frá sér plöt-
urnar Cut my strings og Kossafar
á ilinni. Fimm ár eru liðin síðan
síðasta plata Fabúlu kom út og bíða
aðdáendur hennar því án efa spennt-
ir eftir því að sjá hana stíga á svið í
kvöld og flytja lögin sín sem oft ein-
kennast af Hflegri karnivalsstemn-
ingu, lírukassaómi og ævintýrabrag.
„Mér finnst þessi plata einkennast af
melankóliskri leikgleði. Það er mik-
ill tregi í henni en líka talsverð gleði
og sirkusandi eins og á fyrri plötun-
um mínum. Ég skil þann anda aldrei
við mig. Þetta er í fyrsta sinn sem ég
sem lög með öðrum, en gítaleikar-
inn Birkir Rafn Gíslason og bassa-
leikarinn Jökull Jörgenssen eru báðir
lagasmiðir og fingraför þeirra eru
því líka á þessari plötu sem er mjög
skemmtilegt.“
Lítið land
Fabúla hefur sterkan bakgrunn
í djassi og klassískri tónlist. Hún
stundaði píanónám við Tónmennta-
skólann í Reykjavík, lærði um tíma
á trommur og nam leiklist i Þránd-
heimi auk þess sem hún nam hljóm-
fræði og píanóleik í London og djass-
söng og píanóleik við FÍH.
„Ég held að þessar rætur mínar
komi vel í ljós á plötunni en það er
líka frábært að fá svona gott fólk
með sér sem einnig setur sinn svip
á verkið.“
Fabúla segir að þau Jökull og Birk-
ir hafi spilað saman í tvö ár en upp-
tökur á plötunni hafi hafist í mars.
„Við byrjuðum á því að fara saman
ásamt Sigtryggi Baldurssyni í lítinn
veiðikofa á Flúðum. Þar tókum við
upp alla grunna að plötunni og unn-
um hana síðan i hljóðveri."
Fabúla og Jökull eiga alla textana
á plötunni og eru þeir á ensku. Að-
spurð um hvers vegna hún kjósi ensk-
una fram yfir íslenskuna segir hún
að á því séu ýmsar skýringar. „Þegar
ég sem íslenska texta er ég svolítið
bundin af hefðbundnum bragregl-
um, stuðlum, höfuðstöfum og rími
og það tefur mig oft. Þá þarf ég oft
að snúa öllu við og semja lag og texta
sitt i hvoru lagi. Mig langar að semja
meira á íslensku en þá þarf ég lík-
lega að reyna að losa mig úr viðjum
bragreglnanna og semja meira óhefð-
bundið. Svo er ísland ákaflega lítið
land og ég er að leggja drög að þvi
að fara með tónlistina mína út fýrir
landsteinana. Hún þarf að komast
frá eyjunni,“ segir Fabúla leyndar-
dómsfull.
Tilhlökkun í loftinu
Fabúla hlakkar mikið til að stíga
á stokk í kvöld og fagna útgáfu plöt-
unnar með pomp og prakt. „Ég nýt
þess að spila. Áður fékk ég mest út úr
þvi að semja en upp á síðkastið hef ég
notið þess i auknum mæli að koma
fram. Tjarnarbíó er líka yndislegur
tónlistarstaður með persónulegt and-
rúmsloft. Fólkið sem er með mér er
líka einstakir listamenn og það eru
algjör forréttindi að fá að koma fram
með því.“
/Gardenlight
útisería
20 Ijósa kr. 169
10493265 verð áður kr. 2
40 Ijósa kr 319
10493266 ,,orA áftnr Irr r
Klakaseríur
úti, díóður,
blátt og hvítt
10493816-3817
kr. 1999
verð áður kr. 3949
Ljósgreinar
skreyttar
10493790
kr. 2290
verð áður kr. 3949
Ljósagardínur
2.0x1.5
10232860
kr. 6900
v verð áður kr. 11.619 ,
/ Blómavali
heillandi heimur
Skútuvogur - Keflavík - Selfoss - Akureyri
Grafarholt - Kringlan - Smáralind