blaðið - 24.11.2006, Síða 28
2 8 FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2006
blaðið
Cafe Sigrún
Á veraldarvefnum er að finna skemmtilegar og góðar uppskriftir á netfanginu www.ca-
fesigrun.com. Uppskriftirnar eru hollar og góðar fyrir þá sem vilja huga að heilsunni og
sleppa sykri og annarri óholltistu. Girnilegar kökur og konfekt fyrir jólin sem valda engu
samviskubiti auk spennandi grænmetisrétta sem ættaðir eru frá fjarlægum löndum.
Handavinna fyrir matgæðinga
Sumir láta sér ekki nægja að borða og elda góðan mat
heldur teygir mataráhuginn sig yfir í handavinnuna. Það
getur verið skemmtilegt að leggja sokkaprjónið á hilluna
og reyna fyrir sér í kleinuhringjahekli og pylsuprjóni.
matur
matur@bladid.net
Uppskrift úr matreiðslubók Jóhönnu
Risahörpudiskur með aspars
Uppskrift (fyrir 4)
• 1 dós stór grænn aspars
• 1 dós hvítur aspars
• 8-12 risahörpu
diskar
• salt og pipar
• smjör til steikingar
• 2 laukar
• 1 blaðlaukur
• 1 askja ferskir sveppir
• 11/2 dl hvítvín
(mysa fyrir þá sem ekki vilja vín)
• 1 dl rjómi
• Vz bolli kóríander
• Vz bolli basilíka
Aðferð
1. Látið vatnið renna af aspars-
inum og þerrið hann. Ef þið notið
ferskan aspars, afhýóið þá stilkinn
neðst og sjóðið í 20-30 mínútur.
Leggið asparsinn á stóran disk.
2. Bræðið smjörið á pönnu og
steikið hörpudiskinn við háan
hita á öllum hliðum, saltið og
piprið. Takið hann af pönnunni
þegar hann er steiktur í gegn og
blandið saman við asparsinn.
3. Skerið lauk, blaðlauk og
sveppi og steikið í smjöri á sömu
pönnu þar til allt er orðið mjúkt.
Hellið hvítvíni út í og blandið vel,
þá rjómanum og kryddjurtunum.
4. Leyfið öllu að blandast vel á
pönnunni þannig að kraumi í.
Hellið þá yfir asparsinn og hörpu-
diskinn og berið fram.
Þessi réttur smakkast ótrúlega vel
og er einfaldur. Best er að útbúa
hann rétt áður en hann er borinn
fram. Gott, ískalt og bragðmikið
hvítvín er best með, Gewúrztr-
aminer er uppáhaldið mitt með
þessum rétti.
Jóhanna Vlgdis
fréttakona er j
iistakokkur L
Jóhanna Vigdís er
þekkt sjónvarpskona
Hún er líka mikill mat-
gæðingur og gefur út
sina fyrstu matreiöslu-
bók núna fyrir jólin.
I matinn er þetta helst
Matreiðslubókin í
matinn er þetta
helst, Jóhanna Vig-
dís býður okkur
heim í eldhús, er
matreiðslubók sem komin er út hjá
JPV útgáfu. Jóhanna Vigdís er að
góðu kunn sem fréttamaður hjá Rík-
issjónvarpinu og les fréttir á meðan
landsmenn borða kvöldmatinn. Jó-
hanna Vigdís er mikill matgæðing-
ur og finnst fátt skemmtilegra en að
útbúa góðan mat. Hún hefur brenn-
andi áhuga á mat og matargerð og
les mikið af matreiðslubókum og
tímaritum um mat.
Langþráður draumur
„Ég var búin að gæla við hugmynd-
ina um að gera mína eigin mat-
reiðslubók í meira en ío ár og þetta
er búinn að vera langþráður draum-
ur hjá mér. Eftir að ég átti fund með
Jóhanni Páli hjá JPV útgáfu fóru
hjólin að snúast og nú er bókin orð-
in að veruleika,”
segir Jóhanna en bókin inniheld-
ur 50 uppskriftir sem eru margar
uppáhaldsuppskriftir Jóhönnu og
fjölskyldu hennar.
„Þetta eru allt uppskriftir sem mér
og mínu fólki finnst góðar og upp-
skriftirnar eru fjölbreyttar ogbókin
inniheldur kjöt- og fiskrétti, súpur
og salöt. Uppskriftunum fylgja góð-
ar leiðbeiningar og allir ættu að geta
eldað eftir þeim,” segir Jóhanna.
Jóhanna bjó um árabil í Sviss og
hefur skrifað um matargerð meðal
annars í Gestgjafann og önnur mat-
artímarit. Hún sækir innblástur í
mið-evrópska matargerð auk þess
sem hún sjálf er hafsjór hugmynda
þegar kemur að matargerðinni og er
sífellt að prófa skemmtilega rétti.
Allar ljósmyndir í bókinni eru
teknar af feðginunum Magnúsi Hjör-
leifssyni og Silju Magg og Jóhanna
eldaði og stillti upp matnum fyrir
myndatökuna. Réttunum í bókinni
er raðað í stafrófsröð sem er óvenju-
legt fyrir matreiðslubók en það er
Börkur Arnarson hönnuður sem á
heiðurinn af hönnun bókarinnar.
Finnst gaman að kaupa í matinn
Jóhanna segir að hún eldi á hverj-
um degi, enda rekur hún sex manna
heimili.
„Ég hef gaman af allri matargerð,
hvort sem það er hversdagsmatur
eða þegar ég hef lengri tíma og get
nostrað við matargerðina," segir
hún og bætir því við að henni finnist
jafnframt gaman að kaupa í matinn,
sem er eitthvað sem mörgum finnst
leiðinlegt verk að framkvæma.
„Mér finnst matartíminn vera dýr-
mæt stund fjölskyldunnar og finnst
mikilvægt að fólk gefi sér tíma til
að setjast niður og ræða saman og
borða góðan mat. Mér finnst þessi
tími vera mikilvægur hvort sem um
stórar eða litlar fjölskyldur er að
ræða.”
Þrátt fyrir að vera vön sjónvarps-
kona segir Jóhanna að ekki sé á döf-
inni að byrja með matreiðsluþætti í
sjónvarpinu. „Ég hef nú ekki hugs-
að mér það og uni hag mínum vel
í fréttunum, finnst álíka gaman að
pólitíkinni og matargerðinni.”
Jóiakarfan býður meðal annars uppð
Nóatúns hamborgarhrygg, veisluosta,
jólasíld og kaviar til hátiðarstemningar.
Sælkerakarfan er með glæsilegu itölsku
ívafi jafnt sem Húsavikur hangilærí og
öðrum girnilegum réttum.
Lífræna karfan kemur úr Grænagarði
Nóatúns og býður upp á vandaðar vörur
tengdar iífrænni hollustu.