blaðið - 24.11.2006, Síða 38
38 F.ÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2006
blaöið
Líkur á andláti
> Líkurnar á því aö manneskja falli fyrir morðingjahendi eru einn á móti 20.000.
> Líkurnar á því að manneskja láti lífið af hundsbiti eru einn á móti 700.000.
> Líkurnar á því að manneskja drukkni í baðkari eru einn á móti milljón.
> Líkurnar á því að manneskja láti lífið af völdum geimrusls eru einn á móti fimm milljörðum.
ítölsk kvikmyndahátíð
Nú stendur yfir ítölsk kvikmyndahátíð í Háskóla-
bíói og um að gera að skella sér í bíó til að fá
ítalskan hita í sálartetrið. Hátíðin stendurtil 3.
desember og verða alls tíu myndir sýndar.
» Piparsveinaeldhúsið
Snorri Sturluson starfar sem dag-
skrárstjóri hjá XFM 919. Hann er
piparsveinn vikunnar og galdrar
fram afskaplega fljótgert tortell-
ini. Dagskrárstjórar hafa engan
tíma til að hangsa í eldhúsinu og
Snorri segir eldhús sitt ekkert til
að hrópa húrra fyrir.
Fullt nafn: Snorri Sturluson.
Andlegur aldur: Tjah...
Starf: Dagskrárstjóri XFM 919.
Fyrirmynd í lífinu: Afreksmenn og
konur af öllum stærðum og gerðum.
Að vinna á togara eða við blóma-
skreytingar: Togara, hef af því glimr-
andi góða reynslu. Sigldur maður!
Eru skór til að ganga á? Neibb... til
að ganga í.
Myndirðu nota Men Expert Power
Buff Anti-Roughness Exfoliator?
Aldrei.
Hræðistu skordýr? Almennt ekki,
en mér er alveg sama þótt ég „hitti”
ekki sumartegundir þeirra á hverjum
degi.
Notarðu nefháraklippur? Nei takk.
Áttu safn af skurðarhnífum og
wok-pönnum í eldhúsinu? Ekkert
rosalegt hnífasafn, sleppurtil, og
fína wok-pönnu.
Finnst þér gaman að baka kökur?
Ekkert sérlega, en ég get alveg
hugsað mér leiðinlegri hluti svo sem.
Ferðu eftir uppskriftum? Það
kemur alveg fyrir.
Rakarðu þig annars staðar en
fyrir ofan axlir? Hehe.
Hvað er kynþokki? Síbreytilegt og
algjörlega óskiljanlegt aðdráttarafl
og áhugahvati.
Rimnaflæði 1
Breiðholtinu
Keppm í rimnaflæði
verður haldin (Mið-
bergi í Efra-Breið-
holti klukkan sjö
í kvöld. Aldurstak-
mörk þátttakenda *
eru miðuð við grunn-
skóla- og félagsmið-
stöðvaraldurinn. Dæmt
verður eftir fjórum at-
riðum: Rímum, flæði, stíl
og textainnihaldi. Húsið
verður opnað klukkan
19.00. Fyrsta atriði á
svið 19.30. Þeir sem
eiga eftir að skrá sig geta skráð
sig á heimasíðu Samfés.
rs Hafðu ^
r gott sjónvarp í T
svefnherberginu (nauð-
synlegt, ásamt góðum nátt-
buxum, fyrir helgarboltann),
en berðu gæfu til þess að
slökkva á þvi á réttum .
\ augnablikum! Á
m
Fljótlegt og hrikalega gott tortellini!
Tortelliniið (skiptir ekki öllu hvort það er osta- eða
kjötfyllt) er soðið i samræmi við leiðbeiningar og þegar
það er vel á veg komið er tómatpúrra sett í pott, einum
grænmetiskjötkraftsteningi bætt út í og réttri þykkt
náð með mjólk og rjóma (alls engin skylda að spara
rjómannl). Tortelliniið, sem ætti að vera orðið tilbúið, er
svo sett út I og þessu leyft að malla saman í þrjár til fimm
mínútur. Rosalega gott að bera þetta fram með hvítlauks-
brauði og heimatilbúnu salati; til dæmis jöklasalpti, papriku,
tómötum, sveppum, púrrulauk, ferskum hvítlauk og fetaosti.
I bláum skugga
á Akureyri
Védís Hervör og Seth Sharp
munu spila á tónleikum á Græna
hattinum á Akureyri annað kvöld.
Tónleikarnir verða
undiryfirskriftinni
Silver og dag-
skráin nokkurs
konar „fúsíon"
af (slenskri og
amerískri dæg-
urtónlist. Tii að
mynda er lag-
inu Sofðu unga
ástin mín hrært
skemmtilega
saman við perluna Summertime
og áheyrendur munu heyra afar
fönkí útgáfu af Stuðmannalaginu
’ bláum skugga.
FRIR WH0PPER JR. FYLGIR
HVERRI WHOPPERMÁLTÍÐ
ELDSTEIKT ER EKTA!
Á kassanum
Arni Einar Birgisson
Ég, eins og margir aðrir, er
búinn að steinliggja með flensu.
Þetta er nú ekki í frásögur fær-
andi, enda er ég reykingamaður,
og eins og flestir reykingamenn
er ég meira og minna kvefaður
frá septemberbyrjun til aprílloka,
og einu sinni á vetri verður kvef-
ið óviðráðanlegt og maður leggst
í rúmið/sófann. Svo liggur maður
slímugur og horaður í hálfgerðu
óráði og skiptir veikum mætti á
milli sjónvarpsstöðva.
Og þar sem ég er þessi týpíska
miðbæjarrotta, er ég bara með
aðgang að Ríkissjónvarpinu, Sir-
kus, Skjá í og Omega. Einhverra
hluta vegna er síðan Omega stað-
sett á milli RÚV og Skjás í á sjón-
varpinu mínu, þannig að í óráðs-
ástandi mínu seinustu daga hef
ég oftar en ekki staldrað við á Om-
ega. Guð minn almáttugur! Dag-
skráin á stöðinni er alveg ótrúleg.
Messur, samkomur og umræðu-
þættir með (ofsa)trúarpostulum
amerískum eins og Jimmy Swagg-
art, Billy Graham og Gunnari í
Krossinum, umræðuþættir um
ástandið í Mið-Austurlöndum
þar sem er sett fram... tja, að-
eins öðruvísi skoðun á því
hvernig Palestínumenn eru að
misþyrma vesalings ísraels-
mönnunum. Einnig kemur
oft fram einhver al-falskasti
trúbador sem ísland á og
glamrar á gítarinn og að
því er virðist semur óði til
meistara Jesú á staðnum
sem hljóma flestir
eiginlega eins og
einhver taki
kött á lóðaríi
og reyni
spila á
hann eins
og harm-
óníku. Ég
, mæli með
honum, að sjá er að trúa.
Og eftir að hafa innbyrt Omega
í óráði, fór ég að hugsa hvað það
væri frábært að ef allir minni-
hlutahópar (ég held að flestir
hljóti að vera sammála um það
að markhópur Omega teljist til
minnihlutahóps á íslandi) væru
með sina eigin sjónvarpsstöð
sem sýndi ódýrt sjónvarpsefni.
Smáglæpamenn og eiturlyfjasal-
ar myndu reka sjónvarpsstöðina
Glæpon, sem myndi endursýna
New Jack City og Blow til skipt-
is, í stað trúbadorsins væru sýnd
myndbönd með transtónlist,
einnig kennslumyndbönd um allt
frá lásauppdýrkun til krakkfram-
leiðslu. Éndalausir umræðuþætt-
ir um skaðleysi kannabisreykinga
og ekki má gleyma sunnudags-
hugvekjunni með ívari Erni úr
Dr. Mister. KR-ingar (reyndar
varla minnihlutahópur) væru
með stöð sem spilaði KR-lagið eft-
ir Bubba aftur.
Stöðin fyrir ríkisstarfsmenn
sem hafa verið reknir fyrir afglöp
í starfi væri búin að ráða Hjört
Howser og Árna Johnsen til þess
að halda úti umræðuþætti um
hversu mikið Sigur Rós, GusGus,
Páll Óskar og XXX
Rotweiler hundar
ættu ekki rétt á sér.
Breskir ferða-
menn væru
með stöðina
Næsti umgang-
^ ur, sem myndi
ekki senda út
neitt nema 24
tíma umræðuþátt
í beinni frá Bellys,
Hafnarstræti, um
hvað bjórinn
er dýr hérna á
Klakanum. Og
ég, ég væri
náttúrulega
með mína
eigin stöð,
djöfullværi
ég flottur.