blaðið - 25.11.2006, Side 2
2 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006
blaðió
VEÐRIÐ f DAG
Léttskýjað
Norðan 5 til 13 metrar á sekúndu, snjó-
koma eða éljagangur fyrir norðpn en
léttskýjað sunnan- og suðvestanlands.
Frostlaust úti við ströndina en allt að tíu
stiga frost inn til landsins.
Á MORGUN
A morgun
Norðlæg átt 5 til 10 metrar á
sekúndu en 8 til 13 á annesjum
norðantil. Bjart á Suður- og
Vesturlandi en él norðantil.
Frost 1 til 7 stig.
VÍÐAUM HEIM
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Dublin
Frankfurt
21
11
20
12
-3
8
12
Glasgow
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Montreal
8
10
6
10
13
15
0
New York
Orlando
Osló
Palma
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
11
11
6
23
12
7
7
Banaslys i umferðinni:
Svefn olli átta
banaslysum
Að minnsta kosti átta bana-
slys urðu hér á landi á árunum
1998 til 2004 af völdum þess að
ökumaður sofnaði við akstur, að
því er fram kom í erindi Gunn-
ars Guðmundssonar lungna-
læknis á Umferðarþingi. Talið er
að 13 prósent slysa þar sem um
framanákeyrslu er að ræða séu
vegna syfju. Þar sem sjaldgæft
er að ökumenn viðurkenni að
syfja hafi verið aðdragandi slyss
má gera ráð fyrir að hlutfallið
sé hærra.
Helstu orsakir of lítils og
lélegs svefns eru hávaði, áfeng-
isneysla, lyfjanotkun, fíkniefna-
neysla og síðast en ekki síst
kæfisvefn.
Verðsamráð:
Eiga að sæta
refsingu
Það er skýr ætlun löggjafans
að einstaklingar sæti refsiábyrgð
vegna brota á samkeppnislögum
að mati Lúðvíks Bergvinssonar,
þingmanns Samfylkingarinnar.
Þetta kom fram í ræðu sem
hann hélt á hádegisfundi Lög-
fræðingafélags tslands. Snerist
umræðan meðal annars um
mögulega refsingu vegna verð-
samráðs olíufélaganna.
Róbert R. Spanó, dósent við
lagadeild Háskóla tslands, hefur
bent á að lagaákvæði séu ekki
nógu skýr og því geti verið
erfitt að refsa einstökum starfs-
mönnum vegna samráðsins.
Mistök í átaki lögreglu og tryggingafélaga gegn ótryggðum bílum
Vill laun fyrir umstangið Björn
Bogason bifvélavirki er reiður
vegna misskilnings sem varð til
þess að númeraplata af bifreið
hans var klippt af.
Klipptu númer af
tryggðum bílnum
■ Framkvæma fyrst og spyrja svo ■ Ætlar aö rukka tryggingafélagið
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
„Ég ætla að gera kröfu um tveggja
tíma vinnu,“ segir Björn Bogason,
fyrrverandi bifvélavirki, _sem er
ósáttur við tryggingafélag sitt eftir
að númeraplata af bifreið hans var
klippt af vegna mistaka. Lögreglu-
menn klipptu númerið af bíl Björns
eftir að hafa fengið upplýsingar frá
VÍS um að hann væri ótryggður.
Þær upplýsingar voru rangar og
númerin því klippt af bílnum að
ástæðulausu.
Lögreglan hefur ásamt trygginga-
félögum verið í miklu átaki við að
klippa númeraplötur af ótryggðum
bifreiðum.
„Konan mín ætlaði í vinnuna á
miðvikudagsmorgninum en sá þá
miða í glugganum frá lögreglunni,“
segir Björn, sem sjálfur er að jafna
sig eftir kviðarholsaðgerð. Konan
hans kom með miðann inn í íbúð
þeirra hjóna án þess þó að taka eftir
því að búið var að klippa númerin.
Hún hélt fyrst að um viðvörun væri
að ræða en það var ekki fyrr en ná-
grannakonan hennar benti á að
númerin vantaði sem hún áttaði sig
á að þau höfðu þegar verið klippt af
bílnum.
„Ég lenti í óhemjuvandræðum
vegna málsins en auðvitað var ég bú-
inn að greiða fyrir númerin," segir
Björn skúffaður vegna vinnubragð-
anna sem hann vill meina að gangi
út á að framkvæma fyrst og spyrja
svo. Eiginkonan komst þó í vinn-
una með aðstoð nágrannakonunnar
og síðar um daginn var henni ekið
heim afyfirmanni sínum.
„Þegar ég hringdi og áréttaði þetta
þá varð úr að ég þyrfti að sækja
plöturnar sjálfur,“ segir Björn sem
er enn að ná sér eftir kviðarholsað-
gerð. Hann segist hafa fengið vin
sinn til að skutla sér enda sjálfur
bíllaus eins og gefur að skilja. Mis-
tökin voru leiðrétt hjá VÍS sem sér
um tryggingarnar en engu að síður
ætlar Björn að leggja fram kröfu
fyrir tvo vinnutíma. Sjálfur segir
hann að mistök sem þessi eigi að
leiðrétta.
„Svona lagað á ekki að geta gerst
enda langur aðdragandi áður en
númer eru klippt af bílum,“ segir
Ásgeir Baldurs, framkvæmdastjóri
VfS. Hann segir viðvaranir ávallt
sendar út og því eigi ekki að fara
framhjá mönnum að þeir eigi eftir
að borga tryggingar. Hann bætir
við að það sé síðasta úrræði að
klippa númerin af.
Asgeir segir alltof marga bíla
í umferðinni sem ekki eru með
tryggingu. Hann segir það alltaf
koma upp þegar um 200 þúsund
bílar séu á götunni að einn og einn
borgi ekki gjöldin.
Umferðaröryggi:
ísland í
fremstu röð
íslendingar eru í fremstu röð
Evrópuþjóða hvað varðar umerð-
aröryggi ef miðað er við hlutfall
látinna á hverja milljón íbúa.
Þetta kom fram i máli doktors
Gúnter Breyer, aðstoðarvegamál-
stjóra Austurríkis, á fundi um
umferðaröryggi í Evrópu.
Á íslandi látast 78 einstak-
lingar á hverja milljón íbúa í
umferðarslysum og samkvæmt
því er fsland í 8. sæti af 27 Evr-
ópuþjóðum. Lægst er hlutfallið
um fimmtíu látnir en hæst um
200 látnir á hverja milljón íbúa.
Árlega deyja um 50 þúsund
manns í umferfjíarslysum í Evr-
ópu en unnið e| að því að lækka
þessa tölu niðttí í 25 þúsund fyrir
árið 20io. 19
Kim Larsen:
Afþakkaði
riddarakross
Danski söngvarinn Kim
Larsen hefur afþakkað danska
riddarakrossinn.
„Ég tel rétt að afþakka riddara-
krossinn, þar sem mér finnst
elcki rétt að gamall götustrákur
og poppsöngvari komi fram með
kross, bönd og stjörnur,“ segir í
tilkynningu frá söngvaranum
góðkunna. Hann segir að það
hefði þó eflaust verið mjög
ánægjulegt að fá sér sígarettu
með drottningunni í einrúmi, ef
starfslið drottningarinnar hefði
veitt leyfi fyrir slíku.
Gæða sængur
og heilsukoddar.
Opið virka daga: 10-18, lau: 11-16 Reykjavílc Mörkin 4, s: 533 3500
Sveik út mat á fimmtán veitingastöðum:
Síbrotasælkeri dæmdur
Borðaði á Hansen Tæplega
fertugur maður sveik út mat
á alls fimmtán veitingastöð-
, um á höfuðborgarsvæðinu.
Tæplega fertugur maður var
dæmdur í árs fangelsi í gær fyrir
að svíkja út máltíðir á fimmtán veit-
ingastöðum. Áður hefur maðurinn
hlotið 32 dóma og þá aðallega fyrir
svipuð afbrot.
Maðurinn hóf afbrotin í mars á
þessu ári. Hann fór á Ara í Ögri og
fékk sér máltíð þar. Hann gekk þá
út frá ógreiddum reikningi.
Mánuði síðar sótti hungrið aftur
að honum og hann fór á Kaffi
Óperu þar sem hann snæddi fyrir
ríflega átta þúsund krónur. Ekki
liðu nema nokkrir dagar þangað
til hann snæddi á Hótel Nordica.
Þar borðaði hann mat fyrir nær
þrjú þúsund krónur en þar má fá
sér humar á aðeins tvö þúsund og
fjögur hundruð krónur. Ekki er
vitað hvort hann hafi drukkið vín
með matnum eða fengið sér kaffi
á eftir.
Dýrustu máltíðina fékk hann á
veitingastaðnum A. Hansen í Hafn-
arfirði. Þar hljóðaði reikningurinn
upp á átta þúsund krónur. Þar er
hægt að borða þrírétta máltíð fyrir
tæplega sex þúsund krónur. Ekki er
vitað hvað hann borðaði á staðnum
en boðið er upp á hvítlauksristaða
humarhala í forrétt, hreindýr í aðal-
rétt og súkkulaðimús í eftirrétt.
Maðurinn var dæmdur í árs fang-
elsi óskilorðsbundið og sá dómari í
Héraðsdómi Reykjavíkur sér ekki
fært að skilorðsbinda dóminn vegna
fyrri brota. Því er í raun um síbrota-
sælkera að ræða.