blaðið - 25.11.2006, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006
blaðið
Athyglisverð þverpólitísk
lýsing á íslensku þjóðfélagi
Þær breytingar sem hafa orðið
á þjóðfélagi okkar eru stórstígar
og að lang flestu leyti til góðs.
Langt er síðan ég hef þó lesið jafn
greinargóða og knappa lýsingu á
þessum breytingum og gat að líta
í skýrslu nefndar um lagalega um-
gjörð stjórnmálaflokkanna. Það
gefur þessari lýsingu sérstakt vægi,
að höfundar skýrslunnar eru full-
trúar allra stjórnmálaflokkanna
sem eiga sæti á Alþingi.
í skýrslunni segir orðrétt:
“Þær breytingar sem hafa orðið á
íslensku þjóðfélagi á undanförnum
áratugum hafa dregið stórlega úr
hættu á spillingu tengdri stjórn-
málastarfsemi. V iðskiptal í fið hefur
verið leyst úr viðjum leyfisveitinga
og úthlutunarkerfa sem buðu heim
óeðlilegum þrýstingi á stjórnmála-
menn um úthlutun takmarkaðra
gæða og býr í dag við lagaum-
hverfi sem er sambærilegt við
það sem tíðkast í nágranna-
löndum okkar. Endurskoðun
mannréttindaákvæða stjórn-
arskrár og tilkoma stjórn-
sýslulaga og upplýsinga-
laga hefur stuðlað
að meiri virðingu
fyrir jafnræði
borgaranna og
auknu gagnsæi
um forsendur
stjórnsýslu-
ákvarðana. Af
öllu þessu leiðir
að stjórnmála-
menn hafa færri
tækifæri til að
beita áhrifum
sínum til að mis-
muna fólki eða fyr-
irtækjum og því ætti
væntanlega að vera
minni hvati fyrir hags-
munaaðila að reyna að hafa
áhrif á einstakar ákvarðanir
stjórnmálamanna”.
lýsingar á því hvernig viðskipta-
lifið er ekki á klafa úthlutana og pó-
itískra inngripa, rifjar upp hvernig
þessi breyting gekk fyrir sig. Hún
gerðist ekki fyrirhafnarlaust. Hún
kostaði átök gegn þeim þjóðfélags-
öflum sem vildu festa okkur í nið-
urnjörvaða fortíð þar sem ekki var
horft til þeirrar framtíðar sem nú
er orðin að veruleika dagsins.
Þess vegna er svo gaman að lesa
þessi athyglisverðu skrif sem setta
eru á blað af fulltrúum allra stjórn-
málaflokka í landinu. Þau staðfesta
í raun að það sem var bullandi
ágreiningur um á stjórnmálavett-
vangnum fyrir örskömmu síðar,
er nú orðinn viðtekinn sannleikur
og nýtur stuðnings þvert á flokks-
bönd. f rauninni eru þetta all veru-
leg pólitísk tíðindi. Höfundar ívitn-
aðra skrifa verðskulda að þeirra sé
getið hér og skal það nú gert:
Sigurður Eyþórsson, Framsókn-
arflokki, Kjartan Gunnarsson,
Sjálfstæðisflokki, Margrét S.
Björnsdóttir, Samfylkingu,
Gunnar Ragnars, Sjálf-
stæðisflokki, Gunnar
Svavarsson, Samfylk-
ingu, Guðlaugur
Þór Þórðarson,
Sjálfstæðisflokki,
Kristin Halldórs-
dóttir, Vinstri
G r æ n u m ,
Helgi S. Guð-
mundsson,
Framsóknar-
flokki, Eyjólfur
Ármannsson,
Frjálslynda
flokknum. Og rit-
ari þessa hóps var
svo Árni Páll Árna-
son, frambjóðandi hjá
Samfylkingunni.
Höfundur er sjávarútvegsráðherra.
Pólitísk sátt um
breyttan veru-
leika íslands.
Umrœðan
Einar K. Guðfinnsson
Þetta eru stórmerk skrif sem
ástæða er til að vekja athygli á og
undirstrika. Þau eru einstaklega
lýsandi fyrir þær jákvæðu grund-
vallarbreytingar sem við höfum
gert á íslensku þjóðfélagi. Þetta er
lýsing á jákvæðri þróun frá gamal-
dags íhlutunarþjóðfélagi og að sam-
félagi almennra leikreglna. Þessar
RÚV og ríkisvæðing
ljósvakans
Nú er menntamálanefnd að fara
yfir frumvarpið um Ríkisútvarpið
ohf. Þriðja tilraun á þremur árum
til að setja ný lög um Ríkisútvarpið
stendur sem sagt yfir og er slagur-
inn um rekstrarformið og margt
tengt því.
Á dögunum kom Vilhjálmur Egils-
son á fund nefndarinnar fyrir Sam-
tök atvinnulífsins. Vilhjálmur flutti
sannfærandi rök gegn frumvarpinu
sem eru um margt skyld því sem
Sjálfstæðismenn
þrengja að hinu
frjálsa framtaki.
Björgvin G. Sigurösson
Bílstjórar til
PÓSTURINN
allur pakkinn
starfa í desember
Útkeyrsludeild óskar eftir starfsfólki til útkeyrslu á
höfuðborgarsvæðinu í desember, á minni sendibílum.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Nánari
upplýsingar eru veittar í síma 580 1243.
Hæfniskröfur:
• 18 ára aldurstakmark
• Hreint sakavottorð
• Stundvísi, snyrtimennska og góð þjónustulund
Umsóknum skal skilað til:
(slandspóstur hf.
Póstmiðstöð
Stórhöfða 32
110 Reykjavík
Merkt: Bílstjórar í desember
Einnig er hægt að sækja um á heimasíðu íslandspósts:
www.postur.is
ég hef haldið fram í umræðum um
málið í þinginu.
Að gera Ríkisútvarpið að hluta-
félagi án takmarkana á auglýsinga-
markaði með 2,8 milljarða meðgjöf
frá ríkinu er fráleitt í ljósi samkeppn-
innar á fjölmiðlamarkaði. f okkar fá-
menna samfélagi er lítið rúm fyrir
arðsaman rekstur á fjölmiðlum og
lítið sem ekkert þegar ríkið gnæfir
yfir markaðinn með háeffaðan
miðil með miklar meðgjafir. Þá
þrengir nú að.
Hið aukna samkeppnisforskot
Ríkisútvarpsins getur haft margar
alvarlegar afleiðingar fyrir frjálsa
ljósvakamiðlun. Til að mynda rninni
fréttaþjónustu og skerta framleiðslu
á innlendu og menningartengdu
efni. Svo einfalt er það.
Aukin ríkisvæðing ljósavakamiðl-
unar ntun og getur haft slíkar afleið-
ingar og það er sorglegt að horfa á
Sjálfstæðisflokkinn, fyrrum kyndil-
bera frjálsa framtaksins, koma slíku
máli til leiðar.
Margt annað er vont við RÚV-
málið. Veigamest er aukin pólitísk
stjórnun á stofnuninni í því formi
að Alþingi kýs árlega stjórn fyrir-
tækisins. Árlega, ekki á fimm ára
fresti eða nokkra stjórnarmenn í
senn. Árlegt kverkatak menntamála-
ráðherra skal það vera. Þetta verður
ójafn leikur á milli Ríkisútvarpsins
og einkareknu miðlanna. Því er
nauðsynlegt að mæta því ójafnræði
með einhverjum hætti. Ein leið er að
takmarka umfang Ríkisútvarpsins
á auglýsingamarkaði og taka fyrir
auglýsingasölu þess á vefnum.
Merkilegt mál og þráhyggja
menntamálaráðherra með nokkrum
ólíkindum í því öllu.
Höfundur er þingmaður
Samfylkingarinnar á Suðurlandi.