blaðið - 25.11.2006, Blaðsíða 12

blaðið - 25.11.2006, Blaðsíða 12
blaöið Lið-a-mót FRÁ ÖÉS® www.nowfoods.com GIT1C3 NNFA QUALITY 12 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 ; '<%# •" - 'í 'X". -i*-. U-■ m w |t 1 ■ w\ UTAN ÚR HEIMI Kalla sendiherrann heim Stjórnvöld í Rúanda hafa kvatt sendiherra sinn í Frakk- landi heim eftir aö franskur dómari gaf út handtökuskipun á hendur níu aðstoðarmönnum forseta Rúanda. Þeir eru sakaðir um að samsæri um að myrða forseta landsins árið 1994, sem varð kveikjan að þjóðarmorðinu þar í landi. FRAKKLAND Lést eftir knattspyrnuleik Áhangandi PSG var skotinn til bana og annar særðist þegar lög- reglumaður skaut á hóp manna skömmu eftir tap PSG gegn Hapoel Tel Aviv í Evrópukeppninni í fótbolta. Á annað hundrað áhangendur PSG þyrptust að einum stuðningsmanni Hapoel. Lögreglumaðurinn kom honum til varnar en ráðist var að honum og skaut hann þá. GULLI BETRI APÓTEK OG HEILSUBÚDIR MULTI-VIT Náttúruleg fjölvítamín með steinefnum V*!m baUtitu tyrir þariir Isiending* 180 töflur Inniheldur 22 valin bætiefni, 12 vítamín og 10 steinefni. Toavo' heilsa -haföu þaö gott ísrael: Peretz ætti að segja af sér Mbl.is Nærri 8o prósent Israela vilja að Amir Peretz segi af sér embætti sem varnarmálaráðherra vegna mistaka sem gerð voru í stríðinu í Líbanon íyrr á þessu ári og fyrir að takast ekki að koma í veg fyrir eldflaugaárásir Palestínumanna. Þetta kemur ff am f skoðanakönn- un sem blaðið Maariv birti 1 gær. I könnuninni kom einnig ff am vaxandi fylgi við flokka á hægri væng stjórnmála í ísrael, sérstaklega Likudbandalags- ins sem fengi 29 þingmenn ef kosið væri nú en hefur tólf. Líkamsárás: Játa árás í Öskjuhlíð Mbl.is Lögreglan í Reykjavík hefur upplýst líkamsárás- armál þar sem ráðist var á karlmann á sjötugsaldri í Öskjuhlíð sl. föstudagskvöld. Fram hefur komið að fjórir piltar veittust að manninum sem hlaut slæma áverka í andliti og missti fjórar tennur. Nú liggur fyr- ir að það var einn piltanna sem lagði hendur á manninn með fyrr- greindum afleiðingum. Sá sem það gerði hefiir játað verknaðinn. Það skal áréttað að piltarnir og fórnarlambið þekktust ekki. dekkjum Kynnm ma9ir* Vesturhraun 3 - 210 Garðabær Slmi 555 1122 / 869 1122 - efnir^efnir.is Opiö virka daga Id. 9-18 - Laugardaga kl.13-16 Green Diamond USA wvvw.greertdiamcrKítireíXXTi Diamond Blodið/Frikki Fimm ára fangelsr orðtilraun Hélt aðharni hefð lamast íxárásinni Fórnarlambiö vaknaði þremur dögum eftir árásina Stunginn í bakið Eftir Val Grettisson valur@bladid.net „Ég lá á sjúkrahúsi í mánuð,“ segir Magnús Einarsson, fórnarlamb ófyrirleitinnar morðtilraunar síð- asta vor. Hann var stunginn af Arn- ari Val Valssyni, sem var dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í fyrradag. Félagi Arn- ars Vals, sem ók bifreið sem þeir voru á, keyrði á tvö ungmenni sem voru á götunni þar sem árásin átti sér stað í Hafnarfirði. Árás á afmælinu „Þetta byrjaði út af einhverjum frösum,“ segir Magnús um kvöldið örlagaríka. Nokkrum dögum áður hafði honum sinnast við tvo pilta sem tóku orðaskiptunum illa. Þeir komu ásamt Arnari Val heim til Magnúsar í Hafnarfirði í maí síð- astliðnum meðan hann hélt upp á afmæli sitt ásamt vinum. Faðir Magnúsar fór til dyra og áttaði sig á að þeir vildu ekkert gott því einn þeirra var vopnaður hafnabolta- kylfu. Kallaði hann þá til konu sinnar og bað hana um að hringja á lögregluna. Ungmennin í afmælinu flykkt- ust út en piltarnir hröðuðu sér inn í bílinn. Ungmennin stöðvuðu för bílsins en þá stökk Arnar Valur út og stakk Magnús aftan frá. Svo fór hann aftur í bílinn og félagi hans ók af stað. Hann ók á einn pilt og annar rétt náði að forða sér. Sá sem ekið var á meiddist nokkuð en ekki alvarlega. Faðir Magnúsar kom út og sá son sinn liggja í blóði sínu. í dómsorði kemur fram að at- burðarásin hafi verið afar hröð en sjúkraflutningsmönnum tókst að koma Magnúsi á spítala áður en hann missti of mikið blóð og léti lífið. Máttlaus í fótunum „Ég vaknaði bara á mánudeginum og fann engan kraft í löppunum, ég hélt ég væri lamaður,“ segir Magnús og bætir við að tilfinningin hafi verið hræðileg. Sjálfur spilar hann á trommur og hann sagði að það fyrsta sem kom upp í huga hans hafi verið depurð vegna þess að hann gæti aldrei spilað á trommurnar aftur. Magnús segist hafa verið mjög hræddur á spítalanum enda vissi hann ekki hvernig þetta myndi enda. „Ég er í sjúkraþjálfun núna en ég fór að spila aftur á trommur með frábærum árangri," segir Magnús. Hann styrktist hægt og rólega með aðstoð trommuleiksins. Þrátt fyrir að Magnús hafi ekki enn náð fullri heilsu stundar hann trommuleikinn ásamt sjúkraþjálfuninni. Hann mun þó bera ævilangan skaða vegna stung- unnar enda var blaðið fimmtán senti- metra langt og fór alla leið inn í hann. „Þetta var frekar bíómyndalegt svona eftir á að hyggja,“ segir Magnús hlæjandi og bætir við að hann búi nú bara á íslandi og hefði ekki búist við öðru eins í veruleikanum. Arnar Valur var dæmdur í fimm ára óskilorðsbundið fangelsi og er einnig gert að greiða Magnúsi tæp- lega tvær milljónir í miskabætur. Fé- lagi hans sem ók bílnum fékk eins árs fangelsi skilorðsbundið til þrig- gja ára. Atvinnurekendur spara laun: Réttindalausir í fagstörf „Algengt er að réttindalausir verka- menn séu fengnir til að vinna störf iðnaðarmanna. Þetta er nokkuð áberandi á vinnumarkaðnum," segir Halldór jónasson, starfsmaður Trésmiðafélags Reykjavíkur. 1 gær greindi Blaðið frá pólskum iðnaðar- mönnum sem hafa ráðið sér lögfræð- ing og eru farnir í mál við fyrrum vinnuveitanda vegna vanefnda hans. í vikunni greindi Blaðið frá ólög- legu sambýli á Smiðjuveginum þar sem rúmlega sextíu pólskir iðnaðar- menn búa. I samtali við fjölda þeirra kom í ljós að þrátt fyrir ánægju með dvölina hér á landi eru þeir ósáttir með þau launakjör sem þeim bjóð- ast. Þeir kvarta einkum yfir því að þeirra starfsréttindi og menntun sé ekki virt. Flestir verkamannanna höfðu iðnmenntun að baki og höfðu til þess tilskilin leyfi og gögn til stað- festingar. Þrátt fyrir það greiðir fyr- irtækið, byggingafyrirtækið Stafnás, þeim aðeins grunntaxta ófaglærðra verkamanna. Halldór segir þetta mjög algengt og bendir á að einnig sé algengt að ófaglærðir séu fengnir í störf sem réttindamenn ættu að sinna. „Það er mikill munur á launum verka- manna og iðnaðarmanna. Með þessum hætti ná atvinnurekendur að spara sér drjúgan skilding i laun," segir Halldór.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.