blaðið - 25.11.2006, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006
blaöiö
INNLENT
STÉTTARFÉLÖG
Hafnfirðingar sameinast VR
Félagar í Verslunarmannafélagi Hafnarfjarðar
samþykktu í gær að sameina félagið VR, sem
eitt sinn hét Verzlunarmannafélag Reykja-
víkur. 94 prósent þeirra sem greiddu atkvæði
voru fylgjandi sameiningu.
ALCOA Á HÚSAVÍK
Opnar skrifstofu
Alcoa hefur opnað skrifstofu og upplýsingamiðstöð
á Húsavík vegna hugsanlegs álvers í landi Bakka við
Húsavík. Miðla á upplýsingum um Alcoa og hugsan-
legt álver til hagsmunaaðila á Norðausturlandi svo
sem sveitarfélaga, samtaka atvinnulífsins og íbúa.
LANDSVIRKJUN
Ómar fær átta milljónir
Landsvirkjun ákvað á stjórnarfundi í gær að styðja verkefni Ómars
Ragnarssonar, Örkina, um átta milljónir í stað fjögurra sem upphaflega
hafði verið áætlað. Ómar fær styrkinn fyrir kvikmyndagerð um myndun
Hálslóns. Landsvirkjun fær afnot af myndefni Ómars, en hann og sam-
starfsmenn fá húsaskjól og fæði í búðum Landsvirkjunar..
ÉUmsóknir um vegabréf
Myndatökur verða á veg-
um atvinnuljósmyndara
Héraðsdómur úrskurðar um vegabréf:
Ljósmyndarar
taki myndir
Ljósmyndurum með iðnréttindi
og nemendum í ljósmyndun er
einum heimilt að taka ljósmyndir
í vegabréf hjá sýslumönnum og
lögreglustjóra. Þetta úrskurðaði
Héraðsdómur Reykjavíkur í gær.
Félag ljósmyndara hafði lagt
fram kæru á hendur ríkinu vegna
ókeypis myndatöku fyrir vega-
bréf á vegum sýslumanna sem
ófaglærðir inntu af hendi. Hjá ljós-
myndurum hefur myndatakan
kostað um 2500 krónur.
„Þetta er sigur fyrir sýslumanns-
embættin því að nú fá þau al-
mennilegar myndir í gagnagrunn
sinn. Þetta er einnig sigur fyrir
þá sem eru með iðnréttindi,”
segir Gunnar Leifur Jónasson,
formaður Ljósmyndarafélagsins.
„Málið var í raun eins fáránlegt
og það gat verið. Það er lögreglu-
stjórinn sem gefur út sveins- og
meistarabréfin og hann var að
brjóta eigin reglugerðir,” bætir
Gunnar Leifur við. Hann segir
næstu skref enn ekki hafa verið
ákveðin þar sem hann eigi eftir
að fara yfir dóminn með sínum fé-
lagsmönnum og lögmanni. I fram-
haldinu verði ákveðinn fundur
með aðilum málsins.
Skuggahirðir
MÖGNUÐBÓK
Hefur selst í yfir
milljón eintökum
„ævintýralega spennandi"
OBSERVER
232 blaðsíður / innbundin
0HUÓÐBÓK.IS
Enski boltinn Skjár
sport og Sýn kepptu
um sýningaréttinn á
enska boltanum. Sýn
hafði betur og er tal-
ið að stöðin greiði á
annan milljarð fyrir.
Harðri baráttu um sýningarréttinn á enska boltanum lokið:
Sýn borgar á annan
milljarð fyrir réttinn
■ Útsendingarrétturinn alltof dýr ■ Þýðir ekki annað en að spila til sigurs
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Þegar upphæðin var komin vel á
annan milljarð þá hættum við að
taka þá í leiknum. Þetta er löngu
hætt að vera viðskiptalegar forsendur
sem liggja að baki,“ segir Magnús
Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Skjás
eins. Skjár sport og Sýn kepptust
nýverið Um sýningaréttinn á enska
boltanum. Þeirri keppni lauk með
sigri Sýnar. Samkvæmt heimildum
hljóðar heildartilboð sjónvarpsstöðv-
arinnar upp á 1,2 milljarða króna.
„Kostunaraðilarnir þurfa að vera
ansi öflugir til að standa undir þessu
tilboði. Mér sýnist þarna Baugur
einfaldlega vera að kaupa enska
boltann aftur inn í fyrirtækið,“ segir
Magnús.
Ari Edwald, forstjóri 365, vill ekki
staðfesta hversu mikið fyrirtækið
Æ
Lönguhættað
vera viðskipta-
X legar forsendur
Magnús Ragnarsson
Sjónvarpsstjóri Skjás Eins
Þýðir ekkert
annað en að
spila til sigurs
Ari Edwald
Forstjóri 365
greiðir fyrir sýningaréttinn. Hann
segir ljóst að tilboðið sé á viðskipta-
legum forsendum. „Ef maður ætlar
á annað borð að taka þátt í leiknum
þá þýðir ekkert annað en að spila til
sigurs. Ég geri ráð fyrir því að tilboð
Skjás sports hafi ekki verið mjög
fjarri okkar,“ segir Ari. Hann segiSt
sammála því að verð fyrir íþrótta-
efni hér á landi sé alltof hátt og úti-
lokar að Baugur sé í lykilhlutverki í
kaupunum. „Við hefðum ekki getað
greitt þetta verð nema hafa nú þegar
tryggt okkur kostendur fyrir stórum
hluta þess. Hverjir þeir eru kemur í
ljós þegar útsendingar hefjast."
Baráttan um sýningarréttinn frá
enska boltanum hefur verið mjög
hörð allt síðan Sýnarmenn hrepptu
réttinn til útsendinga árið 1997. Aður
hafði Sjónvarpið sýnt frá enska bolt-
anum áratugum saman. Skjár einn
kom síðan á óvart með því að hreppa
sýningarréttinn fyrir þremur árum
eftir harða baráttu við Sýnarmenn.
Fyrsta árið var enski boltinn sendur
út í opinni útsendingu á Skjá einum
en þetta ár og síðasta hefur hann
verið sendur út á Skjá sporti, systur-
stöð Skjás eins.
Fyrsti miðstjórnarfundur Framsóknar frá formannskjöri:
Fylgið streymir annað
FYLGI FRAMSÓKNAR-
FLOKKSINS Á LANDSVÍSU*
11%
X f!
‘Samkvæmt þjóðarpúlsi Capacent Gallups
„Fylgið hefur streymt frá Fram-
sóknarflokknum og það mun reyna
mikið á nýja forystu að ná því til
baka,“segirKristinnH.Gunnarsson,
þingmaður Framsóknarflokksins.
Fyrsti miðstjórnarfundur Fram-
sóknarflokksins frá því Jón Sigurðs-
son tók við formannsembætti af
Halldóri Ásgrímssyni verður hald-
inn á Hótel Loftleiðum í dag.
Flokkurinn hefur komið illa út úr
skoðanakönnunum að undanförnu
og því ljóst að það er við ramman
reip að draga þegar aðeins sjö mán-
uðir eru til kosninga.
Verðum að stilla
saman strengi.
Björn Ingi Hrafnsson,
varaþingmaður og
borgarfulltrúi
Björn Ingi Hrafnsson, varaþing-
maður og borgarfulltrúi, segir
stöðuna vissulega vera dökka og
telur mikilvægt fyrir flokkinn að
nýta þingið í dag til að stilla saman
strengi. „Það er ekkert grætt með
því að neita að viðurkenna að út-
litið sé dökkt. Menn þurfa að velta
ástæðunni fyrir sér og fara yfir
málefnastöðuna og stilla saman
strengi."
Björn segist ekki eiga von á því að
forystukreppa Framsóknarflokks-
ins frá því í vor muni draga dilk á
eftir sér. „Það skapaðist mikið tóma-
rúm þegar Halldór Ásgrímsson
hætti sem formaður. Það tómarúm
leystist síðan á flokksþingi þegar nýr
formaður fékk afgerandi kosningu.“
k
*