blaðið - 25.11.2006, Blaðsíða 6
Ettginjól án þeinra!
6 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006
blaöiö
Þegar íslensku ostarnir eru bornir fram, einir sér,
á ostabakka eða til að kóróna matargerðina
— þá er hátíð!
r » Dala-Yrja
Sígildur veisluostur
sem fer vel
á ostabakka.
Gullostur
Bragðmikill
hvítmygluostur,
glœsilegur
á veisluborðið.
9 I
Jóla-Yrja
■Bragðmild og góð
eins og hún kemurfyrir
eða l matargerð.
Gráðaostur
Tilvalinn til matargerðar.
Góður einn og sér.
Höfðingi
Bragðmildur hvítmygluostur
, sem hefur slegið í gegn.
Jóla-Brie
A ostabakkann og með
kexi og ávöxtum.
Camembert 'JC
Einn og sér, "Tn
á ostabakkann
ogí matargerð. Stóri-Dímon
Omissandi þegar vanda
á til veislunnar.
Jr Jólaostakaka
með skógarberjafyllingu
Kætir bragðlaukana
svo um munar.
*
Jólaosturinn 2006
Akveðinn karakter
Ijúffeng spariútgáfa af brauðosti!
Blár kastali
Með ferskum ávöxtum
eða éinn og sér.
t Rjómaostur
Á kexið, brauðið,
í sósur og ídýfur.
Hrókur Kea
Ljúffengur hvítmygluostur
með gati í miðiunni.
íslenskir ostar - hreinasta afbragð
www.ostur.is
MSDim
Svafa tekur við af Guðfinnu
Stjóm Háskólans í Reykjavík hefur ráðiö Svöfu Grönfeldt í stöðu rektors skólans.
Hún tekur við starfinu af Guðfinnu S. Bjarnadóttur sem er á leiðinni í þingframboð
fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Svafa var síðast aðstoðarforstjóri Actavis en verður nú
annar rektor Háskólans í Reykjavík. Svafa segir þó ekki alfarið skilið við Actavis
því hún verður áfram í sérverkefnum fyrir fyrirtækið um sinn.
Óöldin í írak heldur áfram:
Reiði og sorg við
útför fórnarlamba
■ Mannskæðasti dagurinn frá innrás bandamanna ■ Þúsundir syrgðu fallna
Fórnarlömb sprengjuárása
fimmtudagsins í Sadr-hverfi í
Bagdad voru borin til grafar í gær.
Tala látinna í árásum fimmtudags-
ins er komin upp í 202 og enn er
talsverður fjöldi slasaðra. Arásirnar
voru þær mannskæðustu sem hafa
verið gerðar í höfuðborginni frá því
að Bandaríkjamenn gerðu innrás í
landið snemma árs 2003. Útgöngu-
banni var lýst yfir í borginni í kjöl-
far árásanna og var einungis fólki
sem tók þátt í útförum fórnarlamb-
anna heimilt að vera á götum úti.
Kistum með líkum fórnarlamb-
anna var ekið til Najaf, heilagrar
borgar sjíta, sem er um 150 kíló-
metrum suður af Bagdad. Þúsundir
karla, kvenna og barna syrgðu og
mátti greina mikla reiði meðal vina
og ættingja fórnarlambanna.
Leiðtogar sjíta, súnníta og Kúrda
hafa allir kallað eftir því að menn
sýni stillingu í kjölfar árásanna. No-
uri al-Maliki forsætisráðherra hefur
hvatt íraka til að grípa ekki til of-
beldis. „Við fordæmum aðgerðir of-
beldisfullra trúarhópa sem hafa það
eitt að markmiði að skaða einingu
þjóðarinnar."
Sjítaklerkurinn Moqtada al-Sadr
MANNSKÆÐUSTU
ÁRÁSIRNAR í ÍRAK
202 látnir - 23. nóvember 2006
Nokkrar bilsprengjur springa í
Sadr-hverfi í Bagdad.
182 látnir -14. september 2005
Bílsprengja springur í Bagdad og drepur
fjölda verkamanna.
140 látnir-2. mars2004
Sjálfsmorðssprengjumenn ráðast á hóp
sjíta víð hátíðahöld í Karbala.
114 látnir - 28. febrúar 2005
Sjálfsmorðssprengjumaður ræðst á hóp
manna sem eru að sækja um störf hjá
hinu opinbera í Hillah.
110 látnir - 5. janúar 2006
Sjálfsmorðssprengjumenn ráðast á
mosku í Ramadi.
105 látnir -1. febrúar 2004
Tvær árásir á skrifstofur Kúrda í Irbil.
85 látnir - 7. apríl 2006
Þrír sjálfsmorðssprengjumenn ráðast á
moskur sjíta í Bagdad.
Útgöngubanní
Bagdad Syrgjendum
var einum leyfilegt að
vera á götum úti.
hótaði því í gær að draga fylkingu
sína út úr ríkisstjórn landsins
ákveði al-Maliki forsætisráðherra
að funda með Bush Bandaríkjafor-
seta, en fundurinn er fyrirhugaður í
Jórdaníu í næstu viku. Talsmaður al-
Sadr sagði enga ástæðu til að ræða
við þá sem þeir segja bera ábyrgð á
ofbeldisöldunni í landinu.
Árásir héldu áfram í gær en að
minnsta kosti 22 létu lífið og tugir
særðust í tveimur sjálfsmorðs-
árásum við bílasölu í borginni Tal
Afara í norðurhluta landsins.
Ættingjum fylgt til grafar Kistunum var
ekið til hinnar heilögu borgar Najaf.